Fréttablaðið - 09.04.2006, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Mp3 spilari
U1X 512mb: Tilboðsverð: 12.990
U1Z 1 GB: Tilboðsverð: 17.990
MJU-700
7.1 milljón pixla myndavél
3x Optical aðdráttur
Tilboðsverð: 22.900
SMÁRALIND SÍÐUMÚLI 9 AKUREYRI KEFLAVÍK
530 2900 530 2800 461 5000 421 1535
HOPPA‹U Í HEITA POTTINN
www.icelandexpress.is, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
www.icelandexpress.is/heitipotturinn
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nú er gaman að vera ferðalangur því Heiti potturinn okkar er stútfullur af hlægilega ódýrum flugsætum til allra
áfangastaða okkar. Skelltu þér inn á icelandexpress.is og skoðaðu úrvalið í Heita pottinum. En drífðu þig, því tilboðin
eru ótrúleg og potturinn oft fljótur að tæmast.
Iceland Express býður alla velkomna í pottinn!
Um miðjan maí bætast við sex nýir áfangastaðir og verða áfangastaðir Iceland Express orðnir átta:
London, Kaupmannahöfn, Berlín, Friedrichshafen, Frankfurt Hahn, Stokkhólmur, Gautaborg og Alicante.
FLUGSÆTI ÍHEITAPOTTINUMKOSTA ALLT FRÁ NÆSTUMEKKERT
„ALLT SEM ÉG Á“ MEÐ IDOL STJÖRNU
2006 FÆST Á TÓNLIST.IS - AÐEINS 99 KR.-
����������
�����������������������
Jæja, þá er komið að því að kveðja ykkur á þessum vett-
vangi, í bili að minnsta kosti. Á
svona tímamótum er hefð fyrir
því að líta um öxl og spá í hvort
eitthvað hefði mátt betur fara. Ég
sé ekkert. Fullkomið jafnvægi og
engin persónuleg skítköst (nema
að Bubbi eigi í alvöru umboðs-
mann). Ég passaði mig vandlega á
að hafa aldrei of marga góða Bak-
þanka í röð, sumum finnst ég jafn-
vel hafa passað mig um of á því
sviði. En númer eitt, tvö og þrjú
að þá er ég sáttur við þessi fram-
lög mín í sunnudagsmorgnana
ykkar.
ÞAÐ er reyndar ekki vegna skorts
á efnivið sem ég tek mér frí heldur
þarf ég að beina spjótum mínum
annað í bili. Hugsanlega kem ég
aftur með skottið á milli lappana
og grátbið ritstjórann um að fá
dálkinn minn aftur og sennilegast
segir hann mér þá að ég hafi spar-
að honum að þurfa að segja mér
upp og þá segi ég líklega eitthvað
við hann sem ég sé eftir að hafa
sagt og hringi í hann daginn eftir
og við sættumst, en það er svo sem
ekkert pottþétt. Ég hef það bara
svona á tilfinningunni.
ÉG átti alltaf eftir að skrifa mína
eigin svörtu skýrslu um danskan
efnahag sem ég tel fullvíst að hefði
riðið Baununum að fullu og jafn-
vel orðið til þess að innan nokk-
urra ára hefði Köben flokkast sem
úthverfi Egilsstaða. Ég er ekki
alveg búinn með skýrsluna en mér
sýnist hún stefna í þá átt. Ég átti
eftir að skrifa um hina langþráðu
ferð mína til Las Vegas þar sem ég
eyddi tíu dögum undir vökulu
eftirliti tengdamóður minnar.
Sagan af fyrstu tönninni sem sonur
minn losnaði við er líka þræl-
skemmtileg. Atburðurinn átti sér
stað í sundklefa og hann gat ekki
sagt orð af viti í tíu mínútur á eftir
heldur hljóp í hringi í móðursýkis-
kasti og hrópaði að hann gæti
hugsanlega ekki vanist þessum
breyttu aðstæðum. En þessar
sögur eru sem sagt til og ef ein-
hver af ykkur eftirsitjandi Bak-
þankarithöfundum Fréttablaðsins
fær ritstíflu þá megið þið leita í
þennan gagnabanka minn, gegn
vægu gjaldi að sjálfsögðu.
AÐ endingu langar mig til að
þakka ykkur lesendum þessa mán-
uði og vonandi liggja leiðir okkar
saman aftur seinna meir.
EN nú ætla ég að gera eins og
Kaninn og hypja mig.
Síðasta
bakmáltíðin