Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 88
52 27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is SMS LEIKUR 9. HVER VINNUR! Vinningar verða afhendir hjá BT Sm áralind. Kóp avogi. M eð þ ví að taka þ átt ertu kom inn í SM S klúb b. 99 kr/skeytið. FRUMSÝND 28. APRÍL MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SENDU SMS SKEYTIÐ JA HOF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO • DVD MYNDIR • TÖLVULEIKIR • VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI OG MARGT FLEIRA Handknattleikskappinn skrautlegi með stóra hjartað, Logi Geirsson, heldur áfram að slá í gegn í Þýskalandi en Logi hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu innan vallar sem utan í vetur. Síðari úrslitaleikur félags Loga og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar, Lemgo, og Göppingen, sem Jaliesky Garcia Padron leikur með, í EHF-keppninni fer fram á sunnudag en Lemgo stendur vel að vígi eftir nauman sigur á útivelli í fyrri leiknum. WDR-sjónvarpsstöðin mun sýna leikinn beint en fyrir leikinn og í hálfleik mun stöðin sýna stutta heimildarmynd um Loga, en stöðin lét mynda Loga í fyrri leiknum og kom svo í heimsókn til hans á þriðjudag. „Þau voru hérna alla daginn að taka upp efni og þetta var frekar skrautlegt,“ sagði Logi kátur og jákvæður sem fyrr. „Þau tóku viðtöl við mömmu og pabba sem eru hjá mér og svo brá ég á leik og spilaði á gítarinn fyrir sjónvarpssfólkið. Ég var ekki að spila nein Bubbalög heldur spilaði mín eigin frumsömdu lög á kassagítarinn. Ég var reyndar ekki beint að brillera á gítarnum en það skipti engu máli. Ég hló bara að þessu og hafði gaman af þó að spilamennskan væri ekki upp á marga fiska. Annars hafa Þjóðverjar lítið vit á tónlist, en ef maður mætir í partí með gítarinn og kann tvö grip þá halda allir að maður sé snillingur,“ sagði Logi léttur og hló dátt. Faðir Loga, Geir Hallsteinsson, er einn fræknasti handboltakappi Íslandssögunnar og hann gerði garðinn frægan í Þýskalandi á undan syninum og sagði Logi að þýskir fjölmiðlar hefðu einnig sýnt honum nokkurn áhuga en Geir hitti gamla félaga sína á fyrri leik Lemgo og Göppingen. Foreldrar Loga verða einnig á síðari leiknum á sunnudag þar sem þau vonast til þess að sjá son sinn verða krýndan Evrópumeistara. LOGI GEIRSSON: ÞÝSKA SJÓNVARPSSTÖÐIN WDR GERIR HEIMILDARMYND UM HANDBOLTAKAPPANN Spilaði frumsamin lög á gítarinn ÍÞRÓTTIR Það er ófriður í Breiðholt- inu. Hólmgeir Einarsson hjá hand- knattleiksdeild ÍR reið á vaðið og kvartaði yfir framkomu aðal- stjórnar en honum líkaði það illa að aðalstjórnin ætlaði að nota pen- inga sem fást fyrir Hengilssvæðið í að þrífa upp óreiðuna hjá deild- unum sem voru með versta rekst- urinn á meðan þeir sem hafa sýnt ábyrgan rekstur báru ekkert úr býtum. Forkólfar skíðadeildarinnar eru einnig ósáttir við að skussar félagsins, eins og Hólmgeir kall- aði þá, séu verðlaunaðir en það sem þeim líkar enn verr er að aðalstjórnin skuli hafa tekið ein- hliða ákvörðun um hvernig fénu skuli ráðstafað en skíðadeildin telur peningana tilheyra skíða- deildinni en ekki aðalstjórninni. „Skíðadeild hefur haft þetta land til umráða í áratugi og deildin hefur líka greitt öll gjöld af land- inu,“ sagði Auðunn Kristinsson, formaður skíðadeildar ÍR. „Fyrir tveim árum kom það upp að Orku- veitan vildi virkja á svæðinu og óskaði fyrst eftir að komast í efn- isnám. Úr varð að aðalstjórn gerði samning um efnisnámið sem er eðlilegt þar sem aðalstjórn fer með allar eignir deilda. Við ætluð- umst til að fá þessa peninga og þegar fyrsta greiðslan kom áttuð- um við okkur á því að aðalstjórnin ætlaði að gera eitthvað allt annað en að eftirláta okkur peningana sem við töldum eðlilegt. Svo þegar Orkuveitan vill kaupa eða leigja svæðið töldum við að skíðadeildin ætti að fá arðinn af landinu en þar stendur hnífurinn í kúnni þar sem aðalstjórnin vill ekki ganga að þeim kröfum okkar. Aðalstjórn er búin að ganga frá samningi við Orkuveituna í óþökk okkar enda vildum við að skipting fjárins væri ákveðin áður en samið væri við Orkuveituna. Á aðalfundi deildarinnar á dögunum var síðan ákveðið að gera þá kröfu á aðal- stjórn að allir þessir peningar, 30 milljónir króna, rynnu til okkar.“ Skíðadeildin stendur vel enda reksturinn verið skynsamur í gegnum tíðina að sögn Auðuns. Þeir fá rúmar sex milljónir í sinn vasa samkvæmt tillögu aðalstjórn- ar en óvíst er hvort deildin hefði hreinlega fengið nokkuð hefði fyrsta greiðsla Orkuveitunnar ekki runnið inn á reikning deildar- innar en skíðamenn neita að afhenda féð og peningarnir sem eyrnamerktir eru deildinni eru því þegar í vasa þeirra. „Ég vil kannski ekki beint segja að aðalstjórnin sé að ræna okkur en framkoma hennar er til hábor- innar skammar. Þeir svara illa og sjaldan tölvupóstsendingum, þeir mæta ekki á fundi sem þeir eiga að mæta á og svo hefur aðalstjórn- in ekki einu sinni haldið aðalfund í ein tvö ár sem er hreint ótrúlegt. Við höfum reynt að eiga samskipti við þetta fólk á kurteisan hátt í tvö ár án árangurs en það fer undan í flæmingi enda með lélegan mál- stað,“ sagði Auðunn reiður en þess ber að geta að tillaga aðalstjórnar er ekki farin í gegn og verður áhugavert að fylgjast með fram- haldinu.henry@frettabladid.is Framkoma aðalstjórnar er til háborinnar skammar Íþróttafélag Reykjavíkur, ÍR, logar stafna á milli þessa dagana en gríðarleg óánægja er með störf aðalstjórnar félagsins hjá bæði handknattleiks- og skíða- deild félagsins. Skíðamenn vanda aðalstjórn ekki kveðjurnar. ELDFIMT ÁSTAND Aðalstjórn ÍR fær ekki háa einkunn hjá handknattleiks- og skíðadeild félagsins. Hún er meðal annars gagnrýnd fyrir að halda ekki aðalfund í tvö ár, mæta ekki á fundi og svara ekki skilaboðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM > Hannes verður forseti KKÍ Hannes Sigurbjörn Jónsson verð- ur sjálfkjörinn forseti KKÍ á ársþingi sambandsins í maímánuði. Hannes hefur verið varaformaður KKÍ en hann mun taka við af Ólafi Rafnssyni sem hefur verið formaður sambandsins í tíu ár. Ólafur gefur nú kost á sér til forseta Íþróttasambands Íslands. Hannes hefur setið í nefndum KKÍ frá árinu 1996 og verið í stjórn frá 1999. Hann hefur því umtalsverða reynslu og þekkingu af störfum sambandandsins þar sem hann er öllum hnútum kunnugur. Hannes var sá eini sem bauð sig fram í formann- sembættið og er því sjálfkjörinn sem næsti for- maður KKÍ. HANDBOLTI Sebastian Alexanders- son verður þjálfari í akademíunni sem er fyrir stráka á aldrinum 16- 20 ára sem munu stunda nám í Fjölbrautaskóla Suðurlands sam- hliða handknattleiksiðkuninni. Hugmyndin hefur verið í bígerð um nokkurn tíma, en það var Einar Guðmundsson, yfirmaður yngri- flokkaþjálfunar hjá Selfoss sem átti hugmyndina að verkefninu. „Það verður skilyrði fyrir drengina að ná árangri, bæði í handboltanum og hefðbundnu námi. Ef góður handboltastrákur fær slakar einkunnir á hann á hættu á að vera vikið úr akademí- unni,“ sagði Sebastian í gær. Búið er að gera samning við Íþróttaskólann á Laugarvatni um samstarf sem felst aðallega í ýmiss konar mælingum auk þess sem HSÍ hefur sýnt verkefninu mikinn stuðning. „Við ætlum að taka góða tölfræði úr öllum okkar leikjum auk þess að skrá mæling- ar úr ýmiss konar æfingum. Þetta verður skráð í einhvers konar grunn sem vonandi verður Side- line Sports forritið, til þess að geta sýnt fram á mælanlegan árangur af starfinu hjá okkur,“ sagði mark- maðurinn knái sem þjálfar meist- araflokk Selfoss. Strákarnir munu spila undir merkjum Selfoss, ýmist í þriðja flokki eða meistaraflokki en ekki öðrum flokki. Sextán drengir hafa skráð sig en þeir eru allir frá Sel- fossi. „Við erum fyrst og fremst að gera þetta til að styrkja innviði handknattleiksdeildar Selfoss en við munum ekki vísa neinum frá sem sækir um. Við gerum okkur vonir um að vera ekki með mikið fleiri en tuttugu stráka en þetta mun stækka mjög fljótt,“ sagði Basti sem mun áfram sinna sínu hefðbundna starfi samhliða þjálf- uninni. „Markmiðið er að strákarnir bæti sig, ekki bara sem handbolta- menn heldur sem manneskjur almennt. Við leggjum mikið upp úr forvarnarstarfi auk þess sem agi, skipulag og metnaður er eitt- hvað sem við munum kynna fyrir nemendum okkar,“ sagði Sebasti- an að lokum. - hþh Handboltaakademía sett á laggirnar á Selfossi: Býr til afreksmenn SEBASTIAN Ætlar að búa til afreksmenn í handbolta á Selfossi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÖRFUBOLTI Steve Nash, leikstjórn- andi Pheonix Suns, verður valinn verðmætasti leikmaður NBA- deildarinnar í körfubolta annað árið í röð. Frá þessu greindi ESPN- fréttastofan í Bandaríkjunum í gær og vísaði í nokkur svæðis- bundin dagblöð í landinu. Valið á verðmætasta leik- manninum verður ekki gert opin- bert af stjórnendum NBA fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær vikur en ESPN þykir mjög áreiðanleg fréttastofa og bendir því margt til þess að það verði Nash sem verði fyrir valinu. Hann var einn af þeim sem var talinn líklegastur til að hreppa nafnbótina ásamt þeim LeBron James, Kobe Bryant, Dirk Nowitzki og Chauncey Billups. Flestir bjuggust við því að bar- áttan stæði helst á milli þeirra Bryant og James en svo virðist sem að árangur Phoenix í vetur, sem var betri en hjá Cleveland og Lakers, hafi riðið baggamuninn hjá Nash, auk þess sem Phoenix er í Vesturdeildinni, sem er talin mun betri en Austurdeildin. Nash skoraði 18,8 stig að með- altali í vetur, það mesta á hans ferli, og gaf 10,5 stoðsendingar, sem er það mesta hjá nokkrum leikmanni í deildinni. Auk þess var hann með 51,2% hittni utan af velli, rétt tæplega 50% úr 3-stiga skotum og 92% af vítalínunni, sem einnig var besta nýting hjá nokkrum leikmanni í vetur. - vig Verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar: Nash verðmætastur annað tímabilið í röð STEVE NASH Hefur borið lið Phoenix uppi í allan vetur. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Atvinnumaðurinn Heiðar Íslandsmeistarinn Heiðar Davíð Bragason hefur gerst atvinnumaður í golfi. Heiðar hefur verið áhugamaður um nokkurt skeið en má ekki taka við verðlaunafé sem slíkur. Hann getur nú farið að moka inn peningum en Heiðar hefur verið að velta ákvörðun þessari fyrir sér um nokkurt skeið en hefur nú tekið skrefið til fulls. A ÞAR GOLF FRÁ 2-6.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.