Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 38

Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 38
 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR Hafnfirska hannyrðakonan Bára Björnsdóttir heldur áfram að gleðja aðra þótt heilsan hafi bilað. Nú hafa barnadeild og dagheimili fengið frá henni veggspjald með útsaumuðum ævintýra- myndum. Ævinýrin hafa alltaf heillað Báru. Um það vitna veggteppin sem eftir hana liggja og einnig málverk og styttur sem prýða heimili hennar. Hún er líka fljót að sjá svip með Valla ljósmyndara og Prins Valiant og kallar Valla bara „prinsinn“! Bára hefur fram til þessa verið ein þeirra iðjusömu kvenna sem aldrei fellur verk úr hendi. „Hún hefur alltaf verið að gleðja aðra. Yfirleitt með marga hluti í gangi í einu í hannyrðunum og hefur gefið flesta jafnóðum,“ segir Emma dótt- ir hennar brosandi. Nýlega varð breyting á högum Báru því hún greindist með krabbamein á alvar- legu stigi og liggur fyrir þegar Fréttablaðsfólk ber að garði. „Ég er deyjandi kona,“ segir hún af mikilli rósemi við blaðamann og biður hann að afsaka þótt hún geti ekki talað mikið en býður honum að skoða það sem hann vilji og bendir sérstaklega á dýrindisskál sem barnabarnið og söngkonan Hera hafi gefið henni. Skálin er skreytt myndum Walt Disneys af Mjallhvíti og dvergunum sjö. Hera segir dálæti ömmu sinnar á Mjallhvíti meðal annars tilkomið af því að hún þekki dóttur fyrirmyndarinnar. „Mjallhvít var nefnilega íslensk stúlka. Hún hét Kristín og fjöl- skylda hennar býr hér í Garðabæ.“ Hera er leyndardómsfull er hún heldur áfram. „Það var teiknari hjá Walt Disney sem var ástfanginn af henni og teiknaði Mjallhvíti eftir henni.“ Mæðgurnar Emma og Hera búa á Nýja-Sjálandi en eru nú hjá Báru til að létta henni lífið. Þær eiga stórt veggteppi eftir hana þar suðurfrá, einmitt teppið sem er á plakatinu. Þær segja hana hafa saumað eftir myndum sem hún fann hér og þar og teiknað sjálf það sem á vantaði. „Hún skrifaði Disney á sínum tíma og bað um heimild til að nota fígúr- urnar hans sem fyrirmyndir,“ segir Emma og sýnir leyfisbréf frá Disney sem hangir innrammað uppi á vegg. Bára er greinilega kona sem vill hafa réttinn sín megin. Einu stóru teppi er ólokið. Myndirnar þó flestar komnar en fjöllin eru eftir. Hera hefur lofað að ljúka við sköp- unarverkið. Valli pakkar niður myndavélinni og eftir notalega stund í eldhúsinu er komið að því að kveðja. Yfir hinu snotra húsi í hrauninu hvílir bæði friður og ævintýrablær. gun@frettabladid.is Amma Bára gleður börnin Í glerskáp í stofunni eru margir dýrgripir. Bára fékk skriflegt leyfi Disneys til að nota persónur hans í verkin sín. Rauðhetta er ein þeirra sögupersóna sem Bára hefur saumað. Margar stærðir og gerðir eldstæða, opin eða með hurð, einnig opin í gegn (tvær hurðir) Verð frá kr. 82.000.- Einnig úrval af aukahlutum fyrir arininn ��������� ����������������� ������������� ����������� Bára heldur áfram að gleðja aðra þó að heilsan hafi bilað. Veggspjaldið sem Bára gefur á barnadeild og hin ýmsu dagvistarheimili barna er gert eftir veggteppi sem hangir á heimili dóttur hennar og dótturdóttur á Nýja-Sjálandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BORÐ FYRIR TVO K R I N G L A N LOKADAGAR RÝMINGARSÖLU FLYTJUM Í NÝTT OG STÆRRA HÚSNÆÐI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.