Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 12
12 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR NEPAL, AP Nepalskir hermenn hrundu í gær árás skæruliða maó- ista í norðvesturhluta landsins. Í höfuðborginni reyndi óeirðalög- regla að framfylgja útgöngubanni fimmta daginn í röð, en með þeim ráðstöfunum eru stjórnvöld að reyna að stemma sigu við fjölda- mótmælum gegn Gyanendra kon- ungi. Fimm skæruliðar og einn stjórnarhermaður féllu í árás skæruliða á herbúðir og stjórnar- byggingar i bænum Chautara í Norðvestur-Nepal í dögun í gær- morgun, að því er talsmaður varn- armálaráðuneytisins greindi frá. Uppreisnarmenn maóista hafa náð stórum hluta dreifbýlisins í Nepal á sitt vald á þeim tíu árum sem þeir hafa háð baráttu sína gegn konungsstjórninni. Um 13.000 manns hafa látið lífið í átök- unum á þessu tímabili. Fjöldamótmæli hafa skekið höfuðborgina síðustu vikurnar og hafa hundruð manna særst í átök- um við óeirðalögreglu. Mótmæl- endur krefjast þess að Gyanendra konungur láti af hendi alræðis- vald það sem hann tók sér snemma árs í fyrra. Allir stjórnmálaflokk- arnir og uppreisnarmenn maóista styðja kröfurnar. - aa Ekkert lát á ólgunni í Nepal: Mótmæli þrátt fyrir útgöngubann ÓEIRÐIR Í KATMANDÚ Nepalskir drengir leika sér við brennandi vegartálma þar sem mót- mælendur og óeirðalögregla áttust við í Katmandú í gær. NORDICPHOTOS/AFP Virðing Réttlæti VR félögum standa til boða um 50 orlofshús víða um land auk 30 tjaldvagna. Í boði er vikuleiga eða skammtímaleiga. Orlofsvikum er úthlutað og sækja þarf sérstaklega um þær. Sé um skammtímaleigu að ræða gildir reglan „fyrstur bókar fyrstur fær.“ Opnað er fyrir bókanir í skammtímaleigu frá 18. apríl. Nánari upplýsingar er að finna á www.vr.is, í VR-blaðinu og í þjónustuveri VR, sími 510 1700. Orlofshús og tjaldvagnar – Umsóknarfrestur til og með 26. apríl Gleðilegt sumar! F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS FÆRÐ ÞÚ 200.000 KR. NÁMSSTYRK? Glitnir veitir á þessu ári sex félögum í Námsvild Glitnis 200.000 kr. námsstyrk. Það eina sem þú þarft að gera er að sækja um fyrir 10. maí nk. og þú gætir hlotið styrk. Sæktu um núna á glitnir.is/namsstyrkur H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA www.glitnir.is NÁMSVILD PAKISTAN, AP Talsmenn Hvíta húss- ins í Bandaríkjunum segjast full- vissir um að hljóðupptakan sem sögð var vera frá Osama bin Laden og send var út á al-Jazeera sjón- varpsstöðinni á sunnudag sé ósvik- in. Á upptökunni hvatti bin Laden fylgismenn sína til að búa sig undir langt stríð gegn Vesturlönd- um. Yfirvöld í Pakistan tilkynntu í gær að þau héldu áfram að leita að bin Laden og lýstu því jafn- framt yfir að þau berðust einnig gegn hryðjuverkum almennt en einblíndu ekki bara á að finna al- Kaída-foringjann. Talið er að hann sé í felum í fjöllum við landamæri Pakistans og Afgan- istans. - smk Orðsending bin Ladens: Upptakan er talin ósvikin OSAMA BIN LADEN Ódagsett mynd af al- Kaídaforingjanum Osama bin Laden. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BORGARMÁL Vogaskóli og Mennta- skólinn við Sund eru miðja höfuð- borgarinnar samkvæmt nýlegum útreikningum þar að lútandi. Eigi er langt síðan reiknimeist- arar komust að því að þungamiðja búsetu í Reykjavík væri í Fossvogi og nú er staðfest að miðpunktur borgarinnar er skólarnir tveir í Vogahverfinu en fjölmargir hafa lagt fram fyrirspurnir um þetta á undanförnum misserum. - aöe Búið að reikna út hvar miðja Reykjavíkur er: Vogaskóli nafli borgarinnar VOGASKÓLI Vegna fjölda fyrirspurna var reiknað út hvar miðja höfuðborgarinnar er. Hún er við Vogaskóla og Menntaskólann við Sund.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.