Fréttablaðið - 10.05.2006, Qupperneq 69
MIÐVIKUDAGUR 10. maí 2006 29
•Innkaupakort VISA er ókeypis kreditkort.
•Ekkert stofngjald, árgjald eða seðilgjald.
•Kortið er ætlað í rekstrarinnkaup og kemur
í stað beiðna- og reikningsviðskipta.
•Auðveldar innkaup og bætir yfirsýn.
•Úttektartímabil er almanaksmánuður.
•Gjalddagi er 25. næsta mánaðar.
•Lengri greiðslufrestur.
INNKAUPAKORT VISA
Nýr dagur – ný tækifæri
Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum.
Bjarni reddar öllu.
Sænska bókaforlagið Alfabeta
hefur keypt útgáfuréttinn á Argó-
arflísinni eftir Sjón, handhafa
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs. Argóarflísin hlaut
góðar viðtökur þegar hún kom út
fyrir jól og var meðal annars
valin skáldsaga ársins af starfs-
fólki bókaverslana.
Bókin gerist árið 1949 og segir
frá rosknum Íslendingi að nafni
Valdimar Haraldsson, sem er far-
þegi um borð í dönsku flutninga-
skipi sem er á leið til Svartahafs-
ins. Meðal skipverja er hinn
lífsreyndi Keneifur, sem segir
skipsfélögum sínum söguna af
því þegar hann sigldi með hinu
sögufræga fleyi Argó, undir for-
ystu Jasonar Esonarsonar og tók
þátt í hinni miklu glæfraför Argó-
arfara til Kolkis til að sækja
gullna reyfið. Bjartur gefur
Argóarflísina út og á vef forlags-
ins segir að með þessum samning
rætist spádómur Völvu Séð og og
heyrt, sem spáði Sjón upphefð að
utan á árinu og „því kom áhugi
hins virta forlags hreint ekki á
óvart í höfuðstöðvum Bjarts“.
Argóarflísin
til Svíþjóðar
SJÓN Verðlaunaafhending Norðurlandaráðs
Skákfélagið Hrókurinn stendur
fyrir hraðskákmóti í Iðnó í dag
klukkan 17. Mótið er öllum opið,
börnum og fullorðnum, byrjendum
og meisturum, og er þátttaka ókeyp-
is. Teflt er í veitingasal Iðnó á 2.
hæð og lýkur mótinu um klukkan
18.30.
Verðlaun eru veitt fyrir bestan
árangur þriggja efstu á mótinu og
að auki eru þrenn verðlaun fyrir
bestan árangur barna á grunnskóla-
aldri.
Þetta er þriðja Bónushraðskák-
mótið í syrpu Hróksins í Iðnó. Sigur-
vegarar á fyrri mótum voru FIDE-
meistararnir Davíð Kjartansson og
Róbert Harðarson. Sá sem nær best-
um árangri á fjórum fyrstu Bónus-
mótunum í Iðnó fær utanlandsferð í
verðlaun, svo til mikils er að vinna.
Skákmótasyrpan í Iðnó hefur
farið vel af stað og stefnir Hrókur-
inn að því að gera miðvikudagsmót-
in að föstum lið í skáklífinu í sumar.
Hraðskák í Iðnó
MANNTAFL Í IÐNÓ Miðvikudagsskákmót
Hróksins í Iðnó hafa vakið athygli en þar
mætist fólk á öllum aldri við skákborðin.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
7 8 9 10 11 12 13
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Jóhann Nardeau tromp-
etleikari heldur útskriftartónleika í
Salnum í Kópavogi. Meðleikarar
eru Bjarni Frímann Bjarnason,
fiðluleikari og Snorri Sigfús
Birgisson, píanóleikari. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
21.00 Tónleikar í djassklúbbnum
Múlanum. Að þessu sinni kemur
fram gítartríó Jóns Páls Bjarnasonar
en það er skipað þeim Jóni Páli
Bjarnasyni á gítar, Eðvarð Lárussyni
á gítar og Ásgeiri Ásgeirssyni á
gítar. Leiknar verða sígildar perlur
djassögunnar í útsetningum þeirra
félaga. Múlinn hefur nú aðsetur sitt
í Þjóðleikhúskjallaranum. Miðaverð
er 1.000 kr.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Kliður fornra strauma er heiti á síð-
ustu tónleikunum í TÍBRÁ-tónleika-
röðinni í Salnum í Kópavogi annað
kvöld. Efnisskráin er alíslensk og
ætla Steindór Andersen kvæðamað-
ur, Sigurður Rúnar Jónsson, oft
kallaður Diddi fiðla og Bára Gríms-
dóttir langspilsleikari að leiða
saman hesta sína, en þau hafa öll
lagt sitt rækilega af mörkum til að
halda á lofti hinum forna tónlistar-
arfi. „Við ætlum að leika íslensk
þjóðlög, tvísöngva og stemmur og
fleira,“ segir Bára. „Þetta er í fyrsta
sinn sem við þrjú komum fram
saman en æfingar hafa gengið vel
og þetta hljómar vel.“
Hinn 11. maí er afmælisdagur
Kópavogsbæjar en sú hefð hefur
skapast að ljúka TÍBRÁ-tónleika-
röðinni ávallt á þeim degi, en jafn-
framt lýkur Kópavogsdögum 2006
þetta kvöld. Þetta eru fyrstu TÍBRÁ-
tónleikarnir sem Bára leikur á en
Salinn þekkir hún vel. „Það er alltaf
virkilega gaman að spila í Salnum,
hljómburðurinn er frábær.“ Að sögn
Báru hefur þríeykið verið beðið um
að flytja dagskrána aftur í Surt-
shelli í næsta mánuði.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20
annað kvöld. Miðaverð er 200 krón-
ur og enn eru nokkur sæti laus.
bergsteinn@frettabladid.is
Þjóðlegur kliður í Salnum
FRÁ ÆFINGU Í SALNUM Steindór, Sigurður og Bára hafa öll haldið íslenskum tónlistararfi
rækilega á lofti. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA