Fréttablaðið - 09.04.2006, Page 63
FASTEIGNIR
OPIÐ HÚS – Þverholt 9, íbúð 0301
114,3 m2, 3ja herb. íbúð á 3ja hæð í góðu fjölbýli. Þetta er stór og björt íbúð, 2 góð svefn-
herb., fataherb. inn af hjónah., baðherb. með kari og sturtuklefa, sérþvottahúsi, rúmgóð
stofa og eldhús með góðum borðkrók. Mögulegt væri að stúka af 3ja svefnherbergið. Suð-
ursvalir og stutt í alla þjónustu. Íbúðin getur verið laus til afhendingar strax. Verð kr. 21,3 m.
Þorsteinn sími 892-1956, tekur á móti gestum í dag
á milli kl. 13:00 og 14:00. Allir velkomnir.
Svöluhöfði – 191,8 m2 glæsil. parhús
Mjög glæsilegt parhús innst í botnlanga í nýju hverfi í
Mosfellsbæ. Húsið er einangrað og klætt að utan
með álklæðningu, sérsmíðaðar kirsuberja
innréttingar og innihurði frá Trésm. Ölfu og parket
og flísar á gólfum. 4 svefnherbergi, baðherbergi
m/hornbaðkari og stórum sturtuklefa. Rúmgóður
bílskúr og hellulagt bílaplan m/snjóbræðslu.
Verð kr. 47,8 m.
Klapparhlíð – 4ra herb.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallega 97 m2, 4ra
herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi á
vestursvæði Mosfellsbæjar. 3 góð svefnherbergi,
eldhús með fallegri mahony innréttingu, björt stofa,
baðherbergi m/sturtu og sér þvottahús. Eikarparket
og flísar á gólfum og mahony innréttingar og
innihurðir. Þetta er
Verð kr. 23,5 m.
Skeljatangi – 4ra herb.
Erum með fallega 94,2 m2, 4ra herbergja íbúð í litlu
fjórbýlishúsi í einu vinsælasta hverfi Mosfellsbæjar.
Þrjú góð svefnherbergi, lokað eldhús, góð stofa,
baðherbergi og geymsla. Sameiginleg lóð til
fyrirmyndar og gönguleið að húsi hellulögð með
snjóbræðslu. Lágafellsskóli og leikskólinn Hulduberg
er rétt hjá og því tilvalin eign fyrir barnafjölskyldu.
Verð kr. 21,8 m.
Hjallahlíð – 4ra herb. + bilskúr
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 94 m2, 4ra herbergja
íbúð á jarðhæð í 4ra íbúða Permaformhúsi, ásamt
27,7 m2 bílskúr. Sér inngangur í íbúðina og stór
afgirt timburverönd. Sameiginlegur verðlaunagarður
til fyrirmyndar. Þetta er falleg og hagstæð íbúð í
country stíl. Skóli og leikskóli í næstu götu.
Verð kr. 25,5 m.
Klapparhlíð – 4ra herb. + bílskúr
*NÝTT Á SKRÁ* 99,9 m2, 4ra herbergja íbúð á efstu
hæð i 3ja hæða nýlegu og viðhaldslitlu fjölbýli,
byggðu af ÍAV. Þrjú rúmgóð svefnherbergi,
baðherbergi með baðkari, sér þvottahús, gott
eldhús og björt stofa. Stórar suðvestur svalir með
fínu útsýni. Íbúðinni fylgir einnig fullbúinn 26,3 m2
bílskúr. Leikskóli og grunnskóli í augsýn.
Verð kr. 26,5 m.
Tröllateigur – 167,1 m2 endaraðhús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá endaraðhús á tveimur
hæðum í nýbyggðu hverfi við miðbæ Mosfellsbæjar.
Á jarðhæð eru stofa, borðstofa, eldhús, gestasalerni
og bílskúr, en á 2. hæð eru 3 góð svefnherbergi,
vinnuherbergi, þvottahús og stórt baðherbergi.
Flísar og bambusparket á gólfum og fallegar
innréttingar í eldhús og baði.
Verð kr. 41,5 m.
Tröllateigur – 182,2 m2 endaraðhús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá nýtt fullbúið endarað-
hús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Stofa, eldhús, borðstofa og forstofa á jarðhæð, 3
svefnherbergi, glæsilegt baðherbergi og þvottahús á
2. hæð. Íbúðin er fullbúin með eikarparketi og flísum
á gólfi, glæsilegri eldhúsinnréttingu og baðherbergi
með baðkari og gufu sturtuklefa. Stór suðurgarður
er grófjafnaður. Tvær stórar svalir og flott útsýni.
Húsið er tilbúið til afhendingar í dag.
Verð kr. 44,9 m.
Álmholt – efri sérhæð m/2f. bílskúr
142,8 m2 efri hæð ásamt 50 m2 tvöföldum bílskúr,
með glæsilegu útsýni yfir Leirvoginn og að Esjunni.
Fjögur góð svefnherbergi, eldhús m/borðkrók, stór
stofa með kamínu og björt borðstofa, sjónvarpshol,
baðherbergi og gestasalerni ásamt góðu þvottahúsi.
Frábær staðsetning, neðst í botnlanga í grónu hverfi.
Gönguleiðir, golfvöllur og hesthúsahverfi í næsta
nágrenni.
Verð kr. 35,6 m.
Lágholt – 165,8 m2 einbýlishús
Erum með 128,6 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt
37,2 m2 bílskúr á góðum stað í hjarta Mosfellsbæjar.
4 svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús,
baðherbergi og stórt þvottahús. Húsið er byggt
1968 og þarfnast endurbóta. Skóli, íþróttaaðstað og
stundlaug rétt hjá sem og miðbær Mosfellsbæjar.
Verð kr. 33,9 m.
Fellsás – 285,5 m2 einbýlishús
Erum með 285,5 m2 einbýlishús á sérlega fallegum
útsýnisstað í hlíðum Helgafells í Mosfellsbæ Húsið
er á tveimur hæðum og ber merki arkteksins, Vífils
Magnússonar, augljós merki. Í húsinu er mjög stórt
eldhús, stór stofa, sólskáli, 4 góð svefnherbergi, tvö
baðherbergi og sjónvarpshol. Á jarðhæð er stór
tvöfaldur bílskúr og 70 m2 íbúðarrými, sem vel gæti
nýst sem aukaíbúð, skrifstofa eða unglingaherbergi.
Verð kr. 54,0 m.
Álmholt – 236 m2 einbýli + aukaíb.
Erum með 236,1 m2 einbýlishús með aukaíbúð í
kjallar, þar af 48,2 m2 tvöfaldur bílskúr. Aðalhæðin
er 140 m2 og skiptist í stofu, eldhús, þvottahús, 4
svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er björt 2ja
herbergja íbúð tilvalin til útleigu eða fyrir unglinginn.
Húsið stendur innarlega í lóðinni og stórt og gott
bílaplan og mikill suðurgarður.
**Verð kr. 46,2 m.**
Flétturimi – 4ra herb. + bílskúr.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu mjög fallega
108,4 m2, 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja
hæða fjölbýli ásamt 25,3 m2 bílskúr. Íbúðin er
fallega hönnuð með rauðeikarparketi á stofu,
borðstofu og eldhús. Þrjú góð svefnherbergi, sér
þvottahús og baðherbergi með kari.
Eldhúsinnrétting, baðinnrétting og innihurðar eru í
mahony. Frábær staður stutt í þjónustu og leikvöllur
rétt við húsið.
Verð kr. 26,9 m.
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 21