Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 2
2 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN Ólafur F. Magnússon, læknir og borgarfulltrúi 1 sæti „ Tryggjum að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni.“ Bílvelta við Mótel Venus Ökumað- ur missti stjórn á bíl sínum á Vestur- landsvegi, skammt frá Mótel Venus, í gærmorgun með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Ökumaðurinn slasaðist lítillega. Slapp ómeidd Kona á fertugsaldri slapp ómeidd þegar bíll hennar valt skammt frá Hvolsvelli snemma í gær- morgun. Að sögn lögreglu var skyggni slæmt á staðnum og hálka á veginum. LÖGREGLUFRÉTTIR SPURNING DAGSINS Rúnar, á framhaldsmyndin að heita Næstsíðasti bærinn í dalnum? „Nei. það er engin hætta á því.“ Íslenska stuttmyndin Síðasta bærinn í dalnum er að gera það afar gott á erlendum kvikmyndahátíðum. Ekki er óalgengt að framhaldsmyndir fylgi í kjölfarið en Rúnar Rúnarsson kvikmyndagerðarmaður segir það ekki á döfinni. LEIKSKÓLAR Megn óánægja ríkir meðal starfsmanna leikskólans Leikgarðs, svo og margra for- eldra barna á honum, vegna fyrir- hugaðrar yfirtöku Félagsstofnun- ar stúdenta á rekstri hans. Stór hluti faglærðra starfsmanna hyggst hætta störfum ef af yfir- tökunni verður. Þá eru einhverjir foreldranna að vinna í því að koma börnum sínum í aðra vistun og sumir eru jafnvel búnir að því. Reykjavíkurborg hefur rekið Leikgarð og gerir enn. Í mars var lagt fram á fundi menntaráðs borgarinnar minnisblað frá skrif- stofustjóra leikskólaskrifstofu varðandi erindi Félagsstofnunar stúdenta um kaup á húsnæði leik- skólans Leikgarðs og yfirtöku reksturs hans. Menntaráð tók jákvætt í erindið og samþykkti að ganga til viðræðna við stofnunina. Að sögn Guðrúnar Björnsdóttur, framkvæmdastjóra Félagsstofn- unarinnar, er miðað að því að yfir- takan eigi sér stað í haust ef hún gengur eftir, en það ætti að skýr- ast endanlega á allra næstu vikum. Yfirtökuferlið sé hafið og verið að vinna þá vinnu sem til þurfi. Á Leikgarði dvelja nú börn á aldrinum 2-6 ára. Þar starfa alls fimmtán starfsmenn, sumir í hlutastörfum. Af starfsmanna- hópnum eru átta faglærðir. „Okkar markmið er að fjölga plássum fyrir börn yngri en tveggja ára,“ segir Guðrún. „Það er alls ekki víst að leikskólinn verði eingöngu fyrir þann aldurs- hóp. Við rekum annan leikskóla, Mánagarð, fyrir börn á aldrinum 2-6 ára og munum skipuleggja það innanhúss hjá okkur hvort við höfum öll börnin á einum skóla eða dreifum þeim á báða.“ „Ég kem til með að hætta,“ sagði einn starfsmanna Leikgarðs, sem Fréttablaðið ræddi við í gær. „Þetta hefur með ýmis réttindi og skyldur að gera, svo sem lífeyris- sjóðsmál og fleira. Þá verður þetta ungbarnaskóli, þannig að starfs- vettvangurinn breytist og vinnu- veitandinn verður annar. Það er mjög vel mannað hérna. Fólkið er að vinna gott starf og allir eru ánægðir. En nú lítur út fyrir að við séum að fara að leita okkur að öðru starfi.“ Ásdís Arnardóttir, foreldri sem á barn á Leikgarði, segir mikla óánægju ríkja meðal foreldra vegna skorts á samráði, upplýs- ingum um gang mála og fyrirhug- aðar breytingar á aldurshóp barn- anna. Hún kveðst nú hafa fengið inni fyrir sitt barn í Landakots- skóla. jss@frettabladid.is LEIKGARÐUR Yfirtaka Félagsstofnunar stúdenta á rekstri leikskólans Leikgarðs er í ákveðnu ferli, að sögn framkvæmdastjóra. Gert er ráð fyrir að af henni verði í haust. Leikskólakennarar hyggjast segja upp Faglærðir starfsmenn á leikskólanum Leikgarði ætla að hætta störfum ef Félagsstofnun stúdenta tekur yfir rekstur hans af Reykjavíkurborg. Þá er megn óánægja í hópi foreldra barna á leikskólanum með fyrirhugaða yfirtöku. FUGLAFLENSA Rúmlega þrjátíu sýni sem send voru úr fuglum hér á landi til Svíþjóðar, til rann- sóknar á því hvort í þeim fyndist fuglaflensuveira, reyndust vera neikvæð. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir sagði að um 31 sýni hefði verið að ræða. Þau hefðu verið tekin úr tveimur hröfnum á Höfn í Hornafirð. þremur stokköndum frá Akur- eyri, einni álft úr Þykkvabæn- um, einum sílamávi og 24 svart- bökum frá Álfsnesi á Kjalarnesi. Að sögn Halldórs eru stöðugar sýnatökur í gangi og einhver sýni til viðbótar nú ytra til rann- sóknar. - jss Yfirdýralæknisembættið: Fuglaflensu- sýni neikvæð LÖGREGLUMÁL Lögregla hafði tals- verðan viðbúnað þegar starfs- menn Þjóðarbókhlöðu óskuðu aðstoðar vegna manns sem virtist ætla að ræna einni af almennings- tölvum safnsins um miðjan dag í gær. Að sögn starfsmanna var ekki ljóst hvort maðurinn, sem virtist vera í annarlegu ástandi, ætlaði að stela tölvunni eða hvort aðeins var um fikt að ræða en þegar starfs- menn fóru fram á skýringar lét hann sig hverfa. Náðist hann skömmu seinna. - aöe MIKIL VIÐBRÖGÐ Tveir lögreglubílar þustu að Þjóðarbókhlöðunni um miðjan dag í gær vegna ölvaðs manns sem sýndi tilburði til að ræna einni af almenningstölvum safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Uppþot í Þjóðarbókhlöðunni: Reyndi að ræna tölvu Ók á ljósastaur Engin slys urðu á fólki þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum í hálku, með þeim afleiðingum að bíllinn endaði á umferðarljósastaur. Slysið varð á Nýbýlavegi rétt eftir klukkan átta í gærmorgun. Engin slys urðu á fólki. STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ræddi í gær stöðuna í öryggis- og varnarmál- um Íslendinga við Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, en Rasmussen átti viðkomu á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Grænlands. „Þetta varðar öryggi almennt í norður- höfum. Ráðgert er að loka ratsjá í Færeyjum og breytingar eru fyrirhugaðar á Grænlandi. Ég tel mikilvægt að Danir geri sér grein fyrir þessari stöðu því hún mun koma til umræðu innan Atlants- hafsbandalagsins fyrr eða síðar þegar línur skýrast.“ Halldór segir að fyrir liggi að umferð um hafið fari vaxandi og menn hafi nokkrar áhyggjur af auknum siglingum með olíu- og gas. „Það er leitað að olíu við Fær- eyjar og ætla má að leitað verði að olíu í kringum Jan Mayen í framtíðinni, ekki síst í ljósi hækk- andi olíuverðs. Margir telja að það sé varanlegt. Þetta er mál sem kallar á samstarf margra ríkja.“ Halldór segir að til greina komi að taka málið upp á leiðtoga- fundi Eystrasaltsráðsins en hann verður haldinn í Reykjavík í júní næstkomandi. Halldór segist einnig hafa rætt efnahagsmál við forsætisráð- herra Dana. „Það er ljóst að danska ríkisstjórnin fagnar fjár- festingum Íslendinga í Dan- mörku.“ - jh Halldór Ásgrímsson ræddi varnar- og efnahagsmál við Anders Fogh Rasmussen: Nánari samvinna á döfinni ANDERS FOGH RASSMUSSEN Dönsk stjórnvöld eru ánægð með fjárfestingar Íslendinga í Danmörku. KJARAMÁL „Það er bara allt í hnút“, sagði Álfheiður Bjarnadóttir, tals- maður starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, eftir samn- ingafund í kjaradeilu starfsmanna sem var haldinn hjá ríkissátta- semjara í gær. Fulltrúar Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðis- þjónustu sátu fundinn en reynt er að ná samkomulagi fyrir föstudag til að koma í veg fyrir að vikulangt setu- verkfall skelli á og fjöldauppsagn- ir fylgi. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir enga niðurstöðu hafa fengist á fundinum. „Þetta hefur gengið hægar en menn reiknuðu með en við setjumst aftur niður á morgun til að sjá hvort ekki megi koma málinu í höfn.“ Sigurður segist vera hóf- lega bjartsýnn á að niðurstaða fáist í deiluna fyrir föstudag. „Þetta mál getur farið á tvo vegu. Það er ákveðinn hnútur í málinu.“ Kristján Sigurðsson, formaður samninganefndar Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, segir að heilmikið hafi þokast í samkomulagsátt og bindur vonir við fundinn í dag sem hefst klukk- an eitt. - shá Samningar starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum: Kjaradeila í hnút eftir fund ÁLFHEIÐUR BJARNADÓTTIR Talsmaður starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum segir allt vera í hnút. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA EGYPTALAND, AP Minnst 22 fórust í þremur mannskæðum sprenging- um í ferðamannaborginni Dahab í Sinai-héraði Egyptalands í gær- kvöldi. Yfir 150 slösuðust á einu hóteli, samkvæmt upplýsingum lögreglu og lækna, en óljóst var um heildartölu hinna slösuðu þegar Fréttablaðið fór í prentun. Sprengjurnar þrjár sprungu í miðbæ Dahab skömmu eftir myrk- ur, á tíma þegar götur, verslanir og veitingastaðir voru yfirfull af ferðamönnum og heimafólki. Þær sprungu á hóteli, á lögreglustöð og á útimarkaði, að sögn sendiherra Ísraels í Kaíró. - smk Mannskæðar sprengingar: Tugir farast í Egyptalandi RÚMENÍA, AP Tveir flóðvarnargarð- ar brustu við Dóná í austurhluta Rúmeníu í gær og voru hundruð húsa í hættu af þeim völdum. Vatnsmagnið í fljótinu hefur aldrei mælst meira en nú á þessum slóð- um, skammt frá ósum árinnar við Svartahaf. Um 10.000 íbúum á flóðahættu- svæðinu var í gær gert að yfirgefa heimili sín, þar á meðal í bæjunum Bistret og Sarata. Í hafnarborg- inni Galati mældist vatnsborð árinnar 6,57 metrar, en það er einum sentimetra hærra en fyrra met frá því mælingar hófust, en það var sett árið 1897. - aa Flóðin í Dóná: Þúsundir Rúm- ena á flótta ALLT Á FLOTI Íbúar þorpsins Rast í Vestur- Rúmeníu sigla hjá rústum umflotinna húsa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SIGURÐUR BESSASON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.