Fréttablaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 84
FRÉTTIR AF FÓLKI
Það styttist í að söngkonan Mariah Carey reyni á þol fleiri skilningsvita
en sjónar og heyrnar. Brátt verður
lyktarskynið fyrir barðinu á Mariuh enda
er von á ilmvatni frá
söngdívunni ógurlegu.
Carey hefur ekki
gengið sem skyldi
í tónlistinni að
undanförnu og því
ljóst að hún ætlar
að reyna fyrir sér á
nýjum vettvangi.
Hins vegar
er spurning
hvort þessi
framleiðsla
rúmist innan
ramma
Kyoto-samkomu-
lagsins.
Það er ekki nóg með að nýi Bond-leikarinn Daniel Craig kunni ekki að
meta hristan Martini og sé hræddur við
byssur heldur er hann einnig arfaslakur
pókerspilari. Því kölluðu aðstandendur
nýju myndarinnar sérfræðinga á svæðið
til að kenna Craig hvernig
menn bera sig að í
spilavíti. Craig hefur
margoft hneykslað
Bond-aðdáendur
og þessi frétt er
vafalítið vatn á myllu
andstæðinga Craig,
sem hefur
mátt þola
alls kyns
háðsglósur
að undan-
förnu.
Eflaust kætast fáir jafn mikið yfir
því að tískan fer í hringi eins og
íþróttaskóframleiðendur, því í dag
er fólk tilbúið að borga margfalt
verð fyrir gömlu leikfimiskóna
sem það fyrir tuttugu árum faldi
ofan í tösku. Í byrjun mánaðarins
kynnti Adidas Adicolor-skóna til
sögunnar á nýjan leik. Þeir voru
fyrst fáanlegir árið 1983 og þóttu
þá ansi sérstakir enda fylgdu þeim
málningartúbur þannig að
kaupendurnir gátu skreytt skóna
eftir eigin höfði. Nú fékk hins
vegar Adidas sex hönnuði til liðs
við sig til að blása nýju lífi í þessa
skólínu. Dönsku hönnuðnir hjá
WoodWood eru meðal þeirra sem
fengu að spreyta sig. Fréttablaðið
hitti Karl Oskar, einn af hönnuðum fyrirtækisins, á vinnustofu hans í
Kaupmannahöfn fyrir helgi.
„Ég held að Adidas hafi viljað fá
einhvern óþekktan hönnnuð að
verkefninu. Við erum eiginlega litli
karlinn í þessu verkefni,“ segir
Karl brosandi þegar hann er
spurður af hverju fyrirtækið hafi
verið valið en WoodWood var
stofnað fyrir þremur árum og eru
vörur þess fáanlegar í fjörutíu
búðum úti um allan heim. Auk þess
rekur það tvær búðir í
Kaupmannahöfn og önnur þeirra
seldi einmitt Adicolor-skóna.
„Reyndar seldust öll pörin upp á
tveimur tímum þannig að ef fólk
hefur áhuga á að kaupa þá verður
það að fara á eBay. Það voru
reyndar aðeins framleidd á bilinu
sex hundruð til þúsund pör af
hverju pari,“ bætir Karl við.
Kostaði skóparið rúmar sextán
þúsund íslenskar krónur.
Aðspurður um næstu verkefni
segir Karl að WoodWood sé nú að
vinna að línu fyrir breska
fatamerkið Fred Perry. Mun
WoodWood fá leyfi til að koma með
sína útgáfu af hinum þekktu
pólóbolum Fred Perry. „Þeir verða
einmitt seldir í Kron”, segir Karl
glaðbeittur. „Þau hafa selt vörurnar
okkar síðan við byrjuðum og við
erum mjög ánægðir með samstarfið
við þau,“ segir hann og bætir því
við að fleiri íslenskar verslanir
hafi beðið um vörurnar en því hafi
verið hafnað enda vilji WoodWood
aðeins vinna með Kron. Karl segist
þó aldrei hafa komið til Íslands en
stefni á að bæta úr því á árinu.
Bleikir íþróttaskór frá Adidas
ADICOLOR Nýstárleg hönnun hefur vakið athygli og þeir verða seldir í verslunin Kron hér á
landi.
FLOTTIR Vörur WoodWood eru fáanlegar í
fjörutíu búðum út um allan heim en allir
Adicolor-skórnir eru uppseldir.
Salma Hayek nýtur þess að vera
laus og liðug, sem hún segir vera
tilvalið til að finna sig sjálfa.
Hayek segist ætla að verja meiri
tíma með sjálfri
sér eftir mis-
heppnuð ástar-
sambönd við
Edward Atter-
ton, nafna hans
Norton og Josh
Lucas. „Ég fór
úr fjögurra ára
sambandi yfir í
annað jafn-
langt. Svo fór
ég á stefnumót
í nokkur ár,“
sagði leikkonan við blaðamenn á
dögunum. „Í fyrsta skipti í tíu ár
er ég á lausu og ætla að njóta þess.
Það verður yndislegt að vera bara
Salma Hayek en ekki kærasta
einhvers.“
Laus og liðug
SALMA HAYEK
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
ÍSÖLD 2 kl. 2 400 KR. og 4 M/ÍSL. TALI
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 2 400 KR.
DATE MOVIE kl. 4, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
ICE AGE 2 kl. 3, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
THE PRODUCERS kl. 8 og 10.45
WALK THE LINE kl. 2.40, 5.15, 8 og 10.45
RENT kl. 2.40 og 5.20 B.I. 14 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
ICE AGE 2 Í LÚXUS M/ENSKU TALI kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 12, 2, 4, 6 og 8
DATE MOVIE kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
BIG MOMMA’S HOUSE 2 kl. 1.30, 3.40, 5.45, 8 og 10.15
PINK PANTHER kl. 1.30, 3.50 og 10.10 400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STEVE MARTIN KEVIN KLINE
- L.I.B - TOPP5.IS
- S.K. - DV
2 FYRIR 1
FYRIR VIÐSKIPTAVINI
GULLVILDAR
ÓSKARS-
VERÐLAUNIN
sem besta leik-
kona í aðalhlut-
verki - Reese
Witherspoon
AÐSÓKNARMESTA MYND ÁRSINS!
YFIR 22.000 MANNS !
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
SPRENGHLÆGILEGUR SÖNGLEIKUR
FRÁ GRÍNSNILLINGNUM MEL BROOKS!!Mamma allra
grínmynda er
mætt aftur í
bíó!
WWW.XY.IS
200 kr.
afsláttur
PÁSKAMYNDIN 2006
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
EIN STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Í USA
RANGUR TÍMI, RANGUR
STAÐUR, RANGUR MAÐUR
- LIB, Topp5.is
- VJV, Topp5.is