Fréttablaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 60
RAÐAUGLÝSINGAR
18
ATVINNA ÓSKAST
TIL LEIGU
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR
SUÐURLANDSVEGUR
S U N N U M Ö R K
BR
EI
ÐA
M
ÖR
K
AUSTURMÖRK
ÞO
RL
ÁK
SH
AF
NA
RV
EG
UR
M Á N A M Ö R K
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
ráðstöfuð lóð
ráðstöfuð lóð
ráðstöfuð lóð
ráðstöfuð lóð
1
3
5
7
6
fyrirhugað íbúðasvæði
EDEN
H V E R A G E R Ð I S B Æ R
H V E R A G E R Ð I S B Æ R
Byggingarréttur á athafnalóðum í Hveragerði
Hveragerðisbær óskar hér með eftir tilboðum í byggingarrétt á lóð nr. 6 við Sunnumörk og lóðum nr. 1, 3, 5 og 7 við Mánamörk í Hveragerði. Lóðirnar eru skammt austan
við verslunarmiðstöð við Sunnumörk og norðan Suðurlandsvegar. Þessa dagana er verið að vinna að gatnagerð á svæðinu sem lokið verður við í júní nk. Samkvæmt
gildandi aðalskipulagi er heimilt að nýta lóðirnar sem athafna-, verslunar- og eða stofnanalóðir. Í tillögu að nýju aðalskipulagi eru lóðir þessar sýndar á miðsvæði.
Samþykkt deiliskipulag liggur fyrir af lóðunum. Skipulag svæðisins boðar að nýtingarhlutfall lóðanna skuli vera á bilinu 0,3-0,8.
Lóð nr. 6 við Sunnumörk er 5.135 m² að stærð. Lóð nr. 1 við Mánamörk er 1.630 m², nr. 3 er 1.581 m², lóð nr. 5 er 1.530 m² og lóð nr. 7 er 2.043 m² að stærð. Óskað er
eftir tilboðum í byggingarétt á lóðunum í því ástandi sem þær eru eftir að efnislager sem á þeim stendur í hefur verið fjarlægður. Lóðirnar verða byggingarhæfar 1. ágúst
2006.
Byggingarréttur á lóðunum verður seldur til þess aðila sem valinn verður úr hópi tilboðsgjafa. Byggingarleyfis-, gatnagerðar-, stofn- og þjónustugjöld tæknideildar skulu
ekki innifalin í tilboðsfjárhæð og mun því Hveragerðisbær innheimta þau gjöld síðar í samræmi við gjaldskrá Hveragerðisbæjar.
Við val á tilboðum mun bæjarstjórn styðjast við eftirfarandi atriði:
Tilboðsfjárhæð.
Fjárhagslega stöðu tilboðsgjafa
Reynslu og hæfi tilboðsgjafa sem byggingaraðila.
Áform tilboðsgjafa s.s. um uppbyggingu, atvinnusköpun og fyrirhugaða starfsemi á lóð.
Önnur atriði sem tilboðsgjafi telur að geti komið honum að gagni.
Bjóðendum er heimilt að gera tilboð í byggingarrétt á fleiri lóðum en einni. Þó verður að öllu jöfnu miðað við að sami aðili fái ekki fleiri en einn byggingarrétt í sinn hlut.
Tilboðum skulu fylgja ítarleg gögn er lúta að ofangreindum atriðum. Bæjarstjórn áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skal skilað í
lokuðu umslagi á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Sunnumörk 2, 810 Hveragerði, ekki síðar en miðvikudaginn 19. apríl 2006 kl. 11:00 og verða þau þá opnuð að
viðstöddum þeim tilboðsgjöfum sem þess óska.
Tilboðsblöð, skipulagsskilmála og nánari upplýsingar má nálgast hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofum
Hveragerðisbæjar í síma 483 4000.
Hveragerðisbær
H V E R A G E R Ð I S B Æ R
F.h. Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar – mannvirkjaskrifstofu:
Gangstígar og ræktun 2006
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, frá og með þriðju-
deginum 11. apríl 2006, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss
Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 25. apríl 2006, kl. 15:00,
í Ráðhúsi Reykjavíkur.
10716
__________________________________________________
Klébergsskóli Kjalarnesi, 1. áfangi – gerð skólalóðar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, frá kl. 13:00 þriðju-
daginn 11. apríl 2006, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss
Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 3. maí 2006, kl. 10:00, í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
10733
__________________________________________________
Hlíðaskóli 1. áfangi endurgerð skólalóðar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000, frá kl. 13:00, þriðju-
daginn 11. apríl 2006, í upplýsingarþjónustu Ráðhúss
Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 3. maí kl. 10:30, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
10734
__________________________________________________
ÍR – Gervigrasvöllur, 2. áfangi. Jarðvinna,
snjóbræðsla, girðing, tæknihús ofl.
Útboðsgögn eru seld á kr. 3.000, í upplýsingarþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 26. apríl 2006 kl. 10:00, í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
10708
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
F.h. SORPU b.s er óskað eftir
tilboðum í tætara fyrir óflokkað sorp
Tætarinn skal afkasta að minnsta
kosti 30 tonnum af sorpi á
klukkustund miðað við sorp sem er
erfitt að tæta, svo sem teppi, dýnur,
timbur, stórar pappírsrúllur, plastkör
og þessháttar. Útboðsgögn á ensku
fást á Verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns (VGK) Laugavegi 178, frá
og með þriðjudeginum 11.apríl 2006.
Tilboðum skal skilað til VGK eigi
síðar en 16. maí 2006 kl. 16:00.
Hveragerðisbær
Sunnumörk 2
810 Hveragerði
Bréfasími: 483 4801
Netfang: hve@hveragerdi.is
HVERAGERÐISBÆR ÚTBOÐ
ÍÞRÓTTAHÚS HVERAGERÐI
Viðhald utanhúss
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í viðgerðir, viðhald,
háþrýstiþvott og málun veggja íþróttahúss í Hveragerði,
utanhúss.
Upphaf verks: 1. júní 2006
Verklok: 15. ágúst 2006
Flatarmál útveggja er um 1.100 m2
Útboðsgögn eru afhent frá og með mánudeginum 10. apríl, e.h., á
skrifstofu Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2, gegn 2.000.- kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 25. apríl 2006, kl 11:00.
Bæjarstjórinn í Hveragerði
Matreiðslumaður
óskar eftir starfi. Með mikla reynslu, stundvís
og reglusamur. Margt kemur til greina.
Upplýsingar á himinn@gmail.com
Kringlan – skrifstofuhæð
– Einstakt tækifæri –
Til leigu stórglæsileg 285 m2 skrifstofuhæð (sjöunda)
í stóra turni Kringlunnar.
Möguleiki á að skipta hæðinni í tvær einingar. Laus strax.
Upplýsingar í síma 588 7050.
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is