Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ����������������������������� „Búið þér við fullt frelsi?“ Fórnaðu ekki frelsinu – kynntu þér opin íbúðalán SPRON á spron.is Opin íbúðalán AR G US / 06 -0 14 6 SIMPLY CLEVER GullnaStýrið Skoda Octavia hefur meðal annars hlotið Gullna stýrið, einhver eftirsóttustu bílaverðlaun heims. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA - 4 0 9 8 Afl og hagkvæmni SkodaOctavia Skoda Octavia með TDI dísilvél sannar að afl og hagkvæmni þarf ekki að vera mótsögn. Hér er kominn bíll sem sameinar fullkomlega sparneytni og kraft. Vélin er 1,9 lítra, aflmikil og hljóðlát og skilar 105 hestöflum. Þrátt fyrir það er eyðslan ótrúlega lítil, aðeins 4,9 lítrar í blönduðum akstri. Svo er Octavia TDI fáanlegur beinskiptur, sjálfskiptur og með sítengdu aldrifi. *M.v. 100 km blandaðan akstur Fyrir örfáum vikum samanstóð íslenska þjóðin af mikilmenn- um. Sumir voru uppteknir við að kaupa upp eigur gömlu herraþjóð- anna á meðan aðrir dunduðu sér við að eignast íslenskar bújarðir undir sveitasetrin sín. Gengi krón- unnar var í sögulegu hámarki, sem þýddi að það margborgaði sig að skreppa til útlanda í verslunar- ferðir og kaupa kannski bíl í leið- inni. Við vorum besti vinur aðal og þetta var allt rosalega hagstætt. Framtíðin var svo björt að við þurftum að vera með sólgleraugu. SVO fóru einhverjir útlendingar að pípa um trúverðugleika við- skiptavitsins. Þetta var auðvitað tóm vitleysa en samt oggulítið pirrandi. Auðvitað var svo smá sjokk að verða allt í einu herlaus og örlaði á persónulegum sárind- um hjá ráðamönnum í garð þeirra amerísku. Svona næstum eins og hjá öryrkja sem kemst að því að þrátt fyrir loforð um annað á að snuða hann samt. Ekki bætti svo úr skák að útlendingarnir fóru af tómri öfund að reyna að klekkja á íslensku krónunni með siðlausum markaðstrixum. Í FÁMENNINU er allt í ökkla eða eyra. Hér eru eiginlega bara tvær verslanakeðjur og ef þú kannt að meta aðra hljóta að vera tómir svíðingar í hinni. Ef þú vilt virkja þá verðurðu að styðja Kárahnjúka- virkjun, annars ertu afturhalds- seggur og mussukommi. Einn dag- inn erum við vonarstjörnur heimsins en þann næsta er allt á leiðinni í niðurfallið. HINN dramatíski vendipunktur varð einhverntíman á leiðinni. Allt í einu voru gleðiefnin dálítið búin og þá voru þau alveg gjörsamlega búin. Píslarvotturinn í hásætinu er ráðalaus en hvetur landsmenn til að reyna umfram allt að halda vinnunni á meðan hallærið gengur yfir. ÓGN og skelfing! Nú finnst sumum brýnast að losna við útlend- ingana sem taka af okkur vinnuna. Hin gefandi fjölmenning orðin tifandi tímasprengja innflytjenda- vandamála, við þurfum bara að líta til nágrannalandanna til að sjá hversu hræðilegt verður hér ef við grípum ekki í taumana. Sumir vilja jafnvel að allt verði aftur eins og í gamla daga þegar svartur maður hefði ekki fengið meiri athygli þó hann spilaði allsber á lúður í Austurstræti. Ísland úr Nató, Schengen, EES og Júróvisíon! Konurnar aftur á bak við eldavél- ina! Í ökkla eða eyra 27.-30. apríl Á NASA við Austurvöll. www.riteofspring.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.