Fréttablaðið - 10.05.2006, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 10. maí 2006
������������� �������������������� ������� ��
���������
������
������������ �����������������
��������������������������������
�������������������������������������
����������������������������
��������������������
�
�
�
�
�
�
�
�
�
LAGERSALA
50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU !
OPIÐ 11-19
FELLSMÚLA 28
(GAMLA WORLD CLASS HÚSINU)
SVEITASTJÓRNARMÁL Fyrsta
skóflustunga að nýrri sundmið-
stöð að Völlum í Hafnarfirði var
tekin í gær, en ráð er fyrir gert að
fyrsti áfangi hennar verði tekinn
í notkun í desember á næsta ári.
Sundmiðstöðin mun rísa við
hlið íþróttamiðstöðvar Hauka á
Ásvöllum en þar verða tvær sund-
laugar, heitir pottar, líkamsrækt-
arsalur auk aðstöðu fyrir Sundfé-
lag Hafnarfjarðar og önnur
íþróttafélög í bænum. - aöe
Hafnarfjörður:
Ný sundmið-
stöð við Ásvelli
ÞÝSKALAND, AP Armin Meiwes, 44
ára Þjóðverji, var í gær dæmdur
í ævilangt fangelsi fyrir morð og
mannát. Meiwes hafði áður hlotið
vægari dóm fyrir sömu sök, átta
og hálfs árs fangelsi, en málið
var tekið upp á ný í janúar síðast-
liðnum eftir að áfrýjunardóm-
stóll hafði ógilt fyrri dóminn.
Í fyrri réttarhöldunum þótti
Meiwes hafa það sér til málsbóta
að fórnarlambið hafði fyrirfram
gefið samþykki sitt og var hann
því aðeins dæmdur fyrir mann-
dráp en ekki morð.
Við réttarhöldin lýsti Meiwes
aftur atburðarásinni þegar hann
myrti Bernd Jürgen Brandes
heima hjá sér í Rotenburg. Þeir
höfðu kynnst á Internetinu, þar
sem Meiwes auglýsti eftir fórn-
arlambi.
Meiwes segir að Brandes hafi
viljað vera „étinn lifandi“ og
samþykkt fyrirfram að Meiwes
myndi stinga hann til bana eftir
að Brandes hefði drukkið lyf til
þess að missa meðvitund.
„Annars hefði ég aldrei gert
þetta,“ sagði Meiwes, sem tók
verknaðinn upp á myndband.
Meiwes segir að Brandes hafi
einnig hvatt sig til að leggja sér
fleira fólk til munns eftir dauða
sinn. Meiwes segist engu að síður
hafa hikað við að fremja verkn-
aðinn. „Ég vildi borða hann, en ég
vildi ekki drepa hann.“ - gb
Mannætan í Þýskalandi fær þyngri dóm:
Dæmdur í ævilangt fangelsi
ARMIN MEIWES Fyrri réttarhöldin yfir
honum voru úrskurðuð ógild. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GAZABORG, AP Til átaka kom milli
tveggja helstu fylkinga Palest-
ínumanna, Hamas og Fatah, í gær,
annan daginn í röð.
Herskáir Hamas-liðar gerðu
árás á jarðarför á vegum Fatah á
sunnanverðri Gazaströnd. Einnig
kom til skotbardaga milli Hamas
og Fatah í Gazaborg og voru börn
á meðal þeirra sem særðust þar.
Fjárskortur Palestínustjórnar,
sem stafar af því að lokað hefur
verið á alþjóðlegan fjárstuðning,
veldur því að spenna fer ört vax-
andi milli Fatah og Hamas. - gb
Innbyrðis átök í Palestínu:
Hamas og
Fatah berjast
PALESTÍNUKONUR MÓTMÆLA Þessar konur
söfnuðust saman í Nablus í gær.
Innbrotsþjófar flúðu af vettvangi
Brotist var inn í íbúðarhús á Akureyri
seint í fyrrakvöld en vart höfðu þjófarnir
komist inn fyrr en húsráðandi kom
heim og flýðu þjófarnir af vettvangi án
þess að taka nokkuð. Er þeirra leitað
en lögregla hefur nokkra grunaða um
verknaðinn.
LÖGREGLUMÁL
NÝ SUNDLAUG Fyrsta skóflustungan
að nýrri sundmiðstöð í Vallahverfi var
tekin í gær.