Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 89
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 37
Í úrslitakeppni Íslandsmótsins
í körfuknattleik, sem nú stendur
yfir, höfum við orðið vitni að mikl-
um sveiflum í leik liða. Lið hafa
unnið leiki með miklum mun – en
tapað svo fyrir sama liði í næsta
leik. Helst mætti líkja þessu við
sveiflur á verði íslenskra hluta-
bréfa að undanförnu, en engin
sönnun hefur fengist fyrir því að
nokkur tengsl séu þarna á milli.
Hér vaknar strax spurningin um
að kanna þessi tengsl frekar.
En hver er skýringin á því að
lið vinnur annan eins stórsigur og
sést hefur nýlega? Slík úrslit eru
skiljanleg þegar verulegur munur
er á getu liða, en það á ekki við í
úrslitakeppninni eins og dæmin
sanna. Sigurliðið hagnast heldur
ekki sérstaklega á mikilli stiga-
skorun eins og í fyrirtækjabikar-
keppninni, þar sem úrslit í leikj-
um eru lögð saman; hér fæst
einungis einn vinningur hvort
heldur munurinn er fimm eða
fimmtíu stig.
Einbeiting mikilvæg
En hvað ræður þá slíkum úrslit-
um – er það kannski hið alræmda
dagsform sem skiptir sköpum?!
Hvaða gildi hefur
slíkt burst og hver
eru áhrifin á
sigurliðið og
tapliðið?
Yfirleitt er það
heimaliðið sem
nær að sigra stórt
– kraftur leik-
manna er í hámarki
á heimavelli og áhorf-
endur styðja kröftug-
lega við bakið á þeim og
púa (eða fúa) jafnvel á and-
stæðingana, sem eiga hins vegar
á hættu að missa einbeitinguna,
detta jafnvel tímabundið úr sam-
bandi við eigið toppstykki. Það
er stórhættulegt í körfubolta þar
sem andstæðingurinn getur skor-
að fjölda stiga á fáeinum mínút-
um og náð forystu sem virðist
óyfirstíganleg. Þá getur jafnvel
verið eins gott að slaka á og
einbeita sér að því að vinna
næsta leik.
Þjálfarar eru yfirleitt fljót-
ir að benda á að þótt leikur í
úrslitakeppni tapist með mikl-
um mun sé hægt að jafna
metin með sigri í næsta leik.
Leikmenn tapliðsins eru vísir
til að tvíeflast við mótlætið og
hyggja á hefndir. Erfiðara virðist
hins vegar oft að koma leikmönn-
um sigurliðsins á jörðina, þrátt
fyrir góð orð þjálfara þar
um. Þeim hættir til að
ofmetnast og vakna
svo upp við vondan
draum í næsta leik.
Til hvers að
,,bursta” and-
stæðinginn?
Hvaða gagn
er þá að því að
sigra and-
stæðinginn
með miklum
mun – bursta
hann, baka
hann, mala
hann, taka hann
gjörsamlega í
bakaríið, valta
algjörlega yfir
hann, jarða hann
bókstaflega?
Ekki mikið ef sig-
urinn einn skiptir
máli, þ.e. ef
árangur liðsins
ræðst ekki af
stigaskori. Sérstaklega er það var-
hugavert í úrslitakeppni, þegar
liðin þurfa að mætast aftur í næsta
leik. Þegar örugg forysta hefur
náðst er því lítið vit í að eyða púðri
í að vinna sem stærstan sigur –
betra er að reyna að slaka á fyrir
næsta leik og leyfa varamönnum
að innbyrða sigurinn.
Þegar öllu er á botninnn hvolft
auka slíkar sviptingar hins vegar
á skemmtun áhorfenda og þeirra
sjálfskipuðu snillinga sem um
keppnina fjalla. Og þegar jafn-
ingjar takast á ganga menn ósárir
frá leik þótt þeir fái yfir sig stiga-
súpu endrum og eins. Og fyrir
því má ugglaust færa rök að það
herði menn og treysti vináttu-
bönd.
Öðru máli gegnir hins vegar
um keppni í yngri flokkum. Þar er
allt of algengt að sjá lið niðurlægja
andstæðing sem er miklu lakari að
getu. Það er lítil sæmd í því og
engum hollt, hvorki þeim sem ber
sigur úr býtum né þeim sem lýtur
í lægra haldi. Við þjálfun ung-
menna er sérstaklega mikilvægt
að hafa orð séra Friðriks að leiðar-
ljósi: „Látið ekki kappið bera feg-
urðina ofurliði.“
SUNNUDAGSPENNINN SVALI H. BJÖRGVINSSON
Þetta var algjört burst
FÓTBOLTI Íslensku liðin eru nú á
fullu í undirbúningi sínum fyrir
Íslandsmótið en nú er rétt rúmur
mánuður þangað til mótið hefst.
Fjölmörg félög eru stödd erlendis
við æfingar og er hið svokallaða
Þórismót farið af stað en það er
haldið til minningar um Þóri Jóns-
son og hét áður Canela-bikarinn.
Landsbankadeildarliðin Kefla-
vík og Breiðablik mættust en þar
voru það Suðurnesjamenn sem
lögðu nýliðana 4-2 þar sem Símun
Samuelsson og Guðmundur Stein-
arsson skoruðu báðir tvö mörk
fyrir Keflavík. Blikar komust tví-
vegis yfir í leiknum.
Á föstudag gerðu Valsstúlkur
2-2 jafntefli við norska liðið Team
Strömmen en Katrín Jónsdóttir
skoraði bæði mörk Vals. Kvenna-
lið Breiðabliks tapaði 0-5 gegn
sama liði fyrir skömmu en á föstu-
dag töpuðu Blikastúlkur 0-4 gegn
norska meistaraliðinu Kolbotn.
- egm
Íslensku liðin undirbúa sig:
Keflavík vann
Breiðablik
DHL-deild karla:
FRAM-ÍR 44-24 (23-9)
Mörk Fram: Jóhann Gunnar Einarsson 11/4, Guð-
jón Finnur Drengsson 6, Sergey Serenko 6, Har-
aldur Þorvarðarson 5, Sigfús Sigfússon 5, Þorri
Björn Gunnarsson 4, Björgvin Björgvinsson 2,
Stefán Baldvin Stefánsson 2, Sverrir Björnsson 1,
Rúnar Kárason 1, Gunnar Harðarson 1.
Varin skot: Magnús Erlendsson 9, Egidijus Pet-
kevicius 7/1, Björn Friðþjófsson 1.
Mörk ÍR: Ragnar Helgason 5, Þorleifur Björnsson
5, Hafsteinn Ingason 5/2, Björgvin Hólmgeirsson
4, Davíð Georgsson 2/1, Andri Númason 1, Sig-
urður Magnússon 1, Tryggvi Haraldsson 1/1.
Varin skot: Lárus Ólafsson 16.
AFTURELDING-KA 28-29
STAÐAN:
FRAM 24 18 3 3 715:629 39
HAUKAR 23 18 1 4 704:633 37
VALUR 24 16 2 6 718:657 34
FYLKIR 24 15 2 7 676:600 32
STJARNAN 23 13 4 6 668:633 30
HK 23 11 2 10 662:644 24
KA 24 10 3 11 668:675 23
ÍR 24 9 4 11 750:750 22
FH 23 9 3 1 1 636:643 21
AFTURELD. 24 8 4 12 615:633 20
ÍBV 23 7 2 14 653:712 16
ÞÓR A. 24 4 5 15 669:736 13
VÍK/FJÖL 23 5 1 17 629:705 11
SELFOSS 24 3 2 19 640:753 8
Iceland Express-deild karla:
NJARÐVÍK-SKALLAGRÍMUR 89-70
Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 14, Egill
Jónasson 13, Jeb Ivey 13, Halldór Karlsson 13,
Guðmundur Jónsson 9, Ragnar Ragnarsson 9,
Jóhann Ólafsson 5, Hjörtur Einarsson 4, Örvar
Kristjánsson 3.
Stig Skallagríms: Axel Kárason 16, Pétur Sig-
urðsson 11, George Byrd 10, Jovan Zdravevski 7,
Hafþór Gunnarsson 5, Adolf Hannesson 5, Bjarni
Kristmarsson 3, Óðinn Guðmundsson 2, Pálmi
Þór Sævarsson 2.
Enska úrvalsdeildin:
PORTSMOUTH - BLACKBURN ROVERS 2-2
0-1 Bellamy (32.), 1-1 Lua-Lua (41.), 1-2 Bellamy
(62.), 2-2 Todorov (78.).
TOTTENHAM - MANCHESTER CITY 2-1
1-0 Stalteri (44.), 2-0 Carrick (49.), 2-1 Samaras
(52.).
WIGAN ATHLETIC - BIRMINGHAM CITY 1-1
1-0 Johansson (49.), 1-1 Dunn (77.)
CHARLTON-EVERTON 0-0
Hermann Hreiðarsson var fyrirliði hjá Charlton.
STAÐAN:
CHELSEA 32 25 4 3 60-19 79
MAN. UNITED 32 22 6 4 64-30 72
LIVERPOOL 33 20 7 6 47-22 67
TOTTENHAM 33 16 10 7 48-33 58
BLACKBURN 33 16 6 11 45-39 54
ARSENAL 31 16 5 10 53-23 53
BOLTON 31 13 9 9 43-35 48
WIGAN 33 14 6 13 38-40 48
WEST HAM 32 13 7 12 46-46 46
EVERTON 33 13 6 14 31-43 45
CHARLTON 33 12 8 13 37-42 44
NEWCASTLE 32 12 6 14 34-39 42
MAN. CITY 33 12 4 17 40-40 40
MIDDLESB. 31 11 7 13 44-52 40
FULHAM 33 10 6 17 41-54 36
ASTON VILLA 32 8 11 13 34-46 35
BIRMINGHAM 33 7 8 18 25-45 29
PORTSMOUTH 32 7 7 18 29-54 28
WBA 32 7 6 19 28-49 27
SUNDERLAND 32 2 5 25 21-57 11
Enska meistaradeildin
CARDIFF CITY - READING 2-5
Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading en
Brynjar Gunnarsson lék síðustu 11 mínúturnar.
IPSWICH TOWN - STOKE CITY 1-4
Hannes Sigurðsson gat ekki leikið með Stoke.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS