Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 40
[ KVIKMYNDIR ] UMFJÖLLUN Ég fór á þessa mynd með gjör- samlega engar væntingar en náði þó að verða fyrir vonbrigðum. Sem er ekki gott. Hún fjallar um Paulu, sem sérhæfir sig í því að hjálpa ósjálfstæðum mönnum sem búa hjá foreldrunum að fljúga úr hreiðrinu. Það eru for- eldrarnir sem ráða hana og hún heillar mömmustrákana upp úr skónum, þykist vera kærasta þeirra og í flestum tilvikum tekst henni vel upp og fær skjólstæð- inginn til að flytja að heiman. Hins vegar er annað uppi á ten- ingnum þegar hún kynnist Trip, þar sem hann er svo ómótstæði- lega heillandi karakter (hahaha) að hún ræður ekki við sig heldur verður ástfangin af honum og setur það strik í reikninginn. Aðalhlutverkin leika þau Sarah Jessica Parker (S.A.T.C. vinkona mín sem veldur mér sífelldum vonbrigðum með verk- efnavali sínu) og Matthew McConaughey. Þau standa sig ágætlega sem ástfangið par í þessari mynd þó að afbrigðilegur húðlitur og tannlitur þeirra hafi haft truflandi áhrif á mig en þau eru á litinn eins og appelsínur með sjálflýsandi tennur alla myndina. Söguþráðurinn er hinn hörmu- legasti og gerður enn hörmulegri af handritshöfundum með því að bæta inn fáránlegu dýragríni með reglulegu millibili. Þarna koma við sögu árásargjarn höfrungur, íkorni og hermikráka svo eitthvað sé nefnt og gera þessir litlu aukaleikarar það að verkum að myndin verður heldur lélegri en hún hefði getað orðið. Það er mér óskiljanlegt hvers vegna ekki er hægt að gera gamanmynd í dag án þess að bæta einhverjum ólukkans fífla- látum í hana. Hér er ég til dæmis að hugsa til ógeðsmyndanna Meet the Parents og Meet the Fuckers en þessi mynd er af sama sauða- húsinu þó svo að kjánaskapurinn sé kannski heldur minni hér. Ef ekki væri fyrir allt dýra- glensið hefði myndin verið vel þolanleg og jafnvel bara pínu skemmtileg. Þarna má alveg finna nokkra brandara sem hægt er að hnussa við ef vel er leitað. Zooey Deschanel er ágæt í sínu hlutverki og Sarah er náttúrlega voða sæt. Það er því ekki ólíklegt að þeir áhorfendur sem þjást ekki af krónískum aulahrolli yfir dýragríninu muni jafnvel hafa gaman af þessari mynd. Að lokum vil ég biðja bíóaug- lýsinga-lesara um að hætta að kalla myndina „Failure to Lunch“ í auglýsingunum. Myndin fjallar ekki um misheppnaðan hádegis- verð og þessi rangi framburður lesaranna gæti því valdið nokkrum misskilningi. Í rauninni ætti myndin að heita „Failure to Make a Good Romantic Comedy“ en það er kannski óþarfi að fara nánar út í það. Borghildur Gunnarsdóttir Misheppnuð gamanmynd FAILURE TO LAUNCH LEIKSTJÓRI: TOM DEY AÐALHLUTVERK: SARAH JESSICA PARKER, MATTHEW MCCONAUGHEY, KATHY BATES, ZOOEY DESCHANEL. Niðurstaða: Ef ekki væri fyrir allt dýraglensið hefði myndin verið vel þolanleg og jafnvel bara pínu skemmtileg. Þarna má alveg finna nokkra brandara sem hægt er að hnussa við ef vel er leitað. Það er því ekki ólíklegt að þeir áhorfendur sem þjást ekki af krónískum aula- hrolli yfir dýragríninu muni jafnvel hafa gaman af þessari mynd. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa um skeið stað- ið fyrir reglulegum kvikmynda- sýningum í Alþjóðahúsinu. Í kvöld sýnir Amnesty sænsku myndina „Born Slave“ sem fjall- ar um þrælahald í Máritaníu, sem er eitt af Vestur-Afríkuríkjunum og liggur að Senegal. Þrælahald var afnumið í landinu samkvæmt lögum árið 1981 en tíðkast þar enn í miklum mæli. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi, segir að allt að áttahundruð þúsund til milljón manns séu enn í dag í haldi Mára, frumbyggja Márítaníu. „Myndin byggir á viðtölum við fólk sem tekist hefur að losna undan þrælahöldurum og segir fólkið frá aðstæðum sínum og aðbúnaði á þeim tíma sem það var í haldi.“ Jafnframt er rætt við fólk sem vinnur að mannúðarmálum á svæðinu en samtökin SOS- Slavery eru meðal þeirra frjálsu félagasamtaka sem hafa unnið að því að aðstoða fólk við að losna úr prísundinni og hjálpa því að hefja nýtt líf. „Annars er hugmyndin að þessarri sýningu sú að benda á hversu gífurlega fyrirferðar- mikið þrælahald eða form af þrælahaldi, svo sem mansal og vændi, er víða, til dæmis í Vestur- Afríku, í Suður-Ameríku, Asíu og Austur-Evrópu,“ útskýrir Jóhanna. Hún mun halda erindi um mál- efni Márítaníu áður en myndin hefst en sýningin byrjar kl. 20. Aðgangur er öllum opinn. - bb Nútímaþrælahald JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI AMNESTY INTERNATIONAL Mannrétt- indasamtökin Amnesti International sýna í kvöld mynd um þrælahald. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA ÞAÐ SKPTIR ENGU MÁLI HVERSU GOTT PARTÍIÐ ER EF ÞAÐ ENDAR ÖMURLEGA SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu PÁSKAMYNDIN 2006 SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI STÆRSTA MYND ÁRSINS - VJV, Topp5.is - HJ MBL RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR 42.000 MANNS Á AÐEINS 18 DÖG UM! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! - JÞP Blaðið ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA HVAÐ SEM ÞÚ GERIR, EKKI SVARA Í SÍMANN! - LIB, Topp5.is - Dóri DNA, DV - DÖJ, Kvikmyndir.com STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA DYRAVERÐIR VIÐ SALINN! THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 kl. 6 og 8 M/ENSKU TALI ÍSÖLD 2 kl. 6 M/ÍSL. TALI WHEN A STRANGER CALLS kl. 10 B.I. 16 ÁRA THE HILLS HAVE EYES kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 kl. 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WALK THE LINE kl. 5.30 WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA THE HILLS HAVE EYES kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 4, 6, 8 og 10 ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6 DATE MOVIE kl. 4, 6 og 10 B.I. 14 ÁRA „MANNSKEMMANDI HRYLLINGSMYND“ K.M. - BIO.IS „HREINN VIÐBJÓÐUR“ H.Þ.A. - BIO.IS ,,HOSTEL ER EINS OG DRAUMALANDIÐ Í SAMANBURÐI VIÐ THE HILLS HAVE EYES” J.G.G. SENA ALLRA SÍÐUSTU S ÝNINGAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.