Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 51

Fréttablaðið - 27.04.2006, Side 51
51 sambands kúabænda, landsfundi sauðfjárbænda, skógarbænda eða hrossabænda, er þar fyrir vask- leikasveit, mikið af ungu fólki, fólki sem sér landbúnaðinn sem tækifæri fyrir sig og fjölskyldur sínar.“ Varðandi framtíðina og samn- ingaviðræður sem yfir standa við Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) sagðist Guðni vona að þær við- ræður myndu ekki enda með því að bændur stæðu frammi fyrir miklum umbyltingum, þótt vissulega hefðu bændur nokkrar áhyggjur af því að þegar fram í sækti kæmu þeir til með að standa höllum fæti í samkeppni. „Þegar þessir samningar gerast vona ég að bændur fái mætt aðlöguninni á mjög löngum tíma og það ætti íslenskur landbúnaður að geta. Hins vegar verður æ meira umhugsunar- efni meðal þessara 149 þjóða hvort menn séu á réttri leið með að færa til landbúnaðinn í heiminum. Ég er ekki viss um það. Ég held að það sé óskaplega mikilvægt fyrir hverja þjóð að geta framleitt svona um helminginn af sínum matvælum og við Íslendingar tökum mikinn þátt í heimsverslun með landbúnaðaraf- urðir,“ segir Guðni og bendir á að um helmingur af landbúnaðarvör- um sem hér sé neytt komi erlendis frá. „Við kaupum til dæmis mun frekar landbúnaðarvörur á alþjóða- vettvangi en Bandaríkin og Bretland svo dæmi séu tekin.“ Tækifærin framundan Guðni segir eins mikla framþróun og bjartsýni á fleiri sviðum land- búnaðar en hinum hefðbundna. Hann segir vel hafa gengið í loð- dýrarækt að undanförnu með lækk- andi fóðurkostnaði og hagstæðari markaðsaðstæðum og nefnir líka kornræktina sem dæmi. „Þar hafa íslenskir vísindamenn í raun fundið upp afbrigði sem þola vel íslenska veðráttu. Hér hefur hlýnað og Ísland örugglega verið kornræktarland í upphafi þegar fornmennirnir voru hér með mikinn nautabúskap. Þá hefur verið hér mikil kornrækt og hlýtt tímabil. Nú sjáum við bænd- ur ná gríðarlegum árangri í þess- ari ræktun og það breytir þeirra búskap, þannig að víða í landinu sé ég fyrir mér bleika akra og fal- lega kornrækt sem á sér ýmsa nýja möguleika.“ Þar nefnir Guðni til að mynda lín og hörframleiðslu fyrir iðnað. „Svo eigum við hér fyrir- tækið Orf líftækni þar sem vísinda- menn hugleiða hvort hér sé hægt að framleiða prótein í byggi sem notað yrði í lyfjaiðnað. Ef af verður gæti þetta skilað sveitunum miklu og hér er talið af vísindamönnum að þetta myndi ekki valda áhættu í íslenskri náttúru.“ Eins segir Guðni að nýleg- ur samningur við Evrópusamband- ið hafi endurvakið möguleika sem skoðaðir hafi verið á árum áður. „Tollar á tómötum, gúrku, papriku og fleiru hafa verið felldir niður og það býður upp á möguleika að Hollendingar og fleiri þjóðir vilji koma hingað og vera í samstarfi við okkur um stórfellda ræktun á jarð- hitasvæðum. Þetta gæti gefið hér bæði vinnu og útflutning.“ Þarna gætu orkufyrirtæki landsins komið að segir Guðni, enda þekkt að þau komi að slíkum verkefnum. „Risa- rækja Orkuveitu Reykjavíkur er dæmi um slíkt. Síðan væri hægt að framleiða hér á Suðurnesjum, Suð- urlandi og víðar risatómata,“ segir Guðni og kímir við. 1 Bein afurðasala bænda af býlum sínum segir landbúnaðarráðherra að sé eitt af stærstu málunum í íslenskum landbúnaði í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bændur hafa ekki undan að framleiða mjólk eða kjötvörur þannig að staðan er glæsilegri en menn hafa áður búið við. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { landbúnaður } ■■■■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.