Fréttablaðið - 27.04.2006, Qupperneq 10
10 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
������������������������ ������������
����������������������������������������
��� ����������� ���������������������
����������������������������
��������������
��������������������������������������� ���������������������������������������������
�������������������������������������������������������� �� ������������
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
���������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
�������������������������������������������������������������������������� ������������������������������� ����������������
����������������������������
���������������������������������������������
�����������������������������������������
DÓMSMÁL Maður á fertugsaldri
hefur verið dæmdur í sex mánaða
fangelsi. Hann þreif í Ólaf Helga
Kjartansson, sýslumann á Selfossi,
og fellti. Hann lýsti yfir áfrýjun við
dómsuppkvaðningu þar sem hann er
mjög ósáttur við niðurstöðuna.
Árásin átti sér stað í nóvember-
byrjun í Héraðsdómi Suðurlands.
Ólafur Helgi hafði verið í aðalmeð-
ferð annars máls og brugðið sér fram
í afgreiðslu til að hringja í vitni,
íklæddur skikkju ákæranda. Árásar-
maðurinn kom að og heimtaði viðtal
tafarlaust vegna kæru um heimil-
isofbeldi gagnvart móður sinni.
Sýslumaðurinn bauð manninum þá
viðtalstíma morguninn eftir en mað-
urinn sagði það of seint þar sem hann
færi þá í fangelsi.
Sögum þeirra ber eftir það ekki
saman. Maðurinn segir að hann hafi
tekið í öxl Ólafs Helga þegar hann
ætlaði að ganga í burtu, en hann þá
snúið sér við og hótað honum hand-
töku. Ólafur hafi síðan flækt annan
fótinn í fæti hans og verið nær dott-
inn á gólfið er hann ætlaði inn í dóms-
salinn. Sýslumaðurinn segir hins
vegar að maðurinn hafi komið aftan
að honum, brugðið fyrir hann fæti og
um leið tekið hann hálstaki. Hann
hafi náð að komast inn í dómsalinn
og ákærði fylgt á eftir. Þar hefði
sljákkað í honum eftir að sýslumaður
hefði dregið fram embættisskilríki
og sagt: „Þú veist hver ég er og ég
banna þér að berja mig.“ - gag
Sex mánaða fangelsi fyrir árás á sýslumanninn á Selfossi:
Árásarmaðurinn áfrýjar
SÝSLUMAÐURINN Á SELFOSSI Þrifið var í
Ólaf Helga Kjartansson og hann felldur er
hann neitaði að ræða við mann í Héraðs-
dómi Suðurlands. Ólafur var upptekinn við
annað mál í réttarsal.FRÉTTALBLAÐIÐ/HARI
DÓMSMÁL Landssamband lögreglu-
manna lýsir yfir furðu sinni á mis-
ræmi í dómaframkvæmd Héraðs-
dóms Reykjavíkur vegna brota gegn
valdstjórninni.
Sambandið gagnrýnir að maður
sem felldi sýslumann hafi fengið sex
mánaða fangelsisdóm, en maður sem
ók á lögreglumann, kýldi hann svo
hann hlaut mar á kviði og áverka á
hné fékk skilorðsbundinn dóm. Óþol-
andi sé að lögreglumenn njóti í fram-
kvæmd ekki sömu verndar og aðrir
fulltrúar valdstjórnarinnar. Bregð-
ast verði við með viðeigandi laga-
setningu eða beita öðrum úrræðum
sem líkleg séu til að bæta réttar-
vernd lögreglumanna. - gag
Landssamband lögreglu:
Misræmið
óþolandi
ÚKRAÍNA, AP Fólk safnaðist saman
víða í Úkraínu í gær með kertaljós
í hendi og kirkjuklukkum var
hringt í minningu þess að 20 ár
voru liðin frá kjarnorkuslysinu í
Tsjernóbyl. Þingið hélt sérstakan
fund um hversu margt er enn á
huldu í tengslum við slysið og
geislavirknina sem gætir í landinu,
sem og hvað hægt sé að gera til að
líkna þeim milljónum manna sem
urðu fyrir áhrifum vegna slyssins.
Fjöldi manna var viðstaddur
minningarathöfn í Kíev í fyrrinótt,
þegar kirkjuklukkum var hringt
klukkan tuttugu og þrjár mínútur
yfir eitt að staðartíma, sem er
nákvæm tímasetning slyssins.
Í gærdag flaug svo forseti Úkra-
ínu, Viktor Júkasjenkó, í þyrlu til
bæjarins Tsjernóbyl, 18 kílómetr-
um frá verksmiðjunni, og lagði
tvær rauðar nellikkur undir minn-
isvarða sem reistur hefur verið í
minningu þeirra sem létust í slys-
inu. Tugir manna fylgdust með
honum, aðallega aðstandendur
hinna látnu og fyrrum starfsmenn
verksmiðjunnar.
„Þegar ég lít í augu ykkar, þá
minnist ég hetjanna sem fyrir 20
árum létu líf sín í skiptum fyrir líf
okkar, fyrir framtíð okkar,“ sagði
Júkasjenkó. „Afreksverka ykkar
verður minnst um alla framtíð.“
Í kjölfar sprengingarinnar í
kjarnakljúfi 4 í Tsjernóbyl verk-
smiðjunni breiddust geislavirk ský
yfir stór svæði Sovétríkjanna fyrr-
verandi og Evrópu. Ríkisstjórn
Sovétríkjanna skipaði fleiri en
350.000 manns að yfirgefa heimili
sín í tugum þorpa og bæja sem enn
standa auð og geislavirkt ofanfall
féll á nálæg svæði í Úkraínu, Hvíta-
Rússlandi og Rússlandi, þar sem
um fimm milljónir búa.
Slysið hafði líkamleg og andleg
áhrif á milljónir manna og vilja
sumir stjórnmálafræðingar meina
að það hafi haft mikil áhrif á fall
Sovétríkjanna hálfum áratug síðar.
Tala þeirra sem fórust vegna
slyssins er mjög á reiki. Rúmir þrír
tugir manna týndu lífi í sprenging-
unni eða við björgunaraðgerðir í
kjölfar hennar. Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin telur að um 9,300 manns
hafi eða munu látast vegna krabba-
meins sem geislavirknin veldur, en
aðrir, þeirra á meðal talsmenn
Grænfriðunga, segja töluna geta
verið tíu sinnum hærri. Ef aðrir
kvillar eru teknir með segja Græn-
friðungar heildartölu þeirra sem
tapað hafa heilsunni vera 200.000
manns.
Seinasta starfandi kjarnakljúfn-
um í Tsjernóbyl var lokað árið
2000. Enn búa um 4.000 manns í
Tsjernóbyl, en aldrei lengur en í
tvær vikur í einu.
Benedikt XVI páfi hvatti leið-
toga heims í gær til að fullvissa
sig um að allar tegundir orku sem
notaðar eru í heiminum séu örugg-
ar. Jafnframt mótmæltu ýmis
félagasamtök víða um heim
kjarnakljúfum og hættunni sem
frá þeim stafar. smk@frettabladid.is
Úkraínu-
menn syrgja
Í gær voru 20 ár liðin frá kjarnorkuslysinu í Tsjern-
óbyl. Minningarathafnir voru haldnar víða um
heim. Deilt er um áhrif slyssins. Grænfriðungar
telja að yfir 200.000 hafi tapað heilsunni vegna þess.
SONUR SYRGÐUR Praskovija Nezjvova heldur á ljósmynd af syni sínum Viktor, sem er
einn þeirra sem týndi lífi vegna hreinsunaraðgerða við Tsjernóbyl kjarnorkuverksmiðjuna í
Úkraínu eftir sprengingu sem varð þar árið 1986. Nezjvova var ein fjölmargra sem mættu á
minningarathafnir í Kíev í Úkraínu í gær í tilefni þess að 20 ár voru liðin frá sprengingunni.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Vestur-
lands dæmdi í gær mann til 45
daga skilorðsbundins fangelsis-
dóms fyrir að hafa í desember síð-
astliðnum ráðist á mann og slegið
tvö högg í andlit hans.
Sprakk kjálkabein fórnar-
lambsins við höggin og fór hann
fram á rúmar tvö hundruð þúsund
í skaðabætur sem ákærði greiddi
áður en að réttarhöldum kom. Var
talið ákærða til tekna að hafa við-
urkennt brot sitt og hafa ekki áður
komist í kast við lögin. - aöe
Skilorðsbundinn dómur:
Réðist á mann
og kjálkabraut
ENGLAND, AP Kvenkyns tennis-
meistarar sem sigra Wimbledon
mótið í tennis í sumar fá lægri
verðlaun en karlkyns félagar
þeirra.
Skipuleggjandi keppninnar
frægu tilkynnti á þriðjudag að
verðlaunahafi karla muni fá tæpar
88 milljónir króna. Konan sem
vinnur tenniskeppnina mun hins
vegar fá tæpar 84 milljónir króna.
Bæði kynin hafa fengið fjögurra
prósenta hækkun síðan í fyrra. - smk
Kynjamisrétti í Wimbledon:
Konur hljóta
lægri verðlaun
Heimabrugg banar fólki Minnst
tíu þorpsbúar týndu lífi og 30 veiktust
alvarlega á Austur-Indlandi efir að fólkið
drakk mengað heimabrugg um helgina,
að sögn indverskra heilbrigðisyfirvalda.
Fremur algengt er að mengað heima-
brugg dragi fólk til dauða í þorpum á
Indlandi þar sem leynivínsalar eiga það
til að „styrkja“ bruggið með metýlalkó-
hóli eða skordýraeitri.
INDLAND
VORIÐ KOMIÐ Þessi þýska kona nýtti sér
góða veðrið í Freiburg í Suður-Þýskalandi
í gær og fór í gönguferð í lystigarði með
barn sitt. Eins og sjá má standa kirsuberja-
trén nú í blóma í garðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tsjernóbyl
kjarnorkuverið
RÚSSLAND
PÓLLAND
HVÍTA-RÚSSLAND
LITHÁEN
ÚKRAÍNA
Sesíum-137 í jörð (1986)
HEIMILDIR: Svissneska umboðsskrifstofan um þróun og samvinnu, Alþjóðakjarnorkumálastofnunin. AP
Svæði hreinsað eftir
slysið
Yfir 40 curie á hvern
ferkílómetra
5-40
1,08-4,99
Minna en 1,08
Moskva
Varsjá
Kíev
Minsk
Vilníus
Útgeislunin frá Tsjernóbyl
Sesíum-137 var útbreiddasta geislavirka
frumefnið eftir slysið í Tsjernóbyl. Útgeislun
mæld á smituðum svæðum er gefin upp í
curie, alþjóðlegri mælieiningu á geislavirkni.
0 100 mí
0 100 km
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P