Tíminn - 13.09.1977, Side 1
GISTING
MORGUNVERÐUR
S5ÍMI 2 88 66
-J
f Fyrir
• vörubi!
| Síuiíu
i grmdur
| Siurtu
dælur
Sturtu
dritsköft
— vorum heppnir að komast lífs af
KEJ-Reykjavlk — Um þrjúleytiö
I nótt vorura viö tilneyddir til aö
senda út neyöarkall, þaö var
mikil ising sem þyngdi belginn og
við nálguöumst hafiö iskyggilega,
einnig biluöu senditæki okkar og
allt virtist i óefni komiö, sagöi
Mr. Maxie L. Anderson, annar
loftbelgsmannanna, þegar Tlm-
inn ræddi viö hann viö komuna til
Reykjavikur igær. Hann og féiagi
hans Mr. Ben L. Abruzzo voru
mjög þrekaðir, þegar þeir stigu út
úr þyrlu varnarliösins ki. um hálf
niu I gærkvöldi, enda búnir aö búa
viö stöðugan kuida, svefnieysi og
hrakningar siöasta sólarhringinn.
— Viö getum talizt heppnir að
vera enn á h'fi, það leit ekki vel út
á timabili i nótt með sjóinn og
himinháar öldurnar rétt fyrir
neðan okkur og isingin færði okk-
ur stöðugt nær honum. Við vorum
hættiraðþora að horfa niður fyrir
okkur enda engin von um björg-
un, hefðum við farið alveg niður,
sögðu þeir loftfarar ennfremur i
gærkvöldi. Þó rættist úr og þeim
tókst aftur að hækka sig litihega
og forðast fjögurra metra háa
öldutoppana.
Þá sögðu þeir Anderson og Abr-
uzzo aö allt hafi gengið vel I upp-
hafi, gott veður og þeim miðaöi á-
gætlega. Eins og kunnugt er ætl-
uðu þeir að verða fyrstir manna
til að fljúga loftbelg yfir Atlants-
hafið og lenda honum i Evrópu.
Það var ekki fyrr en i fyrrinótt að
hlutirnir fóru að ganga illa og
suðlægir vindar hröktu þá norður
i haf og eins og fyrr segir var á-
standið orðið slæmt um þrjúleytið
i fyrrinótt. 1 litilli hæð flutti vind-
urinn þá stöðugt nær Islandi i all-
an gærdag unz komið var fyrir
Isafjaröardjúp að augljóst var að
þeir hrektust framhjá landinu.
Þá lentu þeir og var bjargað af
Framhald á bls. 23
áþ-Reykjavik. Fyrir nokkrum ár-
um var gerö könnun á þvi, hvaöa
húsnæöi á Reykjavikursvæöinu
gæti skýlt fóiki, ef til kjarnorku-
styrjaldar kæmi. Þessi könnun
hefur hinsvegar aldrei veriö gerö
opinber. Ein af ástæöunum fyrir
þviaö svo var ekki gert var sú, aö
ástæöulaust þótti aö hræöa fólk,
en einnig þótti ástæöulaust aö
upplýsa erlend riki um varnir
islendinga, ef styrjöid brytist út.
Byrgi þessi eru víösvegar um
borgina, m.a. I opinberum bygg-
ingum, og heyrir þaö til undan-
tekninga ef almenningur hefur
hugmynd um einhver af þessum
byrgjum.
— Þetta er yfirleitt húsnæði
sem uppfyllir þær kröfur að veita
fullkomið skjól gegn geislavirku
úrfalli. Allir almennir kjallarar
með litlum gluggum uppfylla
þessi skilyröi, sagði Hafþör Jóns-
son, fulltrúi hjá Almannavarna-
ráði rikisins. — Ef við tækum upp
svipaðar reglur og gilda hjá sum-
um öðrum þjóðum, og veittum
aöeins 50% skýli ættum við
hugsanlega skýli fyrir alla lands-
menn. Með núverandi reglum eru
það 70 til 80%. Það er ekki okkar
að merkja þessi skýli, sú ákvörð-
un verður að koma annarsstaðar
frá.
Stærstu skýlin er m.a. i
Morgunblaðshúsinu og Glæsibæ,
auk stjórnstöðvarinnar i Lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu.
Ekkert skýlanna aö frátöldu þvi
siðastnefnda hefur verið sérstak-
lega útbúiö til umræddrar notk-
unar, né tiltækt ef hættu bæri að
höndum. Það rúmar 600 til 800
manns. Sé miðað við venjulegar
geislavarnir, má búast við aö
óhætt sé að fara út á fjórða degi: i
versta falli veröúr fólk aö vera
innan dyra i 12 daga. Litinn tima
ætti aö taka aö aka nauðsynlegum
áhöldum i þau skýli sem til eru,
þar eð birgöaskemma er i Mos-
fellsSveit. Leiðir aö þeirri
skemmu eru greiðar, en fyrir
nokkrum árum lá þangað einn
vegur, sem varö ófær i flóöum.
Ólafur W. Slefánsson, fulltrúi i
Dómsmálaráðuneytinu, sagði
Timanum að eflaust hefðu yfir-
völd ekki viljað valda óþarfa
hræðslu meðal fólks meö birtingu
skýrslunnar um byrgi i Reykja-
vik. Þá sagði Olafur, að á sinum
tima hefði verið útbúinn bækling-
ur sem fjallaöi um hvernig fólki
bæri að bregðast við hættunni en
honum hefði ekki verið dreift, af
sömu ástæöu.
Lögrelgustöðin við Hveriisgötu. i kjaiiara byggingarinnar er byrgi sem rúmar 600 til 800 manns.
BHM stefnir fjármálaráðherra:
Krafizt ógilding-
ingar kj aradóms
Kás-Reykjavik. Þingfest hefur
verið i bæjarþingi Reykjavikur
stefna frá BHM á hendur
fjármálaráðherra fyrir hönd
rikissjóðs, þar sem krafizt er
ógildingar á dómi kjaradóms
uppkveðnum 13. mai 1077..
Krafan ersettfram á grundvelli
reglna um ógildingu gerðar-
dóma og byggir á vanhæfi eins
dómenda, Jóns Sigurðssonar
forstjóra Þjóðhagsstofnunar
vegna þátttöku hans i stefnu-
mótun fjármáiastjórnar lands-
ins, afskipta hans af samn-
ingamáium og yfirlýsinga varð-
andi kjaramái. Auk þess byggir
krafan á þvi, að um hafi verið að
ræða gaila á málsmeðferð og
þvi, að niðurstaða meirihiuta
dómsins hafi verið byggð á
röngum lagaforsendum.
Málavextir eru þeir, að 9. sept.
1976krafðist BHM endurskoðunar
aðalkjarasamnings milli BHM og
fjármálaráðherra fyrir timabilið
1. júli 1976 til 30.júni 1978.
Samningar tókust þá ekki milli
aðila og gekk málið til
kjaradóms. BHM ákvað þá að
flytja málið ekki fyrir kjaradómi
og óskaði eftir þvi við þann dóm-
anda, sem til nefndur er af BHM,
að hann tæki ekki þátt i meðferð
málsins.
Siðan kom fram krafa frá
launamálaráði BHM um leiðrétt-
ingu launa i samræmi við ákvæði
bókunar I með dómsátt frá 9. des.
1976. Fjármálaráöherra visaði
þeirri kröfu á bug, en BHM óskaði
eftir þvi að kjaradómur skæri úr
þessum ágreiningi i samræmi við
ákvæði fyrrnefndrar bókunar.
óskað var eftir sér úrskurði i þvi
máli.
Þann 5. jan. 1977 krafðist launa-
málaráð BHM þess að Jón
Sigurðsson, forstóri Þjóöhags-
stofnunar, viki úr kjaradómi
vegna vanhæfis. Kjaradómur
hafnaði þessari kröfu, en úr-
skurðaði jafnframt að ágreining-
ur um dómsátt I. skyldi samein-
aður aðalmalinu.
t janúar 1977 fór launamálaráð
BHM þess á leit við þann dóm-
anda, sem tilnefndur er af BHM,
að hann tæki sæti i dóminum að
nýju. Málið var siðan flutt 12. feb.
og dómur upp kveðinn 13. mai sl.
Meiri hluti kjaradóms hafnaði
kröfum BHM algjörlega.
Þannig endaði sú málsmeðferð,
en nú hefur BHM höfðað mál á
hendur f jármálaráðherra og
krefst ógildingar doms kjara-
dóms.
Við komuna til Reykjavíkur. Anderson fremstur á myndinni en
Abruzzo að kveðja varnarliðsmenn. Timam.: Róbert.
Byrgin rúma 70-80% þjóð-
arinnar — en hvar eru þau?
Ætlum ekki að reyna aftur