Fréttablaðið - 27.04.2006, Page 55
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { landbúnaður } ■■■■ 11
Kjötát hefur aukist um fjórðung
og neysla gosdrykkja aukist um
770 prósent frá árinu 1960,
samkvæmt Hagtölum
landbúnaðarins sem
út komu um síðustu
áramót. Á sama tíma
hefur fiskneysla
dregist saman um 30
prósent og kartaflna um
næstum því helming.
Gjörbreyttir neysluhættir
á nokkrum áratugum
NEYSLA MATVÖRU 1960 TIL 2003 (KG Á ÍBÚA)
Smjör Kjöt Kartöflur Fiskur Egg Mjólk Gosdrykkir
1960 7,7 67,0 66,4 61,1 4,8 306,2 20,6
1970 5,6 54,4 53,9 46,4 9,8 271,1 45,9
1980 7,3 78,2 65,2 35,7 11,8 227,7 78,6
1990 6,5 71,1 50,2 43,2 11,3 205,6 119,1
1995 5,9 68,6 47,0 46,7 8,3 194,9 125,7
2003 4,4 84,1 35,6 42,7 9,2 181,2 179,2
Breyting % +/– -42,9 +25,5 -46,4 -30,1 +91,7 -40,8 +769,9
1960-2003
Út eru komnar Íslandsbækurnar
svonefndu fyrir árið 2006
hjá útgáfufélaginu Heimi.
Bækurnar eru handbækur
á þremur tungumálum,
íslensku, ensku og þýsku,
þar sem er að finna
hverjar þær upplýsingar
sem ferðafólk sem sækir
landið heim þarf á að
halda.
Ritið kemur út í um
90 þúsund eintökum,
að því er fram kemur
hjá útgáfufélaginu og er dreift
ókeypis innanlands.
Íslenska útgáfan ber heitið Á
ferð um Ísland, en í ritinu eru
meðal annars upplýsingar um
gistingu, tjaldstæði,
veitingastaði, söfn,
gönguleiðir, rútur,
bílaleigur, ferjur,
ævintýraferðir og
margt fleira.
Á vef útgáfufélagsins
Heims kemur fram að
hér á landi komi ekki
út sambærileg ókeypis
ferðarit. Hægt er að nálgast
ritið í pdf-útgáfu á www.
heimur.is/world.
Íslandshandbækurnar
komnar út hjá Heimi
Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is
Landbúna›arháskóli Íslands
Úr búfræ›inámi vi› LBHÍ útskrifast
nemendur sem búfræ›ingar.
Búfræ›i er einnig hægt a› taka
í fjarnámi.
Búfræ›inám vi› LBHÍ – tækifæri fyrir flig?
Kynntu flér starfsmenntanám vi› LBHÍ,
fla› gæti henta› flér. www.lbhi.is
SUZUKI OZARK er fjölhæft fjórhjól sem hentar vel bæði til leiks og
starfs. SUZUKI ending og gæði á verði sem ekki hefur sést áður.
Aðeins Kr. 485.000- eða Kr. 389.558- án vsk.