Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 18
Sumarferðir láta lítið yfir sér. Skrifstofan er á efri hæð verslunarhúss við Laugaveg
en þangað leggja fáir leið sína. Þó
húsnæðið sé lítið hefur það
stækkað talsvert frá upphafs-
dögunum þegar það taldi fimmtán
fermetra. Þá voru starfsmennirnir
þrír. „Það komst aðeins einn
viðskiptavinur fyrir hjá okkur í
einu. Ef hingað komu hjón urðu
þau að skiptast á að sitja inni hjá
okkur,“ segir Helgi um aðstöðuna
fyrsta árið.
Þannig vildu þeir hafa það en
eftir því sem umsvifin hafa aukist
hefur þurft að fjölga starfsmönnum
og nú eru þeir sjö. Þjónustan er
fyrst og fremst veitt í gegnum
netið og síma en alltaf vilja
einhverjir koma og hitta
starfsfólkið augliti til auglitis. Og
sjá það sem er í boði í tölvum
fyrirtækisins. „Fólk var efins um
að það sama sæist í tölvunum hjá
okkur og því og vildi því koma.
Þetta var svolítið ströggl en hefur
breyst á þessum þremur árum.“
Allt gert öðruvísi
Sumarferðir voru teiknaðar upp
við eldhúsborðið heima hjá Helga
og á kaffistofu Norræna hússins.
Stofnendurnir; Helgi Jóhannsson
og Þorsteinn Guðjónsson, gamlir
samstarfsmenn á Samvinnu-
ferðum, beittu sérstakri aðferð
við verkið. „Við listuðum upp það
sem við vissum að ekki væri hægt
að breyta og unnum með það
þangað til það var horfið af
borðinu.“ Hugmyndin var því að
gera hlutina akkúrat á skjön við
það sem viðtekið var í
ferðaþjónustunni. „Keppinaut-
arnir gerðu grín að okkur í upphafi
en hafa nú tekið ýmislegt upp eftir
okkur,“ segir Helgi.
Meðal þess sem töldust
nýmæli voru greiðsluskilmál-
arnir. Viðskiptavinir greiða
aldrei minna en helming verðsins
við bókun ferðar og þurfa að
ákveða um leið hvenær þeir
greiða það sem eftir stendur.
Staðfestingargjald og skilmálar
um afslátt, ef afgangurinn er
greiddur fyrir tiltekinn tíma, eru
ekki til í bókum Sumarferða.
Helgi segir mikið sparast við
þetta fyrirkomulag enda verði
allt utanumhald auðveldara. En
það kostar líka sitt. „Fólk sagði
að það gæti hagað greiðslum
öðruvísi hjá öðrum en við
svöruðum því til að þá gæti það
bara ferðast með einhverjum
öðrum.“
Sumarferðir smíðuðu líka eigið
bókunarkerfi og auglýsingar
félagsins eru minni en annarra.
En svo er það hin hliðin á
peningnum. „Við veitum ekki jafn
góða þjónustu og aðrir en vinnum
að því að bæta hana,“ segir Helgi.
Ýmsu er úthýst, þar á meðal
símsölunni, sem hefur kosti og
galla. „Við getum haft opið til tíu á
kvöldin sjö daga vikunnar en þeir
sem svara í símann geta ekki
svarað öllum spurningum.“ Helgi
segir það hafa stundum skapað
vandræði, fólk gat til dæmis illa
svarað hvort svalirnar á hótelinu
sneru í suður eða ekki. „Stundum
reyndu menn að bjarga sér en við
fengum það á 200 kílómetra hraða
í hausinn.“
Tekur á móti farþegunum
Helgi segir trúverðugleika
ferðaþjónustunnar hafa beðið
hnekki og eitt af markmiðum
Sumarferða sé að vekja tiltrú fólks
á ný. „Það er búið að plata fólk svo
oft með villandi uppsetningu á
verði eða einhverju sem lofað er en
er svo ekki til staðar. Og allt þetta
smáa letur. Ef fólk borgaði degi of
seint var ferðin orðin miklu dýrari
en áður var rætt um. Menn hafa
leikið þennan leik og kennt um
samkeppni. Sagt aðra gera þetta og
gert það því líka.“ Helgi viðurkennir
að hafa tekið þátt í þessu á sínum
tíma en segir nýja tíma í þessu sem
öðru. „Hluti af því að endurheimta
trúverðugleikann er að ég fylgi
öllum farþegum í flug og tek á móti
þeim þegar þeir koma aftur heim.
Menn sögðu: Ef hann þorir að vera
hér þegar ég kem heim aftur þá
getur verið að þetta sé í lagi hjá
þeim.“ Hann viðurkennir að þetta
sé örðugara nú en í upphafi, enda
hafi ferðunum fjölgað. „Við
fljúgum sex sinnum í viku en ég
græði mikið á því að tala við fólk
þegar ég tek á móti því.“
Sólarlandafarar vildu ekki hótel
Helgi hefur árum saman haft
lifibrauð sitt af því að selja fólki
ferðir til útlanda og vitaskuld velt
ýmsu fyrir sér. Lengi klóraði
hann sér í kollinum yfir þeirri
staðreynd að Íslendingar vildu
ekki dvelja á hótelum í
sumarfríum heldur kusu að vera í
íbúðum með ísskáp og
eldavélarhellu. „Ég hugsaði mikið
um þetta og komst loks að því að
það var ísskápurinn. Fólk dvaldi
ekki í íbúðum til að geta eldað
heldur vildi það hafa hjá sér kalt
vatn og bjór. Við fórum því og
sömdum við glæsilegt hótel á
Benidorm og sögðumst vilja nota
minibarinn sem ísskáp. Þeim
fannst við ekki mjög merkilegir
enda ekki heyrt svona áður en þá
vantaði viðskipti og slógu til.
Stundum sögðu karlmenn
reyndar: Okkur finnst svo gaman
að elda annað slagið en
eiginkonunum varð þá litið á þá og
spurðu: Okkur? Það voru auðvitað
þær sem sáu um það. Ég hvatti
fólk til að hætta þessu bara og
vera bæði í fríi.“
Helgi segir að fyrir fjórum
árum hafi um fimm prósent
sólarlandafarþega dvalið á hótel-
um en það hafi breyst og um sextíu
prósent farþega Sumarferða
dvelji nú á hótelum. „Keppinaut-
arnir sögðu nú ekki mikið vit í
þessu í upphafi en bjóða nú allir
upp á þetta,“ segir hann og hlær.
Ferðaskrifstofa Íslands keypt
Fyrr á árinu keyptu Helgi og félagar
Ferðaskrifstofu Íslands, sem á og
rekur Úrval Útsýn og Plúsferðir, af
FL Group. Viðskiptin vöktu að
vonum athygli enda má segja að
Davíð hafi keypt Golíat. En hvernig
stóð á þessum kaupum? „Margir
hvöttu okkur til að færa út þjónustu
Sumarferða og bjóða upp á annars
konar ferðir en þær sem við bjóðum
upp á í dag. Okkur fannst það
spennandi en vildum ekki breyta
okkar starfsemi. Við heyrðum svo
að skrifstofurnar væru til sölu og
skoðuðum málið. Með kaupunum
styttum við okkur leið, þetta eru
traust fyrirtæki og við getum bæði
lært af því sem þar er gert og
innleitt okkar hugmyndir.“
Helgi viðurkennir að það hafi
verið sérstök tilfinning að ganga
innum dyr Úrvals Útsýnar sem
eigandi enda var skrifstofan einn
helsti keppinautur Samvinnuferða
á sínum tíma. Nokkur munur var á
ímynd skrifstofanna og minnist
Helgi til dæmis þess tíma þegar
Ingólfur Guðbrandsson stýrði
Útsýn. „Ingólfur var helst með
sjálfan sig og glæsilegar konur á
forsíðu ferðabæklinganna sinna
en við sýndum hótel og fjallasýn
og eitthvað svoleiðis. Á blaðamanna-
fundi var Ingólfur spurður út í
þennan mun og svaraði því til að
fallegt fólk ferðaðist ekki með
Samvinnuferðum. Svo bað hann
um næstu spurningu.“
Ferðist og megrist
Í harðri samkeppninni var margt
reynt til að laða til sín viðskiptavini
og meðal annars útbúnar ýmsar
sérferðir. Helgi rifjar upp eina
slíka. „Okkur fannst „ferðist og
megrist“ frábær hugmynd. Fólk
fór til Júgóslavíu í þrjár vikur og
fékk nálastungu á flugvellinum
frá þekktum lækni. Nálastungan
átti að hafa þau áhrif að fólk hafði
ekki lyst á neinu næstu þrjár vik-
urnar. Þetta sló nú ekki í gegn,“
segir hann og hlær.
Helgi viðurkennir einnig að
sér finnist þær breytingar sem
orðið hafa á FL Group og
Icelandair sérstakt fagnaðarefni
fyrir ferðaþjónustuna. „Það er
ofboðslega skemmtileg breyting
sem hefur orðið þar á. Áður var
félagið ekki bara fyrirferðamikið
heldur bjó yfir drottnunaráráttu;
enginn mátti gera neitt nema
spyrja Flugleiðir og þeir níddust
á öðrum í krafti stærðar sinnar.
Þetta bitnaði á fólki og ekki síður
á atvinnugreininni. Flugleiðir
vildu hafa allt; ferðaskrifstof-
urnar, bílaleigubílana, hótelin,
allt.“ Nú eru nýir menn við stjórn-
völinn í FL Group og Icelandair
og Helgi segir allt annað uppi á
teningnum. „Þessir menn eru
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR18
Ferðalög eiga ekki að vera forrét tindi
Þremur árum eftir að Helgi Jóhannsson hætti hjá
Samvinnuferðum Landsýn með þau orð á vörum
að hann væri hættur afskiptum af ferðaþjón-
ustu stofnaði hann Sumarferðir. Þriggja ára saga
Sumarferða er ævintýri líkust en þó umsvifin
hafi aukist til muna situr Helgi enn við minnsta
skrifborð landsins. Björn Þór Sigbjörnsson tók hús
á Helga og spjallaði við hann um ferðaþjónstuna,
hugmyndafræði Sumarferða, kaupin á Ferðaskrif-
stofu Íslands og „ferðist og megrist“ sem sló ekki í
gegn á sínum tíma.
HELGI JÓHANNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI SUMARFERÐA „Ég hef lengi verið haldinn þeirri áráttu að ferðalög eigi ekki að vera forréttindi
heldur ættu allir að eiga kost á því að ferðast til útlanda.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Okkur fannst „ferðist
og megrist“ frábær
hugmynd. Fólk fór til
Júgóslavíu í þrjár vikur
og fékk nálastungu á
flugvellinum frá þekkt-
um lækni. Nálastung-
an átti að hafa þau
áhrif að fólk hafði ekki
lyst á neinu næstu
þrjár vikurnar. Þetta
sló nú ekki í gegn.“