Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 41
Breska blaðið News of the World birti á sunnudaginn viðtal við fyrirsætuna Jenny Shimizu, sem upplýsti að hún hefði átt í eldheitu ástarsambandi við poppdrottning- una Madonnu. Shimizu var einnig á síðum blaðsins fyrir viku þegar hún sagðist hafa verið kærasta leikkonunnnar Angelinu Jolie og tjáði blaðamanni að Jolie yrði aldrei jafn hamingjusöm og þær voru. „Marga karlmenn dreymir um að komast í kynni við þær tvær en ég lét drauminn rætast,“ sagði Shimizu, nokkuð kokhraust. Viðtalið er nokkuð svæsið og er hvergi dregið undan í kynlífslýs- ingunum. „Hún sá mig í tónlistar- myndbandi og vildi fá að hitta mig í einrúmi,“ segir Shimizu. „Hún bauð mér síðan í kvöldmat en þar gerðist ekkert. Við fundum hins vegar báðar fyrir miklum straum- um,“ bætir Jenny við en hún er gift Rebeccu Loos, sem komst í heimsfréttirnar eftir að í ljós kom að hún hafði verið viðhald knatt- spyrnukappans David Beckham. „Við hittumst síðan aftur í teiti og þá hafði ég á tilfinningunni að við myndum eyða nóttinni saman,“ segir Jenny og viðurkenndi að hún væri mikill aðdáandi Madonnu. „Ég hef horft á myndböndin henn- ar frá fjórtán ára aldri og alltaf viljað sofa hjá henni,“ útskýrir Jenny í viðtalinu. Þær hafi síðan átt nokkrar funheitar nætur saman á hótelherbergjum í kjölfarið. „Þetta var ekki tilfinningalegt heldur var ég kynlífsþrællinn hennar.“ Kynlífsþræll Madonnu JENNY SHIMIZU Hefur upplýst að hún hafi átt í eldheitu ástarsambandi við Mad- onnu en í síðustu viku komst Shimizu á forsíðurnar eftir að hafa sagt frá átta ára sambandi sínu við Angelinu Jolie. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES MADONNA OG GUY RITCHIE Ekki er vitað hver viðbrögð Guy voru við fréttum blaðs- ins News of the World um meint ástarsam- band eiginkonu hans við Jenny Shimizu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Árið 1996 lagði strákasveitin Take That upp laupana eftir að hafa tryllt ófáar unglingstúlkur með sykur- sætu útliti og þaulæfðum danspor- um. Tíu árum síðar eru strákarnir komnir aftur saman og voru fyrstu tónleikarnir í Newcastle en þeir mörkuðu upphaf tónleikaferðar um Bretland. Ástæða þess að Take That hætti á sínum tíma var stöðugt ósætti forsprakkans Gary Barlow og Robbie Williams en sá síðar- nefndi þótti nokkuð ódæll og hallur undir margvísleg vímuefni, sem samræmdist ekki ímynd sveitar- innar. Þegar Williams hóf sinn eigin tónlistarferil nýtti hann vinsældir sínar óspart til að skjóta á Barlow, sem náði sér engan veginn á strik eftir að Take That hætti störfum. Stríðsöxin virtist hins vegar hafa verið grafin að hluta á tónleikunum því Williams birtist sem þriggja metra há heilmynd á sviðinu og söng með sveitinni í laginu Could It Be Magic. Robbie með Take That TAKE THAT Strákasveitin kom saman að nýju í Newcastle á sunnudagskvöldið og söng sjálfur Robbie Williams með en eingöngu sem heilmynd. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES ÞAÐ SKPTIR ENGU MÁLI HVERSU GOTT PARTÍIÐ ER EF ÞAÐ ENDAR ÖMURLEGA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.