Fréttablaðið - 10.04.2006, Blaðsíða 59
MÁNUDAGUR 10. apríl 2006 39
Með aðstoð löggilds aðila er
hægt að leggja línurnar fyrir
framtíðarheimilið út frá eigin
óskum og þörfum.
Hver kannast ekki við söguna um
parið sem teiknaði draumahúsið
aftan á umslag yfir morgunverðar-
borðinu og einu ári síðar voru þau
flutt inn? Það er ekkert því til
fyrirstöðu að hanna sitt eigið
heimili en þegar hugmyndavinn-
unni er lokið verður að fá einhvern
löggildan aðila til að fullvinna
teikningarnar, til dæmis arkitekt.
Það getur verið kostnaðarsamt en
er þó nauðsynlegt til að húsið
standist allar kröfur, auk þess
sem hann getur bent á eitt og
annað sem mætti betur fara.
Það getur borgað sig að hafa
samband við nokkra arkitekta og
athuga hvern ykkur líst best á.
Arkitektinn þarf að skilja þarfir
ykkar og óskir og ekki sakar að
geta skoðað önnur hús sem hann
hefur hannað. Arkitektinn mun
hafa óbein áhrif á líf ykkar í nýja
húsinu og því er mikilvægt að þið
treystið honum.
Íslendingar þurfa að gera allt
á handahlaupum en reynið að
gefa ykkur góðan tíma í
hönnunarferlið. Hús er dýr fjár-
festing og það borgar sig að gefa
sér tíma til að vanda til verka.
Verið skipulögð við hönnunina og
vinnið í rökréttri röð. Ekki ákveða
til dæmis eldhússkápana áður en
þið ákveðið hvar í húsinu eldhúsið
á að vera.
Reynið að orða hugmyndir
ykkar eins vel og hægt er. Arki-
tektar lesa ekki hugsanir og enn
síður ef þið vitið varla sjálf hvað
þið viljið. Útskýrið því af hverju
þið viljið frekar svona stiga en
hinsegin, tvennar dyr út á pall og
eldstæði inn á bað.
Verið samt tilbúin að þiggja
ráð frá arkitektinum. Áralöng
reynsla getur kennt honum hvað
gengur upp og hvað ekki, auk
þess sem hann kann að luma á
hugmynd sem hentar ykkur enn
betur en það sem þið hafið í huga.
Með þetta í huga er ekki eftir
neinu að bíða. Teygið ykkur í
umslag og byrjið að teikna.
Hús er meira en útveggir og þak. Með því
að hafa óskir ykkar um niðurröðun innan-
húss í huga frá upphafi verður niðurstaðan
sú að húsið passar ykkur eins og hanski.
Hannið draumahúsið sjálf
Til hvers að byggja hús eftir staðlaðri teikningu þegar hægt er að hanna húsið eftir eigin draumum?
neteign.is • Björn Daníelsson, héraðsdómslögmaður og löggiltur fasteignasali • Sími: 595 9090 • Holtasmára 1 • 201 Kópavogi
Ath. fjöldi eigna á söluskrá!
2 herb. - Lækjasmári 6 OPIÐ HÚS
Glæsileg 2 herbergja, 71 fm. íbúð á jarðhæð í Smárahverfinu í Kópavogi. Sér suðurgarður fylgir íbúð-
inni. Fallegar innréttingar eru í íbúð. Húsið er byggt árið 1999. Toppstaðsetning. Verð 17,8 millj.
Vilhelm tekur á móti þér þriðjudag 7. apríl á milli kl. 18.00 og 19.00, íbúð 101.
3 herb. - Digranesvegur í Kópavogi
Falleg 3ja herbergja 74,4 fm. íbúð á frábærum stað í Kópavogi. Íbúðin er í fjórbýli og hefur sér inngang.
Nýlega hefur íbúðin verið endurnýjuð. Eldhús er með nýlegri fallegri Furuinnréttingu. Baðherbergi er
flísalagt í hólf og gólf. Falleg gólfefni eru í íbúð. Raf og vatnslagnir eru mikið endurnýjaðar. Toppeintak
í hjarta Kópavogs. Verð: 18,4 millj.
NÝTT
NÝTT
Fr
u
m
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›