Fréttablaðið - 10.04.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 10.04.2006, Blaðsíða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is EKKI HAFA FARIÐ FRAMHJÁ FASTEIGNAKAUPENDUM ÞÆR HÆKKANIR SEM ORÐIÐ HAFA Á ÍBÚÐAVERÐI. Samkvæmt upplýsingum frá Fast- eignamati ríkisins hækkaði íbúða- verð mest á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2004 og 2005, um 32,4 prósent. Íbúðaverð á Suðurlandi hækkaði um 26 prósent, um tæp 24 á Norðurlandi vestra, 22,3 pró- sent á Reykjanesi, 21,3 á Austur- landi, 21,1 prósent á Vestfjörðum, 18,4 prósent á Vesturlandi og 17,6 á Norðurlandi vestra. Þegar borin er saman hækkun íbúðaverðs á nokkrum tímabil- um kemur í ljós að á milli áranna 2000 og 2005 hækkaði íbúða- verð á Suðurlandi mest, um 92 prósent, þar á eftir á Austurlandi um 89,4 prósent og svo á höfuð- borgarsvæðinu um 86,9 prósent. Sé hækkun skoðuð árin 1995 til 2005 kemur í ljós að íbúðaverð hækkaði mest á höfuðborgar- svæðinu, um 176,9 prósent, og sé miðað við árin 1990 til árins 2005 hækkaði íbúðaverð mest á höfuðborgarsvæðinu, um 226,6 prósent. Hækkaði mest í höfuðborginni Íbúðaverðið hefur hækkað gríðarlega síðustu árin og þá mest á höfuðborgarsvæðinu. UPPHLEYPT OG GRÓF MYNSTUR ÁBERANDI Gömul húsgögn öðlast nýtt líf í höndum bólstrara HÚS 2 GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 10. apríl, 100. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 6.14 13.29 20.46 Akureyri 5.53 13.14 20.36 Heimild: Almanak Háskólans Fasteignasalan Draumahús er með 234,7 fermetra einbýli á tveimur hæðum til sölu. Húsið er á rólegum stað í Garðabæ. Flísalagt anddyri hússins er tilkomumikið og með mikilli lofthæð. Þar eru skápar fyrir yfirhafnir undir stiga auk gestaklósetts. Úr anddyrinu er gengið inn í stofuna, sem er stór og parkettlögð. Auk hennar eru eldhús, geymsla, gestaherbergi og þvottahús á neðri hæðinni. Útgengt er úr þvottahúsinu út í garð og einnig inn í einkar snyrtilegan bílskúr sem er innbyggður í húsið. Inni af bílskúrnum er góð geymsla. Á efri hæð hússins er björt parkettlögð stofa með útgengi á hellulagðar suðursvalir. Sú stofa er tilvalin sem sjónvarpsherbergi. Baðherbergi er á efri hæðinni og er það flísalagt í hólf og gólf. Herbergið er stórt og inniheldur bæði sturtuklefa og baðkar auk tveggja vaska. Fjögur svefnherbergi eru á efri hæðinni og er hátt til lofts í þeim öllum. Garðurinn er glæsilegur. Umhverfis húsið er að mestu hellulögð stétt, hiti er í bílaplaninu og þar er hægt að leggja þrem- ur bílum. Þar að auki er sjálfvirk lýsing í garðinum umhverfis húsið. Öll gólfefni eru fyrsta flokks, sem og innréttingar. Neðri hæð hússins er 114,9 fermetrar auk 28,3 fermetra bílskúrs. Ris- hæðin er 91,5 fermetri að gólffleti. Húsið stendur við botnlanga á rólegum og falleg- um stað í Garðabæ. Tilboð óskast. Fallegt hús með tilkomumiklu anddyri Glæsilegur garður umlykur húsið og umhverfis það er að mestu hellulögð stétt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FASTEIGNASÖLUR Ás 10-12 Árborgir 32 Búseti 40 Domus 8 Draumahús 22-27 Eignamiðlun 29 Erla investment 36 Fasteignast. Mosfellsb. 20 Fasteignastofan 15 FMG fasteignasala 15 Foss 29 Gloria Casa 28 Hof 13 Húsanaust 14 Húseign 33 Höfði 35 Lundur 16 Neteign 39 Nýtt 38 Remax 41 Remax Mjódd 37 Smárinn 18 Valhöll 30 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 02 61 11 /2 00 5 Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is 410 4000 | landsbanki.is Fasteignalán Við hjálpum þér að eignast draumaheimilið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.