Fréttablaðið - 10.05.2006, Side 41
MARKAÐURINN
Barclay’s þar sem eftirlitið var gagnrýnt
fyrir að gera sér ekki grein fyrir hættum sem
steðjuðu hér að bankakerfinu. Jónas telur þá
gagnrýni hins vegar skýrast að nokkru af
því að fulltrúar bankans hafi verið með mjög
skýrt mótaðar hugmyndir um stöðu mála og
firrst við þegar þeir fengu ekki þau svör sem
þeir bjuggust við. Þessi skýrsla sé þannig
nokkuð frábrugðin öðrum úttektum.
„Á svipuðum tíma kom út skýrsla frá
Royal Bank of Scotland þar sem kom fram
að fundur þeirra með okkur hefði aukið mjög
trú þeirra á kerfinu og að þeirra trú væri
að gjaldmiðillinn okkar væri hér nokkuð
vandamál, en ekki fjármálakerfið. Þá sagði
HSH Nordbank, sem líka kom hingað, að
helsti munurinn á okkur hér og löndum sem
aðrir höfðu borið okkur saman við, svo sem
Taíland, væri öflugar stofnanir. Svo verður
ekki annað sagt en að í nýrri skýrslu Tryggva
Þórs Herbertssonar og Frederics Mishkin fái
eftirlitið mjög góða einkunn.“
MÆLIKVARÐI SETTUR Á ÁRANGURINN
„Öflugur fjármálamarkaður er þjóðfélags-
lega hagkvæmur og mikilvægur. Hann sér
um greiðslumiðlun, vörslu sparnaðar og að
fjármagn leiti í sem hagkvæmastan farveg og
ég vænti þess að áfram verði örar breytingar
og frekari vöxtur þótt eitthvað hægist um á
þessu ári,“ segir Jónas og áréttar að fyrst og
fremst vilji Fjármálaeftirlitið hafa jákvæð
áhrif á þróun markaðarins, veita honum þá
umgjörð og það aðhald sem þurfi til og stuðla
um leið að traustri starfsemi fyrirtækja.
„Í þeim efnum leggjum við áherslu á að
vera þekkt fyrir fagmennsku, áreiðanleika
og árangur og vera ákveðin, en um leið sann-
gjörn.“
Til þess að vinna enn frekar að þessum
markmiðum segir Jónas að lagt hafi verið í
töluverða vinnu innan stofnunarinnar við að
koma á því sem kallast stefnumiðað árang-
ursmat, eða balanced scorecard, og er vel
þekkt leið til að setja markmið og greina
árangur í rekstri fyrirtækja og stofnana.
„Síðan ég kom höfum við verið að klára þessa
stefnumótun og markmiðasetningu, en í henni
höfum við sett niður meginstefnu okkar, að
stuðla hér að traustri fjármálastarfsemi og
síðan framtíðarsýnina um að hafa jákvæð
áhrif á þróun markaðarins. Við skilgreinum
svo sextán markmið í mismunandi víddum
og setjum einn til tvo mælikvarða fyrir hvert
markmið.“ Hann segir að verið sé að innleiða
árangursmatið um þessar mundir og það
verði prufukeyrt á þessu ári. „Árið verður
þannig svolítil tilraunastofa meðan við erum
að stilla okkur af, en ég vænti þess að við
endurskoðum þetta í lok árs og förum frá og
með næsta ári að mæla hér árangurinn með
þessi markmið í huga.“
AUKIN SJÁLFVIRKNI OG HÆFISMAT
Jónas segist mikla áherslu leggja á nútíma-
væðingu og skilvirkni í starfinu, sem endur-
speglist í því sem kalla megi aukna rafvæð-
ingu. „Við söfnum miklum upplýsingum, en
þar vil ég koma á rafrænum skilum á öllu,
ekki bara þannig að gögn berist í tölvupósti
heldur líkara því sem fólk þekkir af skilum
skattskýrslunnar. Þannig eiga upplýsingar að
geta komið og farið beint inn í gagnagrunna
hér hjá okkur. Við getum þá greint gögnin
mun fyrr og notað úrvinnslukerfi sem gefa þá
til kynna ef eitthvað kallar á nánari skoðun,
miðað við þær forsendur sem við setjum,“
segir hann og bætir við að næstu tvö ár fari
í að klára þetta verkefni. Ferlið á ekki að
vera fyrirtækjunum íþyngjandi eða setja á
þau auknar kvaðir heldur á að auðvelda þeim
að skila upplýsingum. „Þau þurfa að senda
okkur fjölmargar skýrslur, hvort sem það
er um stórar áhættuskuldbindingar, eigin-
fjárstöðu, lánveitingar vegna hlutabréfa og
fleira.“ Jónas telur að um 3.000 skýrslueintök
um margvísleg málefni berist eftirlitinu á ári
frá eftirlitsskyldum aðilum. Fyrsta tilrauna-
verkefnið varðandi þetta fer af stað á næstu
vikum.
Jónas nefnir sem dæmi um uppbyggjandi
aðhald að nýir stjórnendur fjármálafyrir-
tækja, tryggingafélaga og -miðlara, auk líf-
eyrissjóða, séu kallaðir í sérstakt hæfismat.
Áður þekktist þetta varðandi vátryggingafé-
lög og -miðlara en var víkkað út til fjármála-
fyrirtækja og lífeyrissjóða í lok síðasta árs.
Frá þeim tíma hafa tæplega tíu manns úr
ólíkum félögum komið í mat og enginn þeirra
hefur hlotið falleinkunn.
„Í hæfismatinu felst í raun tvennt.
Stjórnarmenn svara spurningalista og skila
inn ákveðnum gögnum, en svo er heldur
meiri þungi lagður á að prófa þá sem eru í
við stjórnvölinn dags daglega, svo sem fram-
kvæmdastjóra. Þeir kom hér í munnlegt próf
þar sem farið er yfir lög og reglur sem um
starfsemina gilda, til að tryggja að þeir séu
meðvitaðir um helstu þætti. Menn koma vel
undirbúnir og viðkvæðið hefur yfirleitt verið,
svona eftir á, að menn séu mjög ánægðir með
þetta, þeir hafi virkilega sest niður og farið í
gegnum hlutina á heildstæðan hátt sem þeir
hefðu kannski ekki annars gert.“
Fari illa hjá einhverjum í prófi segir Jónas
að við því verði brugðist með því að gera
stjórn fyrirtækisins viðvart og vekja á því
athygli og mönnum verði svo gefinn kostur
á að endurtaka ferlið. Hann telur þó ekki
miklar líkur á að stjórnendur láti reka sig
alveg á gat, enda væntanlega síun búin að
eiga sér stað hjá viðkomandi stjórn í ráðning-
arferlinu.
ÁHERSLA LÖGÐ Á PENINGAÞVÆTTI
Þá segir Jónas að stigin hafi verið ákveðin
skref hjá Fjármálaeftirlitinu í þá átt að auka
upplýsingagjöf. „Eftirlitið hefur náttúrlega
lengi verið leiðbeinandi og gefið út leiðbein-
andi tilmæli, en núna erum við farin að birta
ákvarðanir um verðbréfamarkaðinn undir
svokallaðri gegnsæisstefnu sem við fengum
um mitt síðasta ár heimild í lögum til að gera.
Við höfum svo líka verið að setja fram túlkan-
ir, en höfum þá verið að skoða ákveðin atriði
sem ef til vill hefur verið vafi um á markaði
og sett þá fram túlkun og eytt vafanum.“
Þetta segir Jónas ákveðna opnun frá því sem
áður var þegar túlkuð voru einstök atriði, en
upplýsingarnar fóru ekki lengra en til fyrir-
tækisins sem í hlut átti.
Eins hefur verið lögð meiri áhersla á mál
tengd peningaþvætti. Er það meðal annars
vegna nýs frumvarps til laga um lög gegn pen-
ingaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, en
þar er Fjármálaeftirlitinu fært skýrara verk-
svið en áður. Vegna þessa hefur verið ráðinn
sérstakur starfsmaður sem brátt hefur störf.
Einnig spilar inn í peningaþvættisáhersluna
nýafstaðin úttekt vinnuhóps OECD, Financial
Action Task Force, sem fjallar um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðju-
verka í aðildarríkjum stofnunarinnar. „Þessi
mál verða því í auknum forgangi í framhaldi
af lagabreytingunni,“ segir Jónas en telur
engu að síður umgjörðina almennt góða þegar
kemur að þessum málum. „Þetta er hins
vegar starf sem verður að sinna vel vegna
alþjóðlegra skuldbindinga. Mest kemur þetta
til með að felast í erlendu samstarfi, úttekt-
um hjá fjármálafyrirtækjum á innri ferlum,
leiðbeinandi tilmælum og upplýsingagjöf til
fyrirtækjanna, en allur þungi í rannsóknum
svona mála er hjá lögreglunni.“
STAÐA ÍSLENSKU VIÐSKIPTABANKANNA
Jónas segir fyrir liggja að á næstunni fundi
Fjármálaeftirlitið með viðskiptabönkunum
hverjum fyrir sig og fari yfir stöðu og horf-
ur í starfsemi þeirra. Bankarnir hafa orðið
fyrir barðinu á erfiðri umræðu greiningar-
deilda erlendra banka sem sumpart hefur
byggt á vanþekkingu á íslenskum aðstæð-
um og endurómað hefur í sumum fjölmiðl-
um. Afleiðingin hefur meðal annars verið sú
að lánakjör þeirra við endurfjármögnun á
erlendum skuldabréfamörkuðum hafa versn-
að til muna. Jónas áréttar þó að um reglu-
bundna fundi sé að ræða, slíkar viðræður fari
alla jafna fram að vori og hausti. Hann segir
ekki að undra skrif um bankana, enda hafi
þeir komið áræðnir inn á nýjan markað og
væntanlega troðið einhverjum um tær.
„Grunnafkoma bankanna er viðunandi og
það sem meira máli skiptir er að eiginfjár-
staða þeirra er mjög sterk. Þeir hafa til
dæmis staðist þau álagspróf sem við gerum á
þeim og eru mjög stíf,“ segir Jónas og bætir
við að bankarnir hafi einnig aukið áhættu-
dreifingu sína, bæði með tilliti til tekna og
landa. Hann segir ekkert benda til annars en
að útlánagæði séu
í lagi og bankarn-
ir virðist vera að
draga úr markaðs-
áhættu vegna verð-
bréfa. „Hins vegar
er endurfjármögn-
unin að stærstum
hluta á mörkuðum
erlendis, en það
er viðskiptamódel
sem bankarnir
hafa valið sér og
gera sér grein fyrir
áhættunni sem felst
í því. Þeir leggja
áherslu á öfluga
áhættustýringu og
þau áform sem þeir
hafa kynnt okkur
um fjármögnun á
þessu ári og næsta
eru trúverðug.“
Jónas segir mikil-
vægt að bæði bank-
arnir og stofnanir
hér heima læri af
þeirri umræðu sem
átt hefur sér stað
um íslenska hag-
kerfið og bankana.
„Upplýsingagjöfin
þarf að vera meiri
og kannski á formi
sem þeir aðilar sem
eru úti á markaðn-
um telji sig þurfa.
Bæði við og bank-
arnir þurfum ef til
vill að sýna meira
frumkvæði í að
koma á framfæri upplýsingum. Þarna tel ég
til dæmis að rafvæðingin muni hjálpa okkur
mikið, því þegar hún er komin á verður mun
auðveldara að greina og birta upplýsingar.“
Þá segir Jónas mikilvægt að menn átti sig á að
verkefni á borð við upplýsingagjöf sem þessa
verði viðvarandi, en ekki í formi „íslensks“
átaks þar sem upplýsingum verði mokað út í
takmarkaðan tíma. Hann segir hins vegar að
ásókn í upplýsingar hjá eftirlitinu og beiðnir
um fundi hafi stóraukist, en hingað til hafi
fundir að mestu einskorðast við matsfyrir-
tækin og alþjóðlegar stofnanir. Jónas bendir
einnig á að á síðasta ársfundi stofnunarinnar
í byrjun nóvember síðastliðins hafi hann haft
uppi varnaðarorð um stöðuna, áður en titr-
ingurinn hófst. „Því er ekki hægt að segja að
við höfum sofið á verðinum. En þarna minn-
umst við meðal annars á útlánaaukninguna,
f j á r m ö g n u n i n a ,
markaðsverðbréfa-
áhættu og áhættu
af starfsemi í
nýju umhverfi
sem er fyrst og
fremst þessi
umtalsáhætta.“
Jónas segist
telja að umræðan
um hagkerfið og
bankana sé nokkurs
konar veðrabrigði
sem muni ganga
yfir. „Umgjörðin og
undirstöðurnar eru
það traustar. Góð
afkoma bankanna á
fyrsta ársfjórðungi,
þrátt fyrir óstöðug-
leika með lækkun
á gengi krónunnar
og virði hlutabréfa,
hefur til dæmis
haft jákvæð áhrif
og álag á skulda-
tryggingum bankanna hefur farið lækkandi.
Tíma tekur að koma upplýsingum á framfæri.
Þegar menn átta sig á að grunnurinn er góður
róast umræðan, en það tekur náttúrlega ein-
hvern tíma.“
13MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2006
Ú T T E K T
STEFNUNNI LÝST Jónas Fr. Jónsson, for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, segir eftirlitið lif-
andi og skemmtilegan vinnustað þar sem
mikil áhersla sé lögð á símenntun. Starfið
sé enda fjölbreytilegt með miklu erlendu
samstarfi og samstarfi innanhúss.
MARKAÐURINN/GVA
Með nútímavæðingu og skilvirkni að leiðarljósi
Fjármálaeftirlitið hefur að markmiði að tryggja öryggi og stöðugleika í rekstri einstakra fjármálaþjónustufyrirtækja. Í kjölfar útrásar íslenskra fjármálafyrirtækja hefur erlent samstarf stór-
aukist, unnið er að innleiðingu samhæfðs árangursmats og verið er að koma upp nýju úrvinnslukerfi fyrir rafræn skil á gögnum. Óli Kristján Ármannsson hitti Jónas Fr. Jónsson að máli.
H V A Ð E R
F J Á R M Á L A E F T I R L I T I Ð ?
Fjármálaeftirlitið er sjálfstæð ríkisstofnun með sér-
staka stjórn. Hlutverk þess er að fylgjast með því að
starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög
og reglur og að öðru leyti í samræmi við eðlilega
og heilbrigða viðskiptahætti. Eftirlitsskyldir aðilar
eru viðskiptabankar, sparisjóðir, lánafyrirtæki (fjár-
festingarbankar), innlánsdeildir samvinnufélaga,
verðbréfafyrirtæki, verðbréfamiðlanir og rekstrarfélög
verðbréfasjóða, kauphallir, verðbréfamiðstöðvar,
lífeyrissjóðir, vátryggingafélög og vátryggingamiðlarar
með starfsleyfi hér. Undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins
heyrir einnig á sama hátt starfsemi nokkurra fleiri
aðila í fjármálastarfsemi, sem starfa samkvæmt sér-
stökum lögum. Kveðið er á um starfsemi og hlutverk
Fjármálaeftirlitsins í sérlögum og lögum um ofan-
greinda fjármálastarfsemi.