Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 25. apríl 2006 3 OF STUTTUR EÐA OF LANGUR TÍMI Á MILLI BARNEIGNA EYKUR LÍKUR Á VANDAMÁLUM HJÁ SEINNA BARNI. Samkvæmt rannsókn sem gerð var nýlega geta lang- ar sem skammar pásur á milli barneigna aukið líkur á heilsufarsvandamálum hjá því barni sem kemur eftir slíkt hlé. Of stutt hlé er talið minna en tvö ár og of langt meira en fimm ár. Í rannsókninni var notast við 67 áður gerðar rannsóknir á yfir ellefu milljónum barnsburða. Í rannsókninni kom fram að ef hlé væri minna en átján mánuðir ykist hættan á fæðingu fyrir tímann um tæplega tvö prósent fyrir hvern mánuð, hættan á of lágri fæðingarþyngd um 3,3 pró- sent og að barnið væri of lítið miðað við þroskastig um 1,5 prósent fyrir hvern mánuð sem hléið var stytt. Ef hins vegar of langt hlé væri tekið myndu líkurnar á fæðingu fyrir tímann aukast um tæplega 0,6 prósent, að barnið yrði of létt við fæðingu um 0,9 prósent og að það yrði of lítið miðað við þroskastig um 0,8 prósent fyrir hvern mánuð sem hléið var lengt. Ekki þykir þó mikil ástæða til að hafa áhyggjur þar sem læknar eiga að geta veitt rétta umönnun til að koma í veg fyrir þessa þætti. (www.bbc.co.uk/health) Hlé milli barneigna Hæfileg pása á milli barneigna er tvö til fimm ár samkvæmt nýjustu rannsóknum. Notkun þunglyndislyfja í Bretlandi hefur aukist um 120 prósent síðustu áratugi. Samkvæmt könnun enska blaðsins The Independent sem birtist á páskadag hefur notkun þunglynd- islyfja þar í landi aukist um meira en 120 prósent á síðustu áratugi. Út af þessari miklu aukningu og þeirri staðreynd að um þrjár og hálf milljón Breta þjáist af þung- lyndi og kvíða vilja sérfræðingar innan heilbrigðiskerfisins endur- skoða meðferðarúrræði í landinu. Ríkisstjórn Englands hyggst bregðast við áhyggjum lækna sem segjast verða að skrifa upp á svo- kallaðar „gleðipillur“ sem næst- besta úrræðið við snarauknu þunglyndi og kvíða í landinu. Bið- listar hjá meðferðaraðilum innan heilbrigðiskerfisins eru oft á tíðum allt að tvö ár og ná þeir því engan veginn að taka á móti öllum sem á þyrftu að halda. Heilbrigð- isráðherra Bretlands, Patricia Hewitt, mun kynna róttæka aukn- ingu á samtalsmeðferðum sem mótvægi við lyf eins og Prozac sem mun kosta heilbrigðiskerfið meira en 400 milljón pund á ári. Heilbrigðisráðherrann telur að milljónir einstaklinga með milt eða miðlungs þunglyndi geti lært að lifa hamingjusamari lífi án þess að treysta á lyf. Talið er að nýja kerfið verði prufukeyrt á tveimur svæðum sem hafa sérstaklega hátt hlutfall fólks á örorkubótum en þriðjung- ur þess er talinn þjást af þung- lyndi. Frétt af www.persona.is Þunglyndi Breta eykst Margir Bretar þjálst af þunglyndi Niðurstöður rannsóknar á vegum Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri verða kynntar á Hótel KEA í dag klukkan 14.30. Alþjóðlega rannsóknin Heilsa og lífskjör skólanema var lögð fyrir þrettán þúsund íslensk ungmenni á aldrinum tólf til sextán ára nú í febrúar og mars. Um fjörutíu lönd tóku þátt í könnuninni og meðal þess sem ungmennin voru spurð um var lífstíll, næring, hreyfing, félagsleg tengsl og ýmis áhættu- hegðun eins og neysla vímuefna og áhætta í kynlífi. Fyrstu niður- stöður ransóknarinnar, sem gerð var á vegum Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri, liggja nú fyrir og verða kynntar á fundi á Hótel KEA í dag klukkan 14.30. Lífskjör skólanema Niðurstöður rannsóknar á heilsu og lífs- kjörum skólanema verða kynntar á Hótel KEA í dag. ���������� Heitustu vörurnar Verslun Vítamin.is - Ármúla 32 s. 544 8000 • Opið mán-fös 10-18 & laug 11-15 Verslun Vítamin.is - Gránufélagsgötu 4 (JMJ Húsi) s. 466 2100. Opið mán-fös 16-18.30 & laug 11-13. 3.600kr 5.900kr 3.900kr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.