Fréttablaðið - 10.05.2006, Qupperneq 72
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
INSIDE MAN kl. 8 og 10.25 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ÍSL. TALI kl. 6
ÍSÖLD 2 M/ÍSL. TALI kl. 6
LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 6
PRIME kl. 5.30, 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WHEN A STRANGER CALLS kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
MISSION IMPOSSIBLE 3 kl. 6, 9 og 11
SÝND Í LÚXUS kl. 6 og 9
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 4, 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6
PRIME kl. 8
THE HILLS HAVE EYES kl. 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 4 og 8
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6
Mannbætandi og þrælfyndin
rómantísk gamanmynd með
Uma Thurman og Meryl
Streep í fantaformi!
„Ég var ónýtur eftir
myndina. Hún var
svo fyndin“
- Svali á FM957
EIN FYNDNASTA MYND ÁRSINS
SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Birgitta Haukdal fer á kostum sem Rauðhetta í íslensku talsetningunni
ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
HVAÐ SEM ÞÚ GERIR,
EKKI SVARA Í SÍMANN!
- SV, MBL - LIB, Topp5.isSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
- JÞP Blaðið
- Ó.Ö.H. - DV
- SV - MBL
- LIB. - TOPP5.IS
STRANGLEGA BÖNN
UÐ
INNAN 16 ÁRA
DYRAVERÐIR VIÐ
SALINN!
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS ER KOMIN!
AF MÖRGUM TALIN VERA BESTA MISSION IMPOSSIBLE MYNDIN TIL ÞESSA!
„Mission: Impossible III byrjar
sumarið með pomp og prakt
og inniheldur allt sem góður
sumarsmellur hefur uppá að
bjóða, þrælgóðan hasar og
fantagóða skemmtun.“
- VJV topp5.is
Skoska hljómsveitin Snow Patrol
fór beint á topp breska vinsældar-
listans með sína fjórðu plötu, Eyes
Open.
Platan seldist í 120 þúsund ein-
tökum fyrstu vikuna sem sýnir
glögglega vinsældir sveitarinnar í
Bretlandi. Seldist platan meira en
þær plötur sem voru í næstu þrem-
ur sætum á eftir samanlagt. Plat-
an fór jafnframt beint á toppinn í
Írlandi.
Síðasta plata Snow Patrol, Final
Straw, seldist í vel á þriðju milljón
eintaka um heim allan, enda inni-
hélt hún slagarann Run.
Snow Patrol á toppnum
SNOW PATROL Skoska hljómsveitin Snow Patrol gerir það gott í Bretlandi.
Uppselt er á tónleika söngkonunn-
ar og hörpuleikarans Joanna News-
om í Fríkirkjunni þann 18. maí.
Aðeins 200 miðar eru jafnframt
eftir á aukatónleika hennar sem
verða 16. maí. Á undan henni á
aukatónleikunum spilar hljóm-
sveitin Slowblow auk þess sem
tónlistarmaðurinn Smog kemur
fram. Miðasala er hafin á midi.is, í
Skífunni og völdum BT verslun-
um. Miðaverð er 2.500 kr. auk
miðagjalds.
Fáir miðar
á Newsom
JOANNE NEWSOM Söngkonan og hörpu-
leikarinn heldur tvenna tónleika í Fríkirkj-
unni síðar í mánuðinum.
Hjartaknúsararnir í breska stráka-
bandinu Take That hafa landað
nýjum plötusamningi við útgáfu-
fyrirtækið Polydor sem hljóðar upp
á þriðju milljón punda eða rúmar
300 milljónir íslenskra króna. Sveit-
in sem lagði upp laupana árið 1996
er byrjuð aftur og er nú á hljóm-
leikaferð um Bretland. Virðist sú
ferð hafa gengið með eindæmum
vel og eru vinsældir sveitarinnar
langt frá því að líða undir lok sam-
kvæmt heimildum The Sun. Núver-
andi meðlimir bandsins eru Gary
Barlow, Mark Owen, Howard Don-
aldson og Jason Orange en stuð-
drengurinn Robbie Williams var
einnig í bandinu þegar það var sem
vinsælast en hann er sá eini þeirra
sem náði vinsældum í sólóferli og
vildi því ekki ganga til liðs við
bandið á ný. Fyrirhugað er að plat-
an komi út um næstu jól.
Endurreisn
strákasveitar
TAKE THAT Hefur gert nýjum plötusamningi
við Polydor.
Bandaríska rokksveitin Bones
Brigade heldur tvenna tónleika
hér á landi um helgina á vegum
Gagnaugans.
Bones Brigade er að fylgja
eftir tveimur nýjustu plötum
sínum; Endles Bummer og I Hate
Myself When I‘m Not Skateboard-
ing.
Á föstudagskvöld spilar sveitin
í Hinu húsinu ásamt I Adapt,
Fighting Shit og Morðingjum. Á
laugardagskvöld spilar hún á
Akranesi ásamt Raw Material,
Gavin Portland, The Death Metal
Supersquad og Oak Society. Báðir
tónleikarnir byrja klukkan 18.00
og er miðaverð 500 krónur.
Tvennir tónleikar
BONES BRIGADE Rokksveitin Bones Bones Brigade frá Bandaríkjunum heldur tvenna
tónleika um helgina.
Tónlistarhátíðin Bright Nights
verður haldin í Árnesi helgina 9.
til 11. júní þar sem raf-og danstón-
list verður í fyrirrúmi.
Á meðal þeirra sem koma fram
eru Apparat, Gus Gus, Hermi-
gervill, Worm is Green, Daedelus,
Judith Juillerat, Sebestian Tellier,
Beatmaking Troopa, Sometime,
Mugison, Tonik, Plat, Reykjavik
Swing Orchestra og Biogen.
Forsala miða hefst í næstu viku
og er miðaverð 7500 krónur með
tjaldstæði.
Björt helgi í Árnesi
APPARAT Hljómsveitin Apparat mun koma
fram á tónlistarhátíðinni Bright Nights.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Paul Lydon mun hita upp fyrir
systurnar í CocoRosie sem heldur
tónleika á Nasa miðvikudaginn 17.
maí.
Lydon er alinn upp í Boston en
hefur búið í Reykjavík síðan 1988.
Hann hefur gefið út plötur sem
annar helmingur dúettsins Paul &
Laura og undir nöfnunum Blek
Ink og Sanndreymi. Síðasta plata
hans, Vitlaust hús, var gefin út
undir hans eigin nafni.
CocoRosie hefur gefið út tvær
plötur sem hafa báðar fengið mjög
góða dóma. Sveitin er þekkt fyrir
að nota ýmis hljóð í tónlist sinni,
þar á meðal dýrahljóð og hljóð
úr leikföngum.
Tvö stór tjöld verða sett upp á
tónleikunum og því má búast við
miklu sjónarspili.
Miðasalan fer fram á midi.is, í
Skífunni, verslunum BT á Akur-
eyri og Selfossi og á event.is.
Miðaverð er 3400 krónur auk 250
króna miðagjalds. Tónleikarnir
hefjast kl. 21.00 og opnar húsið
klukkutíma fyrr.
Paul Lydon hitar upp fyrir
systurnar í CocoRosie
PAUL LYDON Tónlistarmaðurinn bandaríski gaf síðast út plötuna Vitlaust hús.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR