Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
27. apríl, 117. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.14 13.25 21.39
Akureyri 4.48 13.10 21.34
MYNSTRAÐIR
SUMARKJÓLAR
Í sumar verða áberandi
mynstur það allra heitasta.
TÍSKA 2
AMMA BÁRA
GLEÐUR BÖRNIN
Hafnfirska hannyrðakonan
Bára Björnsdóttir heldur
áfram að gleðja aðra þótt
heilsan hafi bilað.
HEIMILI 8
Sumarkort eru nú á sérstöku
tilboði hjá Iceland Spa & Fitness.
Tilboðið hljóðar þannig að keypt
er sérstakt sumarkort og gildir
það til 25. ágúst. Skiptir þá engu
máli hvenær kortið er keypt en
það gildir í allar fimm stöðvar
ISF.
Nýjum vor- og sumar-
bæklingi frá Europris var
nýlega dreift inn á flest-
öll heimili. Í honum
má finna
marga
skemmti-
lega hluti sem
hægt er
að nota á
heimilinu og
í garðinum. Til-
boðin standa
til 9. maí.
Tvær fataverslanir eru
nú að flytja í nýtt húsnæði á
Laugaveginum. Glamúr opnaði
nýja verslun á Laugavegi 48 í
gær og á laugardaginn mun
Spútnik flytja yfir í nýtt húsnæði
á Laugavegi 28. Verður mikil
veisla af því tilefni í Spútnik á
laugardaginn.
ALLT HITT
[ HEILSA, TÍSKA OG HEIMILI ]
Í KVÖLD VERÐUR INGÓLFUR GUÐNASON MEÐ FYRIRLESTUR
SEM HANN NEFNIR GRÓÐUR TIL GAGNS OG GLEÐI Á
MIÐÖLDUM.
Fyrirlesturinn fer fram í
Orkuhúsinu á Bæjarhálsi.
Ingólfur er ræktandi á
Gróðrarstöðinni Engi
í Laugarási. Hann er
flestum ræktendum
að góðu kunnur enda
prýða vörur hans hillur
matvöruverslana undir
heitinu Gróðrarstöðin
Engi.
Ingólfur hefur enn fremur
gert plöntusögu Íslendinga hátt undir höfði. Hann hefur safnað
jurtum og komið þeim fyrir í Jurtagarðinum í Skálholti í formi
hinna gömlu klausturgarða. Sá hann um útgáfu lítils kvers þar
sem greint er frá öllum plöntunum og notkun þeirra.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.00 en hann er samstarfsverkefni
Orkuveitu Reykjavíkur og Garðyrkjufélags Íslands.
Gróður til gagns og gleði
Þjóðarblóm Íslendinga, Holtasóley.
Hákon Leifsson, eða Tumi eins og hann er kallaður,
stendur í ýmiss konar flutningi. Bæði búferlaflutningi
og að stjórna tónlistarflutningi.
Tumi er nýfluttur í Arnarnesið í Garðabæ með fjölskylduna
og hefur gott útsýni út á Kópavoginn þegar hann stendur
úti á hlaði á nýja heimilinu. Hann segir flutningana eigin-
lega hafa staðið yfir síðan í nóvember og senn komist allt í
eðlilegar skorður. „Við þurftum að yfirgefa okkar gamla
heimili í nóvember og flytja inn á tengdamömmu en höfð-
um nóg rými og engin ástæða til að kvarta undan aðbúnað-
inum þar,“ segir Tumi. Hann þarf heldur ekki að kvarta
undan plássleysi í nýja húsinu því það er myndarlega byggt
eins og önnur í þessum heimshluta. Brosandi kveðst hann
hafa keypt húsið útá krít enda hafi hann aldrei talist til stór-
eignamanna.
En Tumi hefur fleira að sýsla þessa dagana en að taka
upp úr kössum því fyrir dyrum standa stórtónleikar kórs
sem hann stjórnar og nefnist Vox Academica. Þeir verða í
Langholtskirkju klukkan 15 á laugardag. „Þetta eru tónleik-
ar með kirkjulegu ívafi. Við erum með Sálumessu eftir
Mozart og flytjum þrjú íslensk verk sem öll eru í svipuðum
anda. Eitt er eftir Leif pabba minn sem var kaþólskur og
hann er með Maríuáherslu í því. Svo erum við með langt lag
eftir Jón Leifs við íslenskan texta eftir Jónas Hallgrímsson.
Síðan er verk eftir Szymon Kuran sem heitir Um nóttina og
er bæði bjart og dimmt. Hann semur þetta við fagran texta
eftir dóttur sína sem fjallar um engla sem fljúga innan um
stjörnurnar.“ Ásamt kórnum segir Tumi að á tónleikunum
komi fram 20 manna sinfóníuhljómsveit sem heiti Jón Leifs
kammerata og fjórir einsöngvarar. Þeir eru Þóra Einars-
dóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Davíð Ólafsson og Gunnar
Guðbjörnsson. gun@frettabladid.is
Allt að komast
í eðlilegt horf
Tumi með soninn Ólaf Bjarna og tíkina Nölu. Ólafur átti einmitt sex ára afmæli í gær, daginn sem myndin var tekin
á nýja heimilinu.