Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 14
14 10. maí 2006 MIÐVIKUDAGUR
�����������������������������������������������������������
���������������������������������������������������������
���������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
������������������������
��������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������
1.890.000,- Beinskipt - 1.6 lítra
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
Allt önnur
Astra.
Mánaðargreiðsla 23.061,-*
���������������� �������������������� ���� �����������������
HEILBRIGÐISMÁL „Menntun sjúkra-
liða á Íslandi er jafnmikil ef ekki
meiri en á Norðurlöndunum en
þrátt fyrir það komast sjúkraliðar
hér ekki með tærnar þar sem hinir
hafa hælana þegar kemur að
starfsréttindum,“ segir Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags Íslands. „Það þarf að
endurskilgreina frá grunni verka-
skiptingu á milli hjúkrunarfræð-
inga og sjúkraliða.“
Sjúkraliðanám á Íslandi tekur
sex annir og mjög margir bæta við
sig þriggja anna sérnámi í hjúkrun
aldraðra. Þrátt fyrir þetta mega
íslenskir sjúkraliðar ekki sinna
störfum sem sjúkraliðar á Norður-
löndunum hafa séð um í langan
tíma til dæmis að sprauta þó það
sé fyrir löngu búið að viðurkenna
það í Danmörku með sex anna
nám. Sjúkraliðar í Danmörku
þurfa heldur ekki að hafa hjúkrun-
arfræðing á bakvakt eftir sex anna
nám en íslenskir sjúkraliðar ná því
ekki eftir níu anna nám með sér-
hæfingu í öldrunarhjúkrun. Þessu
hefur Sjúkraliðafélag Íslands mót-
mælt bæði bréflega og munnlega
við heilbrigðisráðuneytið. Kristín
segir að hún hafi einnig reynt að fá
skýringar á þessu hjá landlækni
en svar hans hafi einfaldlega verið:
„Af því bara. Svona er þetta á
Íslandi og við viljum hafa þetta
svona“.“
Kristín segir jafnframt að þegar
hjúkrunarfræðing vantar á vakt þá
séu það sjúkraliðar sem ganga í
störf þeirra. Þetta viti allir en það
megi ekki viðurkenna það. „Nú er
líka mikil umræða um samþætt-
ingu heimahjúkrunar og félags-
þjónustunnar og um leið og við-
komandi sjúklingur er ekki undir
væng heilbrigðisþjónustunnar
heldur félagsþjónustunnar þá sér
ófaglært fólk um lyfjagjafir og
sprautur. Þetta er fólk sem hefur
enga menntun. Svör varðandi þetta
fékk ég hjá landlækni og voru að
þetta kæmi þeim ekki við.“
Sigurður Guðmundsson land-
læknir segir að nauðsynlegt sé að
nýta menntun heilbrigðisstarfs-
fólks sem best. „Afstaða okkar
hefur verið að það klíníska mat
sem þarf að fara fram, áður en lyf
er gefið, sé gert af þeim sem hafa
bestu menntunina á hjúkrunar-
sviði. Að ábyrgðin sé hjá þeim.“
Sigurður segir að ef ófaglært fólk
sé að sprauta sjúklinga sé það eitt-
hvað sem hann vilji fá frekari upp-
lýsingar um og sé eitthvað sem
landlæknisembættið vilji ekki.
svavar@frettabladid.is
Menntun sjúkraliða
stórlega vanmetin
Starfsréttindi sjúkraliða eru mun minni hér en á Norðurlöndunum þrátt fyrir
sambærilega eða betri menntun. Sjúkraliðar fá ekki að gefa lyf með sprautu en
ófaglærðir sjá um slíka lyfjagjöf þegar sjúklingur fellur undir félagsþjónustuna.
SJÚKRALIÐANEMAR Nám sjúkraliða tekur sex annir og margir bæta við sig þriggja anna viðbótarnámi í hjúkrun aldraðra. Þetta nám gefur
þó mun minni starfsréttindi en sambærilegt nám á Norðurlöndunum.
KRISTÍN Á.
GUÐMUNDSDÓTTIR
SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
ELDVIRKNI Á JÖVU Glóandi hraun sést hér
flæða úr gíg eldfjallsins Merapi á eynni
Jövu í Indónesíu. Eldvirkni hefur verið
stöðug í fjallinu að undanförnu. Það hefur
spýtt úr sér stórum gas- og gjóskubólstrum
vikum saman og fljótandi hraun hefur
safnast upp í suðurhluta gígsins.
KOSNINGABARÁTTAN Sigurður Sverr-
ir Jónsson, oddviti í Skilmanna-
hreppi, gengur nú mili bæja og
býður hverju heimili 600 þúsund
króna framlag úr sjóði hreppsins í
formi vöruúttektar í Byko eða
Húsasmiðjunni. Þetta á að gerast
áður en hreppurinn sameinast
þremur öðrum í sumar.
Skilmannahreppur, sem er einn
efnaðasti hreppur landsins vegna
gjalda af járnblendiverksmiðjunni
á Grundartanga og hálfu álverinu
þar, á 30 milljónir í svonefndum
Búsetusjóði. Sjóðnum á nú
að deila út áður en til sam-
einingar kemur þannig að
peningarnir deilist ekki á
alla íbúa hins sameinaða
sveitarfélags.
Sigurður Sverrir Jóns-
son oddviti segir að þegar
sameiningin var ákveðin
hafi sjóðurinn verið undan-
skilinn nema eitthvað yrði
eftir í honum við samein-
inguna. Það verði ekki.
Ætlast sé til að íbúarnir máli mann-
virki á jörðum sínum og
dytti þar að hlutum og því
sé útektarfyrirkomulagið í
BYKO og Húsasmiðjunni
ekki óeðlilegt.
Sigurður játar, að sögn
NFS, að þetta kunni að líta
út eins og atkvæðakaup í
ljósi þess að hann leiðir
einn þriggja lista í nýju
sameinuðu sveitarfélagi en
telur að hann geti líka gold-
ið þess ef öfundar gæti í
hinum hreppunum þremur. ■
Oddvitinn í Skilmannahreppi gengur milli bæja og deilir út peningum í sjóði:
Kaupir atkvæði fyrir úttekt
SIGURÐUR
SVERRIR JÓNSSON
DANMÖRK Danir hyggjast stór-
auka sölu á þekkingu sinni á
umhverfis- og orkumálum. Hefur
ríkisstjórn landsins markað
stefnu sem tryggja á Dönum
auknar tekjur af útflutningi á
umhverfisvænum lausnum eins
og vindmyllum, reyk- og vatns-
hreinsum og þekkingu á sorpmál-
um.
Í frétt Berlingske tidende í
gær kom fram að ströng umhverf-
isstefna í landinu síðustu þrjátíu
ár sé ástæðan fyrir því að Danir
búi yfir yfirburða þekkingu á
þessum sviðum. Nú séu að opnast
stórir markaðir fyrir þessa þekk-
ingu í löndum eins og Kína, Ind-
landi, Brasilíu, Bandaríkjunum
og Rússlandi og ríkisstjórnin vilji
tryggja að Danir fái sinn skerf af
þeirri köku. Því hafa þrír ráð-
herrar fengið það verkefni að
kynna þær lausnir sem Danir búi
yfir í þessum löndum.
Einnig eiga sendiherrar lands-
ins á þessum svæðum að sjá um
kynninguna og að afla tengsla
sem dönsk fyrirtæki geta nýtt
sér.
Per Stig Møller, utanríkisráð-
herra segir að aukin eftirspurn
eftir orku í heiminum sé gullið
tækifæri fyrir Danmörku. ■
Danir telja sig í fremstu röð í umhverfismálum:
Vilja flytja út
umhverfisþekingu
VINDMYLLUR Danir eru sannfærðir um að í Asíu, Ameríku og víðar sé markaður fyrir
sérþekkingu þeirra á umhverfismálum.