Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 2
2 9. apríl 2006 SUNNUDAGUR
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar-
innar, sagði á flokksstjórnarfundi
á Nordica Hotel í gær að Sam-
fylkingin ætti að stefna að því að
bjóða fram undir eigin merkjum
í öllum sveitarfélögum í næstu
sveitarstjórnarkosningum. Kosn-
ingabandalög við önnur félags-
hyggjuöfl gætu verið vænleg og
þeim ætti ekki að rifta. Það væri
heimamanna að meta hverju sinni
hvort starfa skyldi með öðrum
félagshyggjuöflum.
Ingibjörg sagði að á síðast-
liðnum áratug hefði verið vegið
að grunngildum samfélagsins og
áherslan lögð á einstaklinginn.
Hefði því fylgt aukinn ójöfnuður
og óróleiki. „Ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar ber
ábyrgð á þessu. Það hefur bein-
línis verið stefna stjórnarinnar
að draga úr samábyrgð með því
að lækka skattbyrði þeirra sem
best eru settir meðan skattbyrði
annarra þyngist,“ sagði hún og
lagði áherslu á að í samfélagi þar
sem velsæld væri mættu aldraðir
hjúkrunarsjúklingar á ríkisstofn-
unum búa við úrræðaskort en
konur sem sinntu þeim væru vart
matvinnungar vegna láglauna-
stefnunnar sem þar væri rekin.
Þá gagnrýndi Ingibjörg ríkis-
stjórnina harðlega og sagði auð-
linda-, efnahags- og varnarmál í
óvissu. Ættu stóriðjuframkvæmd-
ir drjúgan þátt í þenslu hagkerf-
isins. „Ég ætla að halda því fram
að íslenskt efnahagslíf sé að fara
fjandans til en ég ætla eins og oft
áður að vara við þeim váboðum
sem ættu að vera sýnilegir öllum
sem sjá vilja,“ sagði hún og benti
á mikinn viðskiptahalla, miklar
erlendar skuldir þjóðarbúsins og
sterkt gengi krónunnar. Spáði hún
því að fram undan væri ekki verð-
bólguskot heldur verðbólguskeið,
sem meðal annars myndi leiða til
hækkunar matvöruverðs.
Jafnframt sagði hún að legið
hefði fyrir í þrettán ár að banda-
ríski herinn færi með herþotur
sínar og þyrlur frá Íslandi.
Í stað þess að horfast í augu
við það og bregðast við hefði
ríkisstjórnin stungið höfðinu í
sandinn. „Þegar til framtíðar er
litið hljótum við að stefna að því
að eiga öryggissamfélag með
Evrópu í framtíðinni fremur en
Bandaríkjunum,“ sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir.
jonab@frettabladid.is
Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur
helmingi minni viðbættan sykur og fitu
en hefðbundin Kókómjólk og orkuinni-
haldið er fjórðungi lægra.
Yfir 80% af mjólkursykrinum hafa verið
klofin og hentar drykkurinn því flestum
þeim sem hafa mjólkursykursóþol.
Sykurskert Kókómjólk
er helmingi léttari!
Nýjung!
ÁRSREIKNINGUR SAMFYLKINGAR
Rekstur og tekjur: 2005 2004
Rekstrartekjur 91.378.436 83.704.998
Rekstrargjöld 27.016.232 42.594.441
Fjármunatekjur og
Fjármagnsgjöld 5.337.890 4.838.360
Skattar: 111.078 46.199
Rekstrarafgangur: 21.567.263 37.709.882
Eigið fé og skuldir:
Eigið fé 4.047.088 65.646.270
Langtímaskuldir 14.022.819 36.386.372
Skammt. skuldir 36.396.233 37.512.360
Skuldir samtals: 50.419.052 73.898.732
Fíkniefnamál í Borgarnesi Tvö
fíkniefnamál komu upp í Borgarnesi
í fyrrinótt. Málin voru ótengd og í
hvorugu tilfellinu var um mikið magn
að ræða.
Fjórir stútar í Reykjavík Lögreglan í
Reykjavík stöðvaði fjóra ökumenn vegna
ölvunaraksturs í fyrrinótt.
Bíll valt Bílvelta varð við Geirsnes í
gær en að sögn lögreglu var ökumaður-
inn einn í bílnum og er hann ómeiddur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MINSK, AP Alexander Lúkasjenkó,
forseti Hvíta-Rússlands, sór emb-
ættiseið í þriðja sinn við hátíðlega
athöfn í gær að viðstöddum þús-
undum embættis- og þingmanna.
Athöfnin fór fram í Lýðveldishöll-
inni í Minsk sem laganna verðir
umkringdu og gættu þess að
almenningur kæmist ekki að.
Lúkasjenkó var endurkjörinn í
kosningum hinn 19. mars en marg-
ir hafa fordæmd forsetakosning-
arnar og sagt þær óheiðarlegar og
ólýðræðislegar. Á föstudag leysti
lögreglan upp mótmæli gegn Lúka-
sjenkó í miðborg höfuðborgarinn-
ar. Búist er við að Evrópusamband-
ið muni mótmæla kosningunum
með því að meina forsetanum og 31
öðrum háttsettum embættismönn-
um um vegabréfsáritun til landa
sambandsins. - bs
Forseti Hvíta-Rússlands:
Lúkasjenkó sór
embættiseið
ISTANBÚL, AP Tyrkneska lögreglan
hefur handtekið Kúrda sem grun-
aður er um að hafa orðið fimm að
bana, þar á meðal breskum og írsk-
um ferðamönnum, í sprengjutil-
ræði í bænum Kusadasi við Eyja-
haf í fyrra. Maðurinn er sagður
vera félagi í Verkamannaflokki
Kúrda, sem hefur barist fyrir sjálf-
ræði Kúrda í Suðaustur-Tyrklandi í
tvo áratugi og er bannaður.
Lögreglan hafði fylgst með ferð-
um mannsins í níu mánuði, en hann
mun meðal annars hafa farið í þjálf-
unarbúðir í Írak og var talið að
hann hefði annað sprengjutilræði í
bígerð. Styrinn milli Kúrda og tyrk-
neskra hermanna undanfarnar
vikur er sá mesti í nokkra áratugi
og tugir hafa fallið í átökunum. ■
Sprengjuárás í Tyrklandi:
Kúrdi í haldi
Skuldir Samfylkingarinnar námu
rúmum 50,4 milljónum króna við
lok síðasta árs. Þetta kemur fram í
ársreikningum flokksins, sem lagðir
voru fyrir flokkstjórnarfund Samfylk-
ingarinnar í gær.
Ari Skúlason, gjaldkeri flokksins,
segir skuldirnar að mestu komnar
frá þeim flokkum sem mynduðu
Samfylkinguna: Alþýðubandalagi,
Alþýðuflokki og Kvennalista. Sé
rekstrarafgangur hvers árs nýttur til
niðurgreiðslu skuldanna og búist við
að eftir fimm ár verði búið að greiða
þær upp að fullu. - jab
Ársreikningar Samfylkingar:
Greiðir lán
eldri flokka
ALEXANDER LÚKASJENKÓ Margir hafa
fordæmt kosningarnar sem haldnar voru
19. mars.
Íslenskt efnahagslíf
að fara til fjandans
Ríkisstjórnin ber ábyrgð á ójöfnuði og óróleika, að sögn formanns Samfylkingar-
innar. Framundan er verðbólguskeið og íslenskt efnahagslíf er að fara til fjand-
ans. Ísland á fremur samleið með Evrópu en Bandaríkjunum í varnarmálum.
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR For-
maður Samfylking-
arinnar sagði meðal
annars að skipulag
flokksstarfsins væri
að komast í fastari
skorður en áður og
þakkaði það Skúla
Helgasyni, nýjum
framkvæmdastjóra
flokksins, sem
kom til starfa um
áramótin.
BANDARÍKIN Blaðamaður banda-
ríska tímaritsins The New Yor-
ker fullyrðir að stjórnvöld þar í
landi undirbúi kjarnorkuárás á
Íran. Greinin birtist á heimasíðu
blaðsins í gær. Blaðamaðurinn
Seymour Hersh hefur eftir heim-
ildum, sem hann segir áreiðan-
legar, að Íraksstríðið hafi verið
leið í átt að stjórnarskiptum í
Íran og að Bandaríkjamenn hygg-
ist ráðast inn í landið til að koma
í veg fyrir að Íranar verði sér úti
um kjarnorkuvopn.
Hersh fullyrðir að bandarísk
stjórnvöld séu reiðubúin að beita
litlum kjarnorkusprengjum til að
eyðileggja neðanjarðarbyrgi
Írana, en talið er að þeir búi yfir
stórum byrgjum þar sem hægt sé
að búa til og geyma kjarnorku-
vopn í felum fyrir alþjóðlegum
eftirlitsstofnunum.
Hersh hefur eftir fyrrverandi
leyniþjónustumanni að árás af
því tagi sem um ræði þurfi að
vera hörð, því skotmörkin séu
mörg. Þá segir fyrrum embættis-
maður úr bandaríska varnar-
málaráðuneytinu að trú manna sé
að sprengjuárásir af þessu tagi
muni grafa undan veldi klerka-
stjórnarinnar og almenningur
muni rísa gegn henni í eitt skipti
fyrir öll. ■
Bandarískt tímarit segir meiriháttar stríðsátök í aðsigi:
Bush undirbýr kjarnorkuárás
SEYMOUR HERSH Blaðamaðurinn segir
bandarísk stjórnvöld ætla að ráðast inn í Íran.
SLYS Björgunarsveitir af Suður-
landi voru kallaðar út eftir að vél-
sleðamaður féll um það bil tuttugu
metra þegar hann fór fram af
hengju við Strút um þrjúleytið
í gær. Þrjátíu björgunarsveit-
armenn á fjórtán vélsleðum og
fimm björgunarsveitarbílum fóru
á staðinn auk þess sem þyrla land-
helgisgæslunnar, TF-SIF, var köll-
uð út. Þyrlan var komin á slysstað
um 17.25 en vegna þrengsla gat
hún ekki lent þar svo sækja þurfti
manninn og flytja hann í þyrluna,
sem fór með hann á sjúkrahús.
Maðurinn hafði verið á ferð með
stórum hópi vélsleðamanna þegar
slysið átti sér stað.
Um miðjan dag í gær féll bíll með
ferðamönnum ofan í sprungu á
Mýrdalsjökli. Engin meiðsl urðu
á fólki en hjálparsveitin og lög-
reglan á Hellu fóru á snjóbíl og
jeppum upp á jökulinn og aðstoð-
uðu fólkið við að ná bílnum upp úr
sprungunni. - eö
Björgunarsveitir af Suðurlandi kallaðar út:
Féll fram af hengju við Strút
TF-SIF Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að sækja vélsleðamanninn og flytja hann á
sjúkrahús. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SPURNING DAGSINS
Addi, ætlarðu að taka Snorra
í læri?
„Já. Hann hefur margt til brunns að
bera en ég gæti kennt honum sitt lítið
af hverju.“
Addi Idol hefur gert garðinn frægan í
auglýsingum OgVodafone og tók þátt í
undakeppni Idol-stjörnuleitarinnar. Snorri
Snorrason var í fyrradag kjörinn Idol-stjarna
Stöðvar 2.