Fréttablaðið - 27.04.2006, Qupperneq 54
14 ■■■■ { landbúnaður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Vorhreingerning!
Bjóðum hágæða Westermann sópvélar
af ýmsum stærðum og gerðum
��������������
�������������������
�� �����������������������������������������������
��������������������������������������������������� �������������������������������������������
���������������������������������������������������������������
�����������������������������������
Körfuboltamaðurinn Brenton Bir-
mingham er mikill kjötmaður. Hann
segir íslenskt lambakjöt í sérstöku
uppáhaldi hjá sér og það komi nú
að mestu í staðinn fyrir þær steikur
sem hann var vanur að gæða sér á í
Bandaríkjunum áður en hann flutt-
ist til Íslands. „Lambakjötið er bara
svo gott á bragðið, mun betra en
kjötið í Bandaríkjunum, sennilega
af því að í því eru engin viðbót-
arefni eins og vill vera þar,“ segir
hann og hlær. Þegar Brenton kom
fyrst til Íslands fyrir tæpum átta
árum var honum oft boðið í mat og
var þá oftar en ekki íslenskt lamba-
kjöt á boðstólum. Hann var ekki
lengi að komast á bragðið. Hann
hefur þó ekki lagt í það sjálfur að
matreiða lambakjötið heldur láti
hann sinn betri helming alveg um
það.
Af annarri landbúnaðarvöru
segist Brenton líka borða býsn-
in öll af skyri og drekka mikið af
léttmjólk. Hann er hins vegar ekk-
ert sérstaklega hrifinn af „gamla
matnum“ eins og hann kallar það
og á þá við súrsaða hrútspunga,
svið, slátur og þvíumlíkt. Það láti
hann helst alveg eiga sig þótt hann
hafi vissulega prófað ýmislegt og
hafi meira að segja sótt þorrablót
og drukkið brennivín – sem hann
er reyndar heldur ekki hrifinn af.
Elskar lambakjöt
Brenton Birmingham
körfuboltamaður varð
fljótt ástfanginn af
íslenska lambakjötinu.
Skemmdir hafa verið unnar á upp-
græðslusvæði Landgræðslunnar á
Héraðssandi á Fljótdalshéraði. Guð-
rún Schmidt, héraðsfulltrúi land-
græðslunnar á Austurlandi, segir
að tekið hafi verið eftir skemmdun-
um á sumardaginn fyrsta. Talið er
að fullorðnir menn á jeppum hafi
tekið niður girðingu að svæðinu og
ekið á jeppum og mótorhjólum yfir
svæðið sem hafi verið í uppgræðslu
í nokkra áratugi.
„Það hefur verið töluverð umferð
um svæðið í vetur en nú var þetta
með versta móti,“ segir Guðrún en
nánast snjólaust var á svæðinu í
vetur. „Svæðið var alveg afgirt og
við það er læst hlið sem á stendur
að um sé að ræða uppgræðslusvæði
Landgræðslu ríkisins og sé óvið-
komandi umferð um það bönnuð.
Girðingin var tekin niður við hlið-
ið og þar hafa jeppamennirnir farið
yfir,“ segir Guðrún en um lögbrot er
að ræða.
Ljóst þykir að jeppamennirnir
hafa farið yfir viðkvæmt svæði sem
hefur verið lengi í uppgræðslu. „Fólk
virðist ekki átta sig á því að þótt inni
á milli sé ber sandur þá er melgresið
að sá sig sjálft og mikið af fræjum
í sandinum. Þá hefur verið farið yfir
melgresishólma sem er slæmt enda
gróðurinn mjög viðkvæmur,“ segir
Guðrún. „Ef þetta endurtekur sig
þá verður tekið á því með hörðum
höndum,“ segir Guðrún.
Skemmdarverk á uppgræðslu-
svæði á Fljótsdalshéraði
Frá svæði Landgræðslunnar á Héraðssandi.
Hjólför eru greinileg í sandinum við hlið
slóðans.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI