Fréttablaðið - 10.04.2006, Blaðsíða 79
R
V
62
05
Arngrímur Þorgrímsson
Sölustjóri hjá RV
Lotus enMotion
snertifrír skammtari
3.982 kr.
Á tilb
oði í
aprí
l 200
6
Skam
mtar
ar og
tilhe
yrand
i
áfylli
ngar
frá L
otus
Profe
ssion
al
Lotus miðaþurrku
skápur Marathon RVS
4.778 kr.
Lotus miðaþurrku
skápur Marathon
1.591 kr.
Einnig eru á tilboði Lotus sápuskammtari
og statíf í hvítu fyrir Lotus WC pappír.
Einnig eru á tilboði Lotus sápuskammtari
og statíf úr ryðfríu stáli fyrir Lotus WC pappír.
Lotus Professional
Heildarlausn fyrir snyrtinguna
Klám ríður húsum í Skan dinavíu
Af fúsum og frjálsum vilja
Johan Westman, dagskrárstjóri
Kanal 5, segist í viðtali hafa orðið
hissa þegar hann frétti af atvik-
inu. „Mér finnst þetta nokkuð
merkilegt atvik. Stjórnendur
brugðust rétt við með því að sýna
ekki það sem fór fram,” segir
Westman. „En svona líta þátttak-
endurnir á kynlíf og verða að
standa og falla með því. Þetta
atvik snerist um eitthvað sem
tveir aðilar gerðu af fúsum og
frjálsum vilja. Fólk getur haft
misjafnar skoðanir á því að aðrir
hafi staðið hjá og horft á en það
kom aldrei til greina af okkar
hálfu að ryðjast inn og stöðva það
sem fór fram.”
Spurður hvort unga fólkinu
gæti ekki liðið illa á eftir svaraði
Westman: „Við erum með faglært
fólk á svæðinu sem vakir yfir þátt-
takendum og skerst í leikinn ef
það telur þörf á. Við teljum ekki
svo vera nú,” bætti hann við.
„Starfsmenn Kanal 5 beita þátt-
takendur í Stóra bróður þrýstingi,
bæði hvað varðar drykkju og kyn-
líf, og vonast til að skandalarnir
verði sem mestir. Þeir hafa miklu
meiri áhrif innanhúss en fólk sér í
sjónvarpinu,” segir Elita, sem var
meðal þátttakenda í Stóra bróður í
fyrra. Hún vill ekki álasa þátttak-
endunum í ár sem hafa verið dug-
legir við að sofa hjá öðrum þátt-
takendum. „Tökum sem dæmi
þessa sem svaf hjá um síðustu
helgi. Hún er mjög ung og ábyrgð-
in liggur ekki hjá henni heldur hjá
þeim sem velja úr þátttakendur.
Þeir reyna að velja þátttakendur
sem eru trúverðugir og hafa eins
mikið í pokahorninu og hugsast
getur svo skandalarnir verði sem
mestir.“
JESSICA Skorað var á hana að stunda
kynferðislega athöfn með jafnaldra
sínum en þegar atriðið var sýnt vakti
það hörð viðbrögð.
Breska leikkonan Keira Knightley
hefur gefið kjólinn sem hún
klæddist á Óskarsverðlaunaaf-
hendingunni en Knightley var til-
nefnd fyrir leik sinn í Pride &
Prejudice.
Verður hann
seldur hæst-
bjóðanda til
styrktar fátæk-
um íbúum
Austur-Afríku
en uppboðið
hefst 21. apríl
og lýkur
30. apríl. Von-
ast er til að
þúsundir
punda fáist
fyrir kjólinn.
„Þetta er ótrú-
legur kjóll og
ég er virkilega
ánægð að geta
lagt hann til,“
sagði leikkon-
an við blaða-
menn af þessu
tilefni. „Ég hef
séð frétta-
myndir frá
hrikalegum
aðstæðum í
Austur-Afríku
og ég veit hversu mikil örvænting
hefur gripið um sig þar. Þess
vegna finnst mér gott að geta
hjálpað til með þessari gjöf,“ bætti
Knightley við. ■
Knightley
gefur kjól
KEIRA KNIGHTLEY
Hefur gefið kjólinn til
að stemma stigu við
hungursneyðinni sem
geisar nú í Austur-
Afríku.
Handrit kvikmyndarinnar Casa-
blanca hefur verið útnefnt það
besta í kvikmyndasögunni en það
voru tvíburabræðurnir Julius og
Philip Epstein sem skrifuðu það
eftir leikritinu Everybody Comes
to Rick‘s.
Þessi sígilda ástarsaga úr
seinni heimstyrjöldinni með
Humphrey Bogart og Ingrid Berg-
man undir styrkri stjórn Michael
Curtiz hefur átt sinn stað í kvik-
myndasögunni en hún hlaut þrenn
Óskarsverðlaun á sínum tíma. Í
öðru sæti varð fyrirmynd allra
mafíumynda en það er handrit
Mario Puzo og Francis Ford Copp-
ola um Corleone-fjölskylduna í
Guðföðurnum.
Robert Towne og Chinatown
hrepptu síðan þriðja sætið en þar
fór Jack Nicholson hamförum sem
einkaspæjarinn Jake Gittes. Citiz-
en Kane eftir Herman Mankiewicz
og Orson Welles lenti síðan í fjórða
sæti og handritið að All About Eve
eftir Joseph L. Mankiewicz hafn-
aði í því fimmta. Þeir Woody Allen
og Francis Ford Coppola auk Billy
Wilder komu fjórum handritum
inn á þennan efirsótta lista sem
samtök handritshöfunda í Banda-
ríkjunum völdu en Charlie Kauf-
man, William Goldman og John
Houston voru allir með þrjú.
Casablanca best skrifuð
CASABLANCA Hinar forboðnu ástir Rick Blaine og Ilsu Lund heilluðu Samtök bandarískra
handritshöfunda hvað mest upp úr skónum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
THE GODFATHER Túlkun Marlon Brando á Don Corleone er einhver sú eftirminnilegasta
sem sést hefur á hvíta tjaldinu.
TÍU BESTU HANDRIT SÖGUNNAR:
CASABLANCA
THE GODFATHER
CHINATOWN
CITIZEN KANE
ALL ABOUT EVE
ANNIE HALL
SUNSET BOULEVARD
NETWORK
SOME LIKE IT HOT
THE GODFATHER II