Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 14
 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR14 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Carles býr í Gironella sem er fimm þúsund manna þorp við fjallsrætur Pýreneafjallanna í Katalóníu. „Ég vil ekki vera í stórborgarstressinu þó ég þurfi að kenna bæði í Háskóla Ramón Llull í Barcelona og svo á stofnun í Bilbao sem er tileinkuð kennslu og rannsóknum í tónlistar- þerapíu. Einnig er ég með skjól- stæðinga frá stofnunum sem hýsa fólk sem er andlega og líkamlega fatlað svo það er mikið flandur á mér.“ Hvað er tónlistarþerapía? „Hvað er það fyrsta sem læknir- inn gerir þegar þú leitar til hans?“ spyr Carles á móti þegar hann er inntur eftir því hvernig tónlistar- þerapía virki. „Hann athugar önd- unina sem er ryþmi, svo púlsinn sem er ryþmi líka. Eins vinnum við tónlistarþerapistar með ryþma líkamanns en hver manneskja hefur sinn ryþma og ekki nóg með það heldur víbra líffærin og þess vegna gefa þau frá sér tón. Það hefði sennilegast enginn gaman af því að hlusta á sinfóníuhljómsveit þar sem fiðlurnar væru falskar og blástursleikararnir úr takti. Eins er líkamsstarfsemin ekki heilla- vænleg þegar allt er á skjön. Í ein- földu máli sagt verður því tónlist- arþerapistinn að finna ryþma skjólstæðings síns og nótu þess líf- færis sem koma þarf lag á og reyna svo að stilla líkamann líkt og hljóðfæri og fá hann til að vinna í takti. Þetta hefur reynst vel með Alzheimer-sjúklinga, einhverfa og aðra sem eiga við andlega sem og líkamlega fötlun að etja.“ Faðir hans var nuddari og steppari Carles er fæddur í Brasilíu en for- lendrar hans flúðu harðstjórn Francos og leituðu gæfunnar þar. Karli föður hans virðist hafa tekist þokkalega til því um fimm ára skeið var hann nuddari Pelé hjá Santos-liðinu á sjötta áratugnum. En hann var einnig steppdansari en þar var atvinnuöryggið stop- ulla. Þegar Carles var fimm ára fluttu þau svo til Barcelona og strax þá byrjaði hann að vinna við tónlist. „Föðurbróðir minn hafði mikinn áhuga á mexíkóskum söngvum og fékk hann mig þá, smápollann, til að vera með í slíku tríói ásamt einum í viðbót. Seinna lærði ég svo á gítar en hóf svo nám í slagverks- og píanóleik.“ Hann hefur einnig samið fjöl- mörg tónverk og haldið tónleika víða um Spán. Lækningamáttur tónlistarinnar Ekki var þó útrás Carles lokið því hann fór til Finnlands 18 ára gam- all þar sem hann spilaði fyrir hótelgesti. „Það var þar sem ég fékk áhuga á tónlistarþerapíu enda sá ég bæði á hótelgestum og starfs- fólki hvaða áhrif tónlist getur haft á fólk og langaði mig að rannsaka þessi áhrif nánar,“ segir hann. Eftir að hann lauk námi í tónlistar- þerapíu í Bordeaux í Frakklandi lék hann um nokkurra ára skeið fyrir fanga víðs vegar um Spán. Árangurinn af tónlistarþerapí- unni leynir sér ekki að sögn Carles og hefur honum til dæmis tekist að gera einhverfum manni kleift að tjá sig sem var fyrirmunað að gera það áður. „Hann tjáir sig nú með hljóðum sem við skiljum og um leið og hann fór að geta það byrj- aði hann að vera mun virkari í því sem er að gerast í kringum hann.“ Tónlistarþerapía á Íslandi Valgerður Jónsdóttir hefur unnið við tónlistarþeraíu í tuttugu ár hér á landi. Hún segir sjö kollega vera virka í Félagi músikþerapista á Íslandi sem stofnað var árið 1997. Þessari meðferð er beitt meðal annars á Unglinga- og barnageð- deild, Safamýraskóla, og einnig hefur hún verið notuð á Landakoti og fleiri stofnunum fyrir líkamlega og andlega fatlaða. Valgerður sinn- ir einnig skjólstæðingum sínum á Tónstofu Valgerðar. Til er bæði virk meðferð þar sem skjólstæðingurinn tekur sjálf- ur þátt með tónlistariðkun og sköp- un og eins óvirk þar sem þeir þættir eru alfarið í höndum þerapistans. jse@frettabladid.is PELÉ OG GERMAN „BOTAFAGO“ COLLADO Faðir Carles, German, nuddaði Pelé sjálfan um nokkurra ára skeið þegar sá síðarnefndi lék með Santos. Með taktinn og tónlistina í öllum skrokknum Réttu tækin í þrifin Nilfisk-ALTO háþrýsti- dælur á tilboðsverði Nilfisk-ALTO C 100 Þrýstingur: 100 bör Vatnsmagn: 440 l/klst. 6.888 kr. Nilfisk-ALTO P 150 X-TRA Þrýstingur: 150 bör Vatnsmagn: 610 l/klst. 48.888 kr. Vortilboð RVNilfisk-ALTO háþrýstidælur R V 62 06 B Bjarnþór Þorláksson bílstjóri RV Tilboðið gildir út maí 2006 eða meðan birgðir endast. Þau eru misjöfn meðulin sem menn beita til að hjálpa fólki sem ekki gengur heilt til skógar. Tónlistarþerapist- inn Carles Perez Collado notar tóna og ryþma og hefur meðal annars gert málhömluðum kleift að tjá sig. Hann fæddist í Brasilíu en faðir hans nuddaði sjálfan Pelé um nokkurra ára skeið. CARLES PEREZ COLLADO Tónlistarþerap- istinn er þarna í góðum gír í þorpi sínu Gironella í Katalóníu. Það getur þó verið nokkuð langt í vinnu fyrir hann enda kennir hann bæði í Barcelona og Bilbao. Sjálfur leikur hann á píanó og slagverk og hefur haldið tónleika víða um Spán. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR DANSAÐ Í HONG KONG Þeir voru ekkert sérstaklega frýnilegir þessir dansarar sem fögnuðu afmæli gyðjunnar Tin Hau. Hún verndar sjómenn samkvæmt taóískri trú og því eins gott fyrir sjósæknar þjóðir að halda við hana góðum tengslum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fnykur á Klaustri „Maður finnur enga lykt en á Klaustri er víst ógurleg stækja.“ ODDSTEINN KRISTJÁNSSON BÓNDI Í HVAMMI Í SKAFTÁRTUNGU UM AFLEIÐINGAR SKAFTÁRHLAUPS. FRÉTTABLAÐIÐ. Skopleg hægrimennska „Davíð barði niður frjáls- hyggjuliðið. Gerði það handgengið sér þannig að hægrimennskan breyttist í skoplegan átrúnað á Davíð sjálfan.“ BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON UM SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN Í TÍÐ DAVÍÐS ODDSSONAR. MORGUNBLAÐIÐ. „Það er ýmislegt að frétta enda verður maður að hafa sig allan við og bjarga sér þegar atvinnuástandið er í svo mikilli lægð eins og nú er hér á Hvammstanga,“ segir Hólmfríður Bjarnadóttir, atvinnurekandi, ferðafrömuður og verkalýðskona. Nýverið var öllu starfsfólki rækjuverksmiðjunar Meleyrar sagt upp en einnig hefur prjónastofa bæjarins verið lögð niður og svo kom til uppsagna hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga fyrir skömmu. „Við erum með eina selaskoðunarbát landsins, Ákann, en við byrjuðum á því í fyrra að fara með ferðamenn í skoðunarferðir. Yfir- leitt var nóg um sel svo engum varð um sel en svo kom fyrir að hann væri upptekinn og léti ekki sjá sig. Í sumar þegar Selasetrið tekur til starfa verða selskoðunin og setrið rekin saman svo við erum í fullum undirbúningi.“ Fyrir utan það að vera með eina selaskoð- unarbátinn er hún eini rörbútaframleiðandinn hér á landi. „Það voru tvær slíkar verksmiðjur hér á landi en þegar þær hættu rekstri keypt- um við vélar og tæki af þeim báðum. Nú erum við, ég og maðurinn minn, með þetta úti í bílskúr og seljum svo afurðina í byggingavöru- verslanir og þetta gengur bara ágætlega.“ Hvað verkalýðsmál áhrærir segir Hólm- fríður, sem einnig starfar í Stéttarfélaginu Samstöðu, að menn bindi nú vonir við það að Fæðingarorlofssjóði verði fundinn staður við Húnaflóann og að Hvammstangi fái nokkur stöðugildi þar með. „Einnig fylgjumst við spennt með viðræðum ófaglærðra á hjúkrunarstofnunum en það eru tvær heilbrigðisstofnanir í Húnavatnssýsl- um,“ segir hún en setur svo vélina einstöku í gang og fer að snitta rörbúta. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HÓLMFRÍÐUR BJARNADÓTTIR ATVINNUREKANDI Á HVAMMSTANGA Sú eina með rörbútavél og selabát

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.