Fréttablaðið - 09.04.2006, Page 75
inni skilgreindum við LSH sem
háskólasjúkrahús og FSA sem
kennslusjúkrahús og hvaða hlut-
verki þau gegna,“ segir hann.
Sú vinna að formgera LSH sem
háskólasjúkrahús hefur staðið yfir
síðustu árin og má búast við að sú
vinna haldi áfram og þróist. Stefán
segir að nefndin hafi markað þá
stefnu að háskólinn eigi að nýta
sér þann mannauð sem sé til stað-
ar utan við sjúkrahúsið. Þegar sé
samningur við heilsugæsluna og
svo komi sterkar inn þær einka-
stofur sem séu fyrir hendi.
„Skýr afstaða er tekin af háskól-
ans hálfu í nefndinni um að við
eigum að hafa samstarf við þessa
aðila og að við eigum að gera það í
gegnum spítalann sem háskóla-
sjúkrahús,“ segir Stefán.
Hvað kostnað varðar telur hann
að takmarkið sé að gera menntun-
arþátt háskólasjúkrahússins sýni-
legan. Tæpir þrjátíu milljarðar
fari til rekstrarins og það þurfi að
gera sýnilegt hversu stór hluti af
því fer í menntunar-
þáttinn, kennslu og
rannsóknir.
Hann telur að það
geti numið einum
milljarði króna og þá
fjárhæð megi tvöfalda svo
vel megi vera.
Lýst eftir umræðu
Stefán lýsir eftir umræðu um það
hvernig eigi að fjármagna heil-
brigðiskerfið, hvort allir eigi sama
rétt á þjónustu innan almanna-
tryggingakerfisins án tillits til
tekna eða ekki. „Á sá forríki rétt á
sömu fríu þjónustunni og sá
fátæki?“ spyr hann. „Eða eigum
við að opna kerfið þannig að þeir
sem hafi efni á því séu látnir
borga? Þessi hugmynd var rang-
túlkuð þannig að menn gætu borg-
að sig fram fyrir í biðröð. Það er
ekki rétt. Við þurfum að ræða
hvort einhverjir geti keypt sér
þjónustu annars staðar án þess að
það bitni á röðinni - það er skilyrði
að biðröðin styttist sem þeim
nemur.“
Þá er mikilvægt að ræða sjúkra-
tryggingarverndina, ekki síst
vegna þeirra þjóðfélagsbreytinga
sem eiga sér stað um þessar mund-
ir í Evrópu og þá með útvíkkun
Evróusambandsins og frjálsa för á
vinnumarkaði í huga. Nágranna-
lönd Íslendinga eru farin að velta
fyrir sér hvað fellur undir
almannatryggingar, meðal annars
vegna þessa, að sögn Magnúsar
Péturssonar, forstjóra Landspítala
- háskólasjúkrahúss, opnast ýmsar
spurningar um það hver eigi að
greiða hverjum fyrir hvaða þjón-
ustu. Þetta segir hann að Íslend-
ingar þurfi að fara yfir og taka
afstöðu til hvað þeir vilja. ■
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra telur athyglisverðustu til-
lögur Jónínunefndarinnar lúta að
fjármögnun heilbrigðiskerfisins.
Hún hefur hug á því að koma á fót
nefnd til að fara yfir fjármögnun
heilbrigðiskerfisins og sjúkra-
húsanna LSH og FSA og fela henni
að koma með nánari tillögur og
útfærslur en engin ákvörðun
hefur þó verið tekin um það.
„Við þurfum að skoða skýrsl-
una betur hér innanhúss en ég sé
fyrir mér að það ferli gæti síðan
farið af stað í framhaldinu varð-
andi útfærslu því að það væri
óeðlilegt ef við í ráðuneytinu
myndum fara í nákvæma útfærslu
ef þær hugmyndir nytu svo ekki
almenns stuðnings í samfélaginu,“
segir Siv og telur að vinna nefnd-
arinnar geti tekið um tvö ár og því
sé breytinga varla að vænta á
þessu kjörtímabili.
Jónínunefndin svokallaða bend-
ir á að heilbrigðiskerfið krefjist
síaukins fjármagns og vill sundur-
greina hlutverk LSH og FSA
þannig að hægt sé að greina hvað
læknisþjónustan kostar annars
vegar og hvað kennslu- og háskóla-
hlutverkið kostar hins vegar og
taka ákvarðanir um hvernig eigi
að fjármagna hin ýmsu verkefni.
„Þetta eru kerfislægar breyt-
ingar sem þarf að skoða en það
þarf að vanda mjög vel til verks-
ins því að hér er um svo mikið
fjármagn að tefla. Það þarf að
nýta fjármagnið á eins skynsam-
legan hátt og hægt er,“ segir Siv.
Verið er að ganga frá frum-
varpi til laga um heilbrigðisráðu-
neytinu og verður það kynnt í vor
á Alþingi. „Það er ramminn utan
um heilbrigðisþjónustuna. Svo er
endurskoðun markmiða í heil-
brigðisáætlun til 2010. Forgangs-
röðun verkefna er hluti af þessari
áætlun, sem er í gildi í dag, þannig
að sú vinna fer þegar fram og
hefur verið í gangi um nokkurt
skeið.“
- ghs
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra um tillögur Jónínunefndarinnar:
Vanda þarf til verksins
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR HEILBRIGÐISRÁÐ-
HERRA
MAGNÚS PÉTURSSON Mikilvægt er að ræða
sjúkratryggingarverndina, ekki síst vegna
þeirra þjóðfélagsbreytinga sem eiga sér
stað, til dæmis með opnun Evróusam-
bandsins og frjálsri för á vinnumarkaði.
Nágrannalöng Íslendinga eru farin að velta
fyrir sér hvað fellur undir almannatrygg-
ingar, meðal annars vegna þessa, að sögn
Magnúsar Péturssonar, forstjóra Landspít-
ala - háskólasjúkrahúss. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
2006
25.6
27.3
27.9
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 23
Nordica hotel
Su›urlandsbraut 2
S. 444 50 50
VOX Restaurant
18.30 - 22.30
Opi› flri. - laug.
VOX Bistro
11.30 - 22.30
Opi› alla vikuna
www.vox.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
12
14
Tilbo› á gistingu á www.icehotels.is
Páskamatse›ill
Blúshátí› á Nordica hotel 11.-14. apríl
(sjá www.blues.is)
Páska-Brunch 13.-17. apríl kl. 11.30-14.00
Happy Hour alla daga á barnum kl. 17-19
Matse›ill: 5.400 kr.
Matse›ill og vín: 9.400 kr.
Volgur leturhumar me› súrmjólkurfro›u
humarhlaupi, grænmetissalsa og sítrónuolíu
Gewürztraminer Hügel 2002
Lamb á fjóra vegu. Langtímaeldu› Entrecote,
létt steiktar lundir, lambatunga og skanki.
Framreitt me› dilli og kartöflufro›u
Casa Lapostolle Cuvée Alexandre Cabernet
Sauvignon 2004
Súkkula›i Tanarive me› volgri súkkula›isósu
og hindberjum
Rivesaltes Greant 2002
11.-16. apríl
Girnileg
páska- og blúshátí›