Fréttablaðið - 10.05.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������������������� Eyðir engu,
þannig séð
Bensíneyðsla er ómöguleg. Hún gengur ekki lengur. Skelltu bara i-Podinum í samband við græjurnar í Aygo og njóttu þín.
Aygo eyðir engu, þannig séð.
Ofkeyrðu þig.
AYGO
Það er gaman að keyra
Engin útborgun & tryggingar innifaldar
Aðeins 24.533 kr. á mánuði*
*Sértilboð Elísabetar og AYGO. M.v. 84 mánuði.
Innifalið er afborgun af láni, tryggingar (ábyrgðar- og kaskótrygging) og bifreiðagjöld á fyrsta tímabili.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.IS
T
O
Y3
25
47
5
/0
6
Toyota
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570 5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460 4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 421 4888
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480 8000
www.aygo.is
Þetta eru bara hauslausir herra-menn, þetta eru ekkert nema
vöðvastæltir skrokkar,“ sagði
Silla frænka þegar ég hringdi í
hana á dvalarheimilið, til að spyrj-
ast fyrir á hvern hátt ég gæti
orðið henni til hjálpar í næsta
setuverkfalli umönnunarstéttar-
innar. En sú gamla var í þvílíkum
ham að hún fékkst ekkert til að
ræða mál sem stóðu henni næst.
Heldur jós úr skálum reiði sinnar
yfir hauslausa herramenn. Ég
spurði hana varlega hverjir þess-
ir herramenn væru og fékk þau
svör hjá gömlu konunni að það
væru forráðamenn Knattspyrnu-
sambands Íslands sem hefðu
engan bústað fyrir jafn bráðnauð-
synlegt líffæri og heilann og hlytu
því að vera hauslausir.
HVAÐ fékk nú gamla konu til að
taka svona stórt upp í sig gagn-
vart drengjunum okkar hraustu
sem nú ætluðu að fara að bera
hróður landsins enn einu sinni út
fyrir landssteinana og fara til
Berlínar og taka þátt í Heims-
meistara keppni í fótbolta. Jú hún
Silla mín er í félagskap sem heitir
ALÞJÓÐAFÉLAG GEGN MAN-
SALI. Nú hafði hún fengið upplýs-
ingar frá sínum félagskonum um
að 40 - 60 þúsund konur yrðu seld-
ar mansali og þvingaðar í vændi
og fluttar til Berlínar til að
þjóna...
„JÁ, en elsku Silla mín,“ sagði ég.
„Þessar stúlkur eiga ekki að þjón-
usta íþróttamennina. Það eru
„fótboltabullurnar“ sem alltaf
fylgja svona keppnum. Og þarna
hafa Berlínarbúar séð sér leið til
að græða á þeim og leið til að róa
þá aðeins niður − því þeir...“ Hér
lét ég staðar numið í þessari und-
arlegu varnarræðu minni fyrir
KSÍ og nístandi þögnin frá sím-
tólinu Sillu megin, sýndi mér
fram á að þetta hefði kannski ekki
verið alveg nógu sniðugt hjá mér.
OG þegar þögnin var orðin óbæri-
leg, stundi ég upp: „Hvað viltu að
knattspyrnusambandið geri? Mót-
mæla þessari óhæfu? Stelpurnar
fóru á þeirra fund og báðu þá að
skrifa undir mótmælaskjal. En
þeir sögðu piltarnir að þeir vildu
ekkert hafa með slíkt að gera, þeir
vildu sýna sínum gestgjöfum
fyllstu kurteisi og ekki þjóna
neinni pólitík.“ „Pólitík!,“ öskraði
Silla og ætlaði að fara að hysja sig
áttund ofar í hneykslun en sá sig
um hönd og sagði bless.
Fögur sál í hraust-
um líkama
��������������
�������
����������
����
����������������
��������������
������