Fréttablaðið - 31.03.2006, Page 59

Fréttablaðið - 31.03.2006, Page 59
HANDBOLTI Jónatan Magnússon, leikstjórnandi og fyrirliði KA- liðsins til margra ára, er á förum frá félaginu en hann hefur samið við franska félagið St. Raphael. Liðið féll úr úrvalsdeild á síð- ustu leiktíð en er í harðri baráttu um að komast aftur í deild þeirra bestu í Frakklandi. Jónatan hefur lengi stefnt að því að komast í atvinnumennsku. Oft mátti litlu muna að hann færi en nú er dæmið loksins búið að ganga upp hjá miðjumanninum baráttu- glaða og káta. - hbg KA missir fyrirliðann sinn í handboltanum: Jónatan til Frakklands FÓTBOLTI Englendingurinn Ian Jeffs hefur skrifað undir samning við sænska 1. deildarliðið Örebro. Jeffs kom til ÍBV frá Crewe árið 2003 og hefur verið lykilmaður í liði Eyjamanna sem vildu alls ekki missa hann frá sér. „Þetta er að sjálfsögðu mikið áfall fyrir okkur en þetta sýnir að það er hægt að koma til ÍBV og fara síðan í atvinnumennskuna í stærri löndum,“ sagði Gísli Hjart- arson, stjórnarmaður hjá ÍBV, við Fréttablaðið í gær en hann er staddur á Spáni þar sem liðið er nú í æfingaferð. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins nemur kaupverðið á Jeffs um fimm milljónum króna sem er mun hærra en Örebro bauð fyrst. „Við höfnuðum nokkrum tilboðum frá Örebro áður en við komumst að samkomulagi um þetta. Hann vildi prófa eitthvað nýtt og við gátum ekki staðið í vegi fyrir honum,“ sagði Gísli. Á heimasíðu Örebro kemur fram að kaupverðið sé mun hærra en félagið hafði ætlað sér fyrst um sinn en það sé ánægt með að tryggja sér Jeffs. Skarð Jeffs hjá ÍBV verð- ur hins vegar vandfyllt. - hþh Karlalið ÍBV búið að missa einn sinn besta leikmann: Ian Jeffs seldur til Örebro á 5 milljónir króna Í BARÁTTUNNI Ian Jeffs er hér í skallaeinvígi við Grindvíkinginn Sinisa Kekic á síðustu leik- tíð. Jeffs hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV. FÓTBOLTI Guðjón Baldvinsson, leik- maður Stjörnunnar, mun að öllum líkindum ganga til liðs við norska félagið Bodö/Glimt áður en félaga- skiptaglugginn rennur út á morg- un á Norðurlöndunum. Guðjón var markahæsti leikmaður 2. deildar- innar á síðasta tímabili og var val- inn besti sem og efnilegasti leik- maður deildarinnar en hann er tvítugur að aldri og er kominn í U21 árs landslið Íslands. „Aðstæðurnar hérna eru eins og best verður á kosið. Hér er allt til fyrirmyndar og mér hefur gengið mjög vel á æfingunum hérna. Ég vonast til að ná að semja við liðið og vonandi ganga samn- ingaviðræðurnar við Stjörnuna vel,“ sagði Guðjón við Fréttablað- ið í gær. „Umhverfið hérna er svipað og á Íslandi svo þetta er engin gífur- leg breyting, fyrir utan aðstæð- urnar. Hér eru allir jákvæðir og almennilegir, mér hefur verið tekið mjög vel og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að semja við liðið,” sagði Guðjón. Jafnframt sagði Kent Bergensen þjálfari Bodö/ Glimt sagði við Fréttablaðið í gær að hann hefði hrifist mjög af Guð- jóni á æfingum undanfarið. - hþh Guðjón Baldvinsson: Á leiðinni til Bodö/Glimt GUÐJÓN BALDVINSSON Fagnar hér marki sínu gegn Leikni síðasta sumar en bæði lið fóru upp úr 2. deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/MATTHÍAS ÆGISSON FÖSTUDAGUR 31. mars 2006 47

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.