Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 53

Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 53
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { landbúnaður } ■■■■ 13 Sæti Nafn Fjöldi 1. Branda 785 2. Huppa 553 3. Kola 551 4. Stjarna 535 5. Skjalda 517 6. Skrauta 503 7. Búkolla 493 8. Dimma 481 9. Rauðka 442 10. Búbót 425 11. Sokka 420 12. Lukka 417 13. Hyrna 368 14. Gæfa 324 15. Laufa 288 16. Rós 285 17. Tinna 283 18. Nótt 281 19. Blesa 275 20. Skessa 272 20 vinsælustu beljunöfnin Nýborinn kálfur í fjósinu í Húsdýragarð- inum. Verð á kjarnfóðri hefur verið á hraðri uppleið að undanförnu, að því er fram kemur á vef Landssam- bands kúabænda. Kjarnfóðurfyrir- tækin segja að veiking krónunnar sé helsta ástæða hækkunarinnar. Á þriðjudag hækkaði til að mynda Lífland verðskrá sína um sex prósent. Þar hækkaði fóðurverð síðast í byrjun mars um fjögur pró- sent og dreifingin um fimm prósent. Þá bendir Landssambandið á að 10. þessa mánaðar hafi verð hjá Fóður- blöndunni hækkað um sex prósent. Kjarnfóður hækkar í verði Kjarnfóður í Bandaríkjunum. Mjólka, sem stendur utan hins hefð- bundna landbúnaðarkerfis, hyggst fjölga vöruflokkum sínum. „Við erum þegar farin að framleiða sýrð- an rjóma fyrir stóreldhús og stutt í að hann fari á neytendamarkað,“ segir Ólafur Magnússon, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. „Neyt- endur munu á næstu vikum sjá frá okkur nýjar afurðir. Á teikniborðinu eru núna fjórar nýjar afurðir sem er stutt í að fari á markað.“ Mjólka hóf sölu á ostinum Létt- feta síðastliðið haust og hafa við- tökur verið afar góðar. „Viðtökurnar fóru langt fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Ólafur. „Það sem hefur verið skemmtilegast í þessu er hvað stóreldhúsmarkaðurinn og verslanir hafa tekið okkur vel. Við erum auðvitað neytendum þakklátir fyrir þennan góða stuðning.“ Hann segir að erfiðlega hafi gengið að anna eftirspurn framan af ári. „Svo hefur Léttfeti fengið góða dóma erlendis meðal annars á ostasýn- ingu í Danmörku, en Ólafur segir það ekki spurningu að stuðningur við vöruna sé einnig vegna viðhorfa almennings. „Það er ekki spurn- ing að neytendur senda ákveðin skilaboð því viðtökurnar eru langt umfram það sem við bjuggumst við. Við höfum náð að gera réttu hlutina og fengið athygli fyrir bæði vöruna og markaðsstarfið.“ Ólafur segir að unnið sé að frá- gangi samninga við framleiðendur, því ljóst sé að fyrirtækið þurfi meira hráefni á næstunni. „Bændur hafa verið okkur mjög þakklátir fyrir þetta framtak og hafa séð viðbrögð við þessu frá einokunarfyrirtækjum að þau taki á þessu með þeim.“ Framleiðslan sem fer til Mjólku er utan styrkja- og kvótakerfis mjólk- urframleiðslunnar. Ólafur hefur skýra sýn á framtíð slíks fyrirkomu- lags. „Það á að minnka landbúnað- arstyrki í áföngum og gera landbún- aðinn sjálfbæran svo hann geti farið að keppa á erlendum mörkuðum. Þetta eru frábærar vörur sem eiga að vera útflutningsvörur.“ Nýjar vörur frá Mjólku á leið á markað Léttfeti frá Mjólku hefur fengið góðar viðtökur og samkvæmt Ólafi Magnússyni, fram- kvæmdastjóra Mjólku, er von á fleiri vörum frá fyrirtækinu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.