Fréttablaðið - 09.04.2006, Síða 87
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 35
Leðursófasett 503
Fáanlegt í hvítu og dökkbrúnu leðri
3+1+1
207.000.-
3+2
197.000.-
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Opið: mán-fös 10:00-18:00 lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
Mikið úrval af
sófum og borðstofustólum
SOHO LEÐURSTÓLL
Fáanlegur í dökkbrúnu leðri með ljósum
eikarfótum og dökkum fótum
Verð:
14.500
-20%
CAPRI leðurtungusófi
Fáanlegur bæði í hvítu og dökkbrúnu leðri
Verð áður: 212.000.-
Verð nú:
169.600.-
TANGO
Rispufrítt áklæði sem gott er að þrífa
Fáanlegur með ljósum eikarfótum.
Verð:
12.900
ROMEO
Með PU bycast áferð
Fáanlegur í dökkbrúnu, ljósbrúnu og
svörtu með ljósum eikarfótum
Verð:
12.500
THEO
Rispufrítt áklæði sem gott er að þrífa
Fáanlegur með ljósum beykifótum og
dökkum fótum.
Verð:
12.500
DENNIS
Með PU bycast áferð
Fáanlegur í dökkbrúnu með ljósum
eikarfótum og dökkum fótum
Verð:
17.500
TANGO LEÐURSTÓLL
Fáanlegur í dökkbrúnu og rauðbrúnu
leðri með ljósum eikarfótum
Verð:
13.800
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
6 7 8 9 10 11 12
Sunnudagur
■ ■ LEIKIR
17.00 ÍBV og Stjarnan mætast í
DHL-deild karla í handbolta.
19.15 FH og HK mætast í DHL-
deild karla í handbolta.
20.00 Haukar og Víkingur/Fjölnir
mætast í DHL-deild karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
10.30 Box á Sýn. Bardagi Floyds
Mayweather og Zab Judah frá í nótt
endursýndur.
12.50 AC Milan-Chievo á Sýn.
14.15 Blakbikarinn á RÚV.
14.50 US Masters á Sýn.
16.50 Racing-Barcelona á Sýn.
18.50 US Masters á Sýn.
21.50 Helgarsportið á RÚV.
HANDBOLTI Íslendingaliðið Magde-
burg komst ekki í úrslit þýsku bik-
arkeppninnar í handbolta en liðið
tapaði fyrir Hamburg í gær, 31-30.
Arnór Atlason og Sigfús Sigurðs-
son léku ekki með Magdeburg í
leiknum
Hamburg mun mæta Kronau/
Östringen í úrslitum en Kronau
gerði sér lítið fyrir og lagði Kiel,
33-31. - hbg
Undanúrslit þýska bikarsins:
Magdeburg
ekki í úrslit
STEFAN LÖVGREN Skoraði sex mörk fyrir
Kiel í dag en það dugði ekki til.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
GOLF Bandaríski kylfingurinn
Chad Campbell var með þriggja
högga forystu eftir tvo hringi á
bandaríska Masters-mótinu í golfi
sem fer fram í Augusta í Georgíu.
Campbell var á sex höggum undir
pari en Vijay Singh, Rocco Medi-
ate og Fred Couples komu þar á
eftir á þremur undir. Efsti maður
heimslistans, Tiger Woods, var í
tíunda sæti á einu höggi undir
pari.
„Ég er aðeins fimm höggum á
eftir og það er ekki mikill munur.
Ég er í hörkuformi og er mjög
bjartsýnn á að ná að vinna það
upp. Veðrið hefur ekki verið eins
og best verður á kosið en það þýðir
ekkert að kvarta þó aðstæðurnar
séu erfiðar,“ sagði Woods. Bein
útsending frá mótinu hefst á Sýn
klukkan 18.50 í kvöld.
- egm
Masters-mótið í golfi:
Tiger Woods er
mjög bjartsýnn
EINU UNDIR Tiger Woods var einu höggi
undir pari eftir tvo keppnisdaga.
HANDBOLTI Fram gefur ekkert eftir
í baráttunni um Íslandsmeistarat-
itilinn og liðið er aðeins tveim
skrefum frá titlinum eftir stórsig-
ur gegn ÍR, 44-24.
Margir áttu von á spennandi
rimmu en leikurinn í gær var
aðeins spennandi í um tíu mínútur
því í stöðunni 6-5 fyrir Fram
hrundi leikur ÍR til grunna og
miskunnarlausir Framarar gengu
hreint til verks og hreinlega
slátruðu ÍR-liðinu og leiddu með
fjórtán mörkum í leikhlé, 23-9.
Dagskránni var þar með lokið
og síðari hálfleikurinn tóm leið-
indi á að horfa. Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari Fram, var
þrátt fyrir stórsigurinn ekki í
rónni fyrr en um miðjan síðari
hálfleikinn. Hinn ungi Rúnar
Kárason fékk rautt spjald um
miðjan síðari hálfleikinn og verð-
ur því í banni gegn HK. Guðmund-
ur var mjög ósáttur við spjaldið.
„Þetta voru litlar sakir og þær
alíslensku reglur að menn fari
beint í bann fyrir rautt spjald eru
bara grín. Þarna átti sér stað slys
og þetta var enginn ásetningur.
Það er til að mynda búið að berja
Sigfús hjá okkur í andlitið í allan
vetur margoft í leik án þess að sjá-
ist rautt spjald og það gengur ekki
að hafa þessar sérreglur,” sagði
Guðmundur reiður. - hbg
Fram er aðeins tveim leikjum frá Íslandsbikarnum:
Aftaka í Safamýri
ÁKAFIR HORNAMENN Guðjón Drengsson og Ragnar Helgason tóku oft hraustlega á hvor
öðrum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN