Fréttablaðið - 10.04.2006, Blaðsíða 80
32 10. apríl 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
7 8 9 10 11 12 13
Mánudagur
■ ■ LEIKIR
20.00 Skallagrímur og Njarðvík
mætast í Iceland Express-deild karla
í körfubolta. Þetta er önnur viðureign
liðanna í úrslitum Íslandsmótins.
■ ■ SJÓNVARP
16.00 Ensku mörkin á RÚV.
18.30 US Masters á Sýn.
19.50 Skallagrímur-Njarðvík á
Sýn. Bein útsending.
23.20 HM 2002 á Sýn.
Þú sendir
SMS skeyt
ið BT FBT
á númerið
1900.
Þú færð sp
urningu.
Þú svarar m
eð því að
senda SMS
skeytið
BT A, B eð
a C á
númerið 19
00.
S
M
S
LE
IK
UR
!
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
+DVD pakki
67. 588119. 988215. 988
Dregin út
28.apríl
Dregin út
21.apríl D
regin út
12.apríl 0kr0kr0kr5.hver
vinnur!
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
og félagar í Napoli Carpisa töpuðu
um helgina gegn toppliði Monte-
paschi Siena, 76-97. Jón Arnór lék
í 28 mínútur og átti fínan leik,
skoraði 17 stig og reif niður 7
fráköst. Napoli féll niður í sjötta
sæti deildarinnar við tapið. - hbg
Jón Arnór Stefánsson:
Skoraði 17 stig
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Er að spila vel á
Ítalíu.
Meiðslasaga miðjumannsins úr
Árbænum, Ólafs Inga Stígssonar, er
að verða sorgleg í meira lagi. Þessi
öflugi leikmaður er meiddur á
sama hnénu enn og aftur en
hann hefur tvisvar slitið kross-
bönd í hnénu. Fylkismenn
lifa í þeirri von að Ólafur
sé með rifinn liðþófa en ef
svo er verður hann klár fyrir
fyrsta leik í Landsbankadeildinni. Af
fenginni reynslu getur Ólafur ekki
neitað því að hann óttast verri
úrskurð enda hefur hnéð verið
að plaga hann í fjölda ára,
„Þetta gerðist á æfingu úti í
Portúgal og var ósköp saklaust.
Það er nánast klárt að liðþóf-
inn er farinn og ég vona það
besta þó ég geti ekki neitað því að ég
hef ekki útilokað að staðan sé verri
svona í ljósi sögunnar,“ sagði
Ólafur frekar svekktur
en hann hefur verið í
eilífum vandræðum
með þetta hné í
fjögur ár.
Ólafur spilaði
fimmtán leiki af
sautján með slitin
krossbönd leiktíðina 2004
og skoraði þá þrjú mörk.
Síðasta sumar varð síðan
endasleppt þar sem hann sleit
aftur krossbönd og kom aðeins
við sögu í þrem leikjum Fylkis. Það
hlýtur því að vera áfall að lenda í
meiðslum á sama hnénu rétt fyrir
mót eftir að hafa verið kominn í fínt
form.
„Það er ekki hægt að neita því að þetta
er að verða frekar pirrandi. Ég er ekki
enn búinn að fá lokaniðurstöðu og ég
vona það besta enda betri í löppinni en
ég var þegar ég meiddist um daginn,“
sagði Ólafur, sem sagðist ekkert vera
farinn að spá í hvað hann myndi gera í
framhaldinu fari svo að hann sé slitinn
enn eina ferðina.
Forráða- og stuðningsmenn Fylkis liggja
eflaust á bæn eftir góðum niðurstöðum
þegar Ólafur hittir lækni í vikunni þar
sem liðið má illa við þvi að missa Ólaf
úr hópnum en í ljósi fjölda krossbands-
slita hjá félaginu síðustu ár kæmi lítið á
óvart að hann væri slitinn.
KNATTSPYRNUKAPPINN ÓLAFUR STÍGSSON: ENN OG AFTUR MEIDDUR Á SAMA HNÉNU
Þetta er að verða frekar pirrandi
FIMLEIKAR Norðurlandamótið í
áhaldafimleikum um helgina
heppnaðist mjög vel í alla staði og
ekki skemmdi fyrir stórkostlegur
árangur Íslendinganna. Sif Páls-
dóttir, sem er í Gróttu en ekki
Gerplu eins og var rangt með farið
í blaðinu í gær, sigraði í saman-
lögðu á laugardag og bætti svo um
betur í gær þegar hún varð
Norðurlandameistari á tvíslá og
lenti í öðru sæti á jafnvægisslá og
gólfi.
„Ég er gjörsamlega í skýjunum
og þessi árangur er framar mínum
björtustu vonum,“ sagði Sif
kampakát við Fréttablaðið í gær.
„Ég átti von á að blanda mér á
meðal efstu en ekki að sigra og þá
sérstaklega í samanlögðu. Það
kom mér mjög á óvart að sigra í
samanlögðu en ég stefndi á sigur á
tvíslánni og það gekk eftir. Ég held
ég sé að toppa þessa dagana eftir
langt og strangt keppnistímabil og
frábært að uppskera svona ríku-
lega.“
Sif er búin að keppa mjög
grimmt síðustu mánuði og hún
segir að keppnisformið hafi hjálp-
að henni um helgina. Næst á dag-
skrá er að fara á Evrópumótið sem
fram fer í lok apríl og því verður
ekkert slegið af. Svo fær Sif kær-
komið frí en hvað ætlar hún eigin-
lega að gera í fríinu? „Ég hef ekk-
ert pælt í því enda nóg annað að
gera þessa dagana,“ sagði Sif að
lokum.
Rúnar Alexandersson kórónaði
síðan frábært mót hjá íslenska lið-
inu með þvi að landa gulli á tvíslá
og hann nældi síðan í silfur á boga-
hesti, sem hingað til hefur verið
hans sterkasta grein í íþróttinni.
henry@frettabladid.is
Framar björtustu vonum
Fimleikadrottningin Sif Pálsdóttir hélt áfram að fara á kostum á seinni degi
NM. Hún bætti við öðrum Norðurlandameistaratitli sem og tveim silfurpening-
um. Rúnar Alexandersson varð einnig Norðurlandameistari á einu áhaldi.
EINBEITT OG GLÆSILEG Sif Pálsdóttir stal senunni á NM í áhaldafimleikum um helgina.
Gróttustúlkan vann tvö gull og tvö silfur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> Jafnt hjá Silkeborg
Íslendingaliðið Silkeborg gerði marka-
laust jafntefli við Midtjylland í danska
boltanum í dag. Bjarni Ólafur Eiríks-
son og Hörður Sveinsson voru báðir í
byrjunarliði Silkeborg
í leiknum en Hörður
var tekinn af velli á
75. mínútu. Bjarni
Ólafur þótti
standa sig vel
í leiknum og
fékk 8 í
ein-
kunn
hjá
BT en
Hörður aðeins 6 en
hann hefur ekki náð
að fylgja eftir frábærri
byrjun sinni hjá
félaginu.
Við furðum okkur á...
... leikjaniðurröðun KKÍ í úrslitakeppn-
inni sem er gjörsamlega glórulaus.
Hvernig er hægt að setja á leik í
úrslitunum tveim dögum eftir fimmta
oddaleik í undanúrslitunum og svo
aftur tveim dögum síðar? Til að toppa
vitleysuna kemur í kjölfarið fimm daga
frí. Hvorugu liðinu er greiði gerður með
þessari vitleysu.
���������
�������
���������������
�����������
HANDBOLTI Mikil spenna er í DHL-
deild karla nú þegar aðeins tvær
umferðir eru eftir. FH og HK eru
bæði að berjast um að lenda í efri
helmingnum en þau mættust í
gær þar sem FH vann mikilvæg-
an 30-27 sigur og steig stórt skref
í átt að efstu deild næsta tímabil.
Mikið jafnræði var í fyrri hálf-
leiknum og þegar leikmenn héldu
til búningsklefa sinna í hálfleik
var staðan hnífjöfn, 16-16. Þetta
jafnræði hélst í seinni hálfleikn-
um en á lokasprettinum reyndust
FH-ingar sterkari á heimavelli
sínum, komust þremur mörkum
yfir þegar um fimm mínútur voru
eftir og náðu að halda því út leik-
inn.
„Þessi sigur var gott framhald
af því sem við höfum verið að
gera, leikur okkar hefur verið
vaxandi. Við vitum að það er í
okkar höndum hvort við verðum í
efstu deild á næsta tímabili, ef
við klárum okkar leiki náum við
því. Við eigum tvo úrslitaleiki
enn eftir,“ sagði Atli Hilmarsson,
þjálfari FH, eftir leikinn.
Mörk FH: Daníel Berg Grét-
arsson 10, Valur Örn Arnarsson
5, Andri Berg Haraldsson 4, Linas
Kalasauskas 3, Hjörtur Hinriks-
son 3, Pálmi Hlöðversson 2, Hjör-
leifur Þórðarson 2, Tómas Sigur-
bergsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmunds-
son 14/4 Elvar Guðmundsson 7.
Mörk HK: Elías M. Halldórs-
son 9 (3 úr vítum), Valdimar Þórs-
son 4, Remigijus Cepulis 4 (1 úr
víti), Tomas Eitutis 3, Brynjar
Valsteinsson 3, Romualdas Gecas
2, Jón Gunnarsson 1, Ólafur
Ragnarsson 1. - egm
FH hleypti frekari spennu í baráttuna um sæti í efstu deild að ári:
Mikilvægur sigur FH gegn HK