Fréttablaðið - 09.04.2006, Page 16
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Axel Eiríksson
Reykási 23, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn
11. apríl kl. 13.00.
Eiríkur Axelsson
Guðbrandur R. Axelsson Margrét A. Axelsson
Unnur Ósk, Richard Már.
Okkar elskulegi bróðir og vinur
Sigurður Demetz Franzson
andaðist að morgni 7. apríl á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. F.h. systkina, annarra aðstandenda og vina,
Eygló Friðriksdóttir
Guðbjörg Sigurjónsdóttir
Magnús Ólafsson
Walter Jónsson.
Á dögunum var Félagi les-
blindra úthlutað fjórum og
hálfri milljón króna í styrk
frá Velferðarsjóði barna. Að
sögn Guðmundar Johnsen,
formanns félagsins, kemur
styrkurinn sér mjög vel og
er stefnt að því að grunn-
skólanemar með lesblindu
njóti fyrst og fremst góðs af
honum.
„Styrkurinn auðveldar
okkar starf gríðarlega mikið
því félagið hefur enga fasta
innkomu. Stærsta verkefnið
sem við erum að vinna að er
að flýta fyrir greiningu á
lesblindu. Því fyrr sem
greiningin kemur, því betra
er að vinna úr henni,“ segir
Guðmundur. Að mati Guð-
mundar er gríðarlega mikil-
vægt að lesblind börn séu
ekki látin dúsa í skólum í
mörg ár án þess að gerðar
séu viðeigandi ráðstafanir.
„Lesblind börn hafa ekkert
að gera í skólakerfi þar sem
textar eru aðalkennsluefn-
ið. Hægt er að bera þetta
saman við að vera í bekk
þar sem allir textarnir eru á
kínversku. Ef börn þurfa að
sitja í nokkur ár án þess að
skilja neitt verða þau bara
óróleg.“
Brögð eru að því að fólk
sé komið á þrítugsaldur
áður en lesblindan greinist
og segir Guðmundur að það
sé grafalvarlegt mál. „Ein-
staklingurinn bíður mikið
tjón ef lesblindan er ekki
greind. Þannig myndast
gríðarlegt þekkingargap
því fólk fer í gegnum skóla-
kerfið án þess að hafa
aðgang að því sem það á að
læra. Lestur er nefnilega
bara tæki til að læra en alls
ekki skilyrði fyrir því að
hægt sé að læra.“ Þessa
staðreynd eiga margir erf-
itt með að sætta sig við því
Guðmundur segir að samfé-
lagið geri kröfu til þess að
fólk lesi. „Bókaþjóðinni
þykir sjáfsagt að fólk lesi
og skrifi án erfiðleika og
klári þrjátíu bækur yfir
jólin. Ef fólk gerir lítið af
því er það náttúrlega bara
vitlaust. Því miður er mjög
útbreitt viðhorf til lesblindu
að það sé bara heimska og
hefur verið nánast frá því
að upplýsingabyltingin
byrjaði.“
Lesblindir eiga aftur á
móti ekkert erfiðara með að
tileinka sér þekkingu ef þeir
fá til þess rétt tæki. „Ég fór
til dæmis sjálfur í gegnum
Háskóla Íslands með hljóð-
bókum. Eftir að ég fór að
nota þær gat ég mætt lesinn
í próf, sem var alveg ótrú-
legur munur. Áður var
maður að reyna að lesa en
það gengur bara svo hægt
og oft þegar komið er á
hærri skólastig ræður fólk
ekki við það,“ segir Guð-
mundur.
Hann ítrekar enn og
aftur að rétt greining gegni
lykilhlutverki svo hægt sé
að láta nemendur hafa þessi
tæki. „Við erum nýbúin að
fá í hendurnar bók sem við
ætlum að gefa öllum skól-
um landsins. Hún fjallar um
vandamál lesblindra út frá
sjónarhóli lesblindra og
hvernig hægt er að flýta
greiningunni með því að
horfa í ákveðin atriði og
hafa þannig augun opin
fyrir vandamálinu.“
FÉLAG LESBLINDRA: HLÝTUR STYRK ÚR VELFERÐARSJÓÐI BARNA
Hægt að læra án þess að lesa
GUÐMUNDUR JOHNSEN, FORMAÐUR FÉLAGS LESBLINDRA Hægt er að flýta fyrir greiningu á lesblindu með því að
hafa augun opin. Guðmundur segir að þannig sé hægt að koma í veg fyrir gríðarlegt þekkingartap hjá einstakling-
um sem fari annars gegnum skólakerfið án þess að hafa aðgang að þekkingunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ F60060406
Á þessum degi réðst fjöldi hryðju-
verkamanna inn í þorpið Deír
Jassín í Palestínu og myrti íbúa
þess. Fjöldamorðin voru framin af
öfgahópum gyðinga í aðdraganda
þess að Ísraelsríki var stofnað og
stóðu yfir í þrjá daga. Bærinn Deír
Jassín var byggður af arabískum
fjölskyldum og er hann í nágrenni
við Jerúsalem.
Frá því í desember 1947 þegar
Bretar yfirgáfu þessa fyrrum
nýlendu sína höfðu gyðingar og
arabar innan Palestínu barist hart.
Engin raunveruleg stjórn var í
landinu og því var enginn sem gat
tekið í taumana á hópunum sem
skiptust á að hefna fyrir árásir hins.
Í lok mars hafði aröbunum tekist
að sprengja veginn milli Tel Avív
og vesturhverfa Jerúsalem og
þannig tekist að hefja umsátur
um sextán prósent gyðinga á
svæðinu.
Umsátrið um Jerúsalem
tvíefldi gyðingana, sem lögðu
í stóra hernaðaraðgerð til að
losa Jerúsalem undan umsátri
arabanna. Hernaðaraðgerðin fór
úr böndunum í Deír Jassín og
er talið að eitt til tvö hundruð
óbreyttir borgarar, konur og börn
til jafns við karla, hafi þar verið
myrtir á hrottafenginn hátt.
ÞETTA GERÐIST: 9. APRÍL 1948
Fjöldamorð í Deír Jassín
Frá Palestínu
Náttúrufræðistofnun Íslands
hefur opnað almenningi
aðgang að svonefndri plöntu-
vefsjá. Er það liður í lang-
tímamarkmiði stofnunarinn-
ar sem er að veita aðgang að
gagnasöfnum og vera í
fremstu röð í miðlun upplýs-
inga um náttúru Íslands á
netinu.
Í plöntuvefsjánni er hægt
að leita eftir íslensku eða lat-
nesku plöntuheiti og örnefn-
um, vefsjáin birtir útbreiðslu-
kort yfir tegundir háplantna,
mosa, fléttna, sveppa og þör-
unga á Íslandi og sækir teg-
undalista fyrir valin svæði. Í
vefsjánni er einnig hægt að
kalla fram staðreyndasíður
fyrir allar tegundir háplantna
og margar tegundir mosa,
fléttna, sveppa og þörunga.
Við opnun eru tiltækar um
1.000 staðreyndasíður um
jafnmargar plöntutegundir
en staðreyndasíða inniheldur
lýsingu á tegundinni, ljós-
myndir, flokkunarfræðilega
röðun tegundar, upplýsingar
um búsvæði og útbreiðslu
ásamt fróðleik um skaðsemi
og nytjar hennar.
Plöntuvefsjáin á eftir að
þróast á komandi árum og í
næsta áfanga hennar er stefnt
að því að veita aðgang að upp-
lýsingum um gróðurlendi og
gróðurvistgerðir á Íslandi. Þá
er undirbúningur að fleiri
vefsjám þegar hafinn og
stefnir Náttúrufræðistofnun
að því að opna næst Fugla-
vefsjá og Smádýravefsjá.
Plöntuvefsjá opnuð almenningi
PLÖNTUVEFSJÁIN slóðin er ni.is/vefsja
MERKISATBURÐIR
1667 Fyrsta opinbera listasýning-
in opnuð í París.
1682 René-Robert Cavelier de
La Salle slær franskri eign á
Mississippi-dalinn og kallar
hann Louisiane.
1940 Þýskalands ræðst inn í
Noreg og Danmörku.
1967 Fyrsta Boeing 737 fer í
jómfrúarflug sitt.
1981 Stutt Heklugos hefst en
tæpt ár er þá liðið frá
síðasta gosi.
1991 Georgía lýsir yfir sjálfstæði
frá Sovétríkjunum.
2002 Jarðarför Elísabetar
drottningarmóður fer fram
frá Westminster Abbey í
London.
2005 Karl Bretaprins giftist Kam-
illu Parker Bowles.
ANDREA DWORKIN (1946-2005) LÉST
ÞENNAN DAG
„Kventíska er fegrunarheiti yfir
tísku sem sköpuð er af körlum
fyrir konur.“
Femínistinn Andrea Dworkin barðist í ræðu og
riti fyrir jafnrétti kynjanna.
AFMÆLI
Atli
Ágústsson
fyrrverandi
deildarstjóri
er 75 ára.
Guðni Ágústs-
son þingmaður
og ráðherra er
57 ára.
Sveinn
Hannesson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins er
56 ára.
Jens Andrésson
formaður SFR er
54 ára.
ANDLÁT
Aðalgeir Olgeirsson, frá Húsavík,
Háholti 1, Hafnarfirði, lést á Land-
spítalanum Hringbraut fimmtu-
daginn 6. apríl.
Anna J. Jónsdóttir, Sóltúni 2,
Reykjavík, áður Skipagötu 2,
Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni miðvikudaginn 5. apríl.
Elín Guðjónsdóttir, Lindartúni,
lést á Kirkjuhvoli Hvolsvelli mið-
vikudaginn 5. apríl.
Guðríður R. Bjarnadótir Franzén,
Gautaborg, lést mánudaginn 3.
apríl.
Magnúsína Guðrún Sveinsdóttir,
Gnoðarvogi 20, Reykjavík, lést
á gjörgæsludeild Landspítalans
föstudaginn 7. apríl.
Rut Gunnarsdóttir lést á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 5. apríl.
Sigurður Demetz Franzson and-
aðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 7. apríl.
Unnur Pálsdóttir, Fróðastöðum,
andaðist á Sjúkrahús Akraness
miðvikudaginn 5. apríl.