Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 24

Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 24
 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR24 hagur heimilanna LÉTT SPÆGIPYLSA 65% MINNI FITA Áhugasamir bílakaupendur geta nú notfært sér þjónustu Islandus.com til að kaupa bifreiðar frá Bandaríkjunum en slíkt hefur færst mjög í vöxt á síðustu misserum með styrkingu krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. Óvíst er hvort sú þróun heldur áfram nú þegar krónan hefur veikst talsvert en áfram er þó hægt að gera góð kaup ytra án vandkvæða og býður Islandus viðskiptavinum sínum upp á mikið öryggi við kaupin. Þannig eru allir bílar tryggðir hjá íslensku tryggingafélagi auk þess sem ástandsskoð- un er gerð á öllum ökutækjum áður en þau eru send hingað til lands. Að auki eru uppgefin verð á heimasíðu Islandus full verð, tollar, skattur og innflutningsgjöld, sem kaupandi greiðir fyrir bílinn hingað kominn. ■ Verslun og þjónusta Auðveld bílakaup frá Bandaríkjunum „Ein bestu kaup sem ég hef gert hin síðari ár voru þegar við hjónin keyptum okkur nýtt rúm í versluninni Betra bak í Reykjavík fyrir um tveimur árum,“ segir Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. „Við vorum í gömlu rúmi sem var 1,4 metrar á breidd og með tímanum fannst konunni það ekki nægilega stórt; vildi líklega komast lengra frá mér á nóttunni. Í mörg ár þrýsti hún á um kaup á nýju rúmi en ég þráaðist ætið við, þrátt fyrir að ég væri farinn að vakna þreyttur á morgnana og með bakverki. Að lokum lét ég undan og þó ég hafi aldrei viðurkennt það fyrir frúnni sé ég ekki eftir þeim kaupum,“ segir Aðalsteinn. Nýja rúmið var stillanlegt rafmagnsrúm, 1,9 metrar á breidd, með heilsudýnum og nuddi. „Þetta rúm hentar mér afskaplega vel því ég er verkum hlaðinn og enda oft vinnudaginn uppi í rúmi. Hækka þá bakið, breyti rúminu í hægindastól og skipu- legg vinnu næsta dags. Konan skríður út á sinn kant og sofnar eins og engill. Hvað gerist þegar vinnu minni lýkur læt ég ekki uppi en að minnsta kosti vöknum við jafnan bæði sæl og glöð að morgni.“ Aðalsteinn hefur ekki fláð feitan gölt í öllum sínum viðskiptum og hann segir sín verstu kaup tengjast fjárbúskap. „Ég er frístundafjárbóndi og held ásamt tveimur félögum mínum 35 kindur. Fyrir tveimur árum ákváðum við að ráðast í rosalegar kynbætur og félagar mínir fólu mér að fjárfesta í ærslafullum hrúti. Ég valdi gripinn af kostgæfni en þegar nýta átti krafta hans til kynbóta á fengitíðinni kom í ljós að hann var náttúrulaus með öllu. Lostalausa kynbótatröllinu var svo slátrað síðastliðið haust og hefur gagnast okkur ágætlega síðan; vel reyktur.“ NEYTANDINN: AÐALSTEINN BALDURSSON Á HÚSAVÍK Keypti náttúrulausan kynbótahrút Mörg ungmenni greiða sjálf fyrir ökukennslu og ökupróf en algengara má telja að foreldrar og ættingjar hjálpi til fjárhagslega með einum eða öðrum hætti, enda ekki skrýtið því kostnaður við að öðlast ökuréttindi getur numið talsverðum upphæðum. Þannig er lágmarkskostnaður sem unglingur greiðir í kringum 105 til 110 þúsund krónur og er þá miðað við lágmarksökutíma en þar liggur mestur kostnaður. Meirihluti tekur þó fleiri ökutíma en þá sextán sem lágmarkið er og bætast þá við rúmar fimm þúsund krónur fyrir hvern tíma að auki. Námsgögn í ökuskóla sem allir þurfa að fara gegnum kosta frá 15 til 20 þúsund og má því gera ráð fyrir að algengur kostnaður sé frá 130 þúsundum króna. ■ Hvað kostar... að taka bílpróf? Umtalsverðir fjármunir fyrir foreldra ÚTGJÖLDIN > Meðalverð á kílói af innlendu kaffi 1997 til 2005 80 0 82 4 73 9 Kr ón ur 67 9 1997 73 8 1999 2001 2003 2005Ár Vaxandi áhugi er hérlendis á að taka lán til íbúðar- kaupa í erlendum myntum enda vextir jafnan mun lægri og fólk losnar við verðtryggingu. Þetta er þó tvíeggjað að mati sérfræð- inga. „Hver og einn yrði að skoða slíkt með góðum fyrirvara enda er um háar upphæðir að ræða fyrir flest fólk og ákveðið fjárhættuspil,“ segir Lúðvík Elíasson hjá greining- ardeild Landsbanka Íslands. Íbúða- eigendum býðst flestum hverjum að skipta íbúðalánum sínum úr íslenskri krónu í erlendar myntir. Hafa fyrirspurnir vegna þessa bor- ist í auknum mæli. Að mati Lúðvíks er ekki um vænlegan kost að ræða nema fólk hafi talsvert svigrúm í fjármálum sínum til að takast á við þær sveifl- ur sem orðið geta á skömmum tíma. „Fyrir það fyrsta er talsverður kostnaður því samfara að skipta yfir í upphafi. Sá kostnaður getur numið fjórum prósentum af láninu og auðveldlega þurrkað út ávinn- inginn sem af getur hlotist. Þess utan verður að fylgjast vel með gengi viðkomandi gjaldmiðils eftir á, því sveiflur geta verið talsverðar og haft mikil áhrif á stuttum tíma.“ Lán í erlendri mynt eru ólíkt íslenskum lánum óverðtryggð og vextir jafnan hagstæðari en hér gerist og því kosturinn vænlegur að því leyti. Á móti hefur íslenska krónan verið að gefa eftir og sveifl- ur hennar meiri en verið hefur lengi. Það þýðir að veikist krónan gagnvart þeim gjaldmiðli sem hús- næðislán eru tekin í hækka afborg- anir og höfuðstóll til muna. Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, segir skynsamlegt fyrir neytendur að leita til sérfróðs ráðgjafa standi hugur til að skipta húsnæðislánum í erlenda mynt. Benti hann sérstaklega á Ráðgjaf- arstofu um fjármál heimilanna en Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður hennar, segir óalgengt að fólk beini slíkum fyrirspurnum þangað. „Hér tökum við fyrst og fremst á móti fólki sem einhverra hluta vegna hefur lent í erfiðleikum fjárhags- lega. Varðandi ráð til annarra bend- um við gjarnan á bankana sjálfa, sem hafa greinargóðar upplýsing- ar um hluti á borð við þessa. Hins vegar er ómögulegt að gefa einhlítt svar við því hvort þetta sé fýsileg- ur kostur. Það getur verið það fyrir suma en aðra alls ekki og skoða verður hvert og eitt dæmi vand- lega fyrir sig.“ Séu íbúðareigendur ákveðnir í að skipta tekur það ekki langan tíma að fá slíkt í gegn og tekur afgreiðsla á slíkri breytingu að öllu jöfnu aðeins örfáa daga. albert@frettabladid.is Húsnæðislán í erlendri mynt misgóður kostur LÚÐVÍK ELÍASSON Segir fólk verða að hugsa sinn gang vel áður en skipt sé yfir í erlenda mynt í stað krónunnar. Mánaðarlegar greiðslur stóraukist til að byrja með. TALSMAÐUR NEYTENDA Gísli Tryggva- son bendir fólki á að hafa samband við sérfræðinga áður en lagt er út í kostnaðar- samar breytingar vegna húsnæðislána. UPPBYGGING Mikil uppbygging á sér enn stað víða á höfuðborgar- svæðinu og víðar. Sá kostur að taka íbúðalán í erlendri mynt í stað íslensku krónunnar getur verið hagkvæmur fyrir þá sem eru að kaupa en hafi menn hug að skipta yfir eftir að kaup hafa gengið í gegn fellur til umtalsverður kostnaður sem getur þurrkað út allan ávinning sem af verður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.