Tíminn - 13.09.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.09.1977, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 13. september 1977. Tíminn heimsækir Hvammstanga Miklar byggingarframkvæmdir standa núyfirá Hvammstanga. Hér má sjá nokkur af þeim nýju ibúðarhúsum, sem þar eru I byggingu, enfyrir enda götunnar sést frystihús Kaupféiags Vestur- Húnvetninga. Þaö hús verður tekið I notkun i haust en i framtfðinni er ráðgert að byggja slátur- hús I tengslum við það. Hestamennska er vinsæit sport á Hvammstanga, sem vfða ann- ars staðar. Búiö er að skipuleggja hverfi fyrir hesthús fyrir ofan þorpið og þar eru menn að byggja yfir reiðskjótana. Einnig eiga nokkrir þorpsbúa kindur, Nýlega var 13001estum af oliumöi skipað á land á Hvammstanga. Mölinni var I fyrstu ckiö i haug á hlaði félagsheimilisins, en á næstu dögum verður oliumöiin lögð á götur þorpsins. Veriðer að undirbyggja Hvammstangabrautina undir siitiag, en oliumöl verður lögð á Hvammstangabraut og Höfðabraut á þessu hausti. Svarta byltingin hafin á Hvammstanga MÓ-Sveinsstööum — A Hvammstanga fjölgaði ibúum um 10% á siðasta ári og átti þorpiö þá landsmet i fólksfjölg un. A þessu ári er enn útlit fyrir . mikla fjölgun Ibúa.en 1. des. sl. voru ibúar 465. Miklar framkvæmdir standa yfir I þorpinu. M.a. er unniö að þvi að leggja bundið siitlag á götur og byggja búningskiefa viö væntanlega sundiaug og Iþróttahús. Um 45 hús eru þar I byggingu á ýmsum byggingar- stigum, og áform eru um að byggja heilsugæzlustöö. Þá er þar að færast lif I útgerðarmál eftir margra ára ördeyöu, og þegar við vorum á ferð á Hvammstanga nýlega var verið að búa bátinn Glaö á neta- veiðar. Sá bátur ásamt öðrum hefur stundað færaveiöar á HUnaflóa I sumar og aflaö all- vel. Það var því mikið um að vera þennan dag sem við stönzuðum, ogfáir, sem gáfu sér tima til aö - íbúum f jölgaði um 10% sl. ár f jölmargar framkvæmdir eru þar í gangi. Knýjandi nauösyn að byggja heilsu- gæzlustöð og ýmis áform um að efla atvinnulífið helzta, og fyrst var farið niður á bryggju og litið á hafnar- framkvæmdir. — Þessar framkvæmdir hafa tekizt mjög vel, sagði Þórður, og höfum við nú fengið ágæta höfn sem fullnægir okkar þörfum. Hér hefur á undanförnum árum ver- ið framkvæmt fyrir um 80 millj. kr. Að vísu er höfnin full grunn og höfum við mikinn hug á að fá dýpkunarskipiö Gretti til að koma hér við i sumar og dýpka meðfram gömlu bryggjunni. Fimmtán ár á undan áætlun — Þær eru oft skrýtnar þess- ar áætlanir, sem veriö er að gera, sagði Þórður. T.d. var áætlað árið 1971 að ibúar Hvammstanga yrðu 465 áriö 1992. Þessi áætlun var byggð á þeirri fólksfjölgun, sem hér hafði orðið á næstu árum á und- an. En nú er fbúafjöldinn kominnupp i þessa tölu og enn fjölgarhér fólki.Hingað vill fólk fiytja viðs vegar að og hér er nógatvinna fyrir alla. Húsbygg- ingar eru miklar og mikil verk- efni hjá sveitarfélaginu að gera lóðir byggingarhæfar. Og við Þórður ókum útínýja hverfið út og upp af gamla þorpinu sem i daglegu tali Hvammstangabúa er kallað Breiöholt. Þar er hvert nýja húsið að risa eftirannaðog fjöldi manns var þar við vinnu, ýmist við að byggja hús, leggja rafmagn, eða annað sem ný byggð þarfnast. tþróttavöllur og útivistarsvæði Uppi i Kirkjuhvammi er verið að byggja iþróttavöll. Vallar- gerðinni miðar vel áfram og er nú búið að undirbyggja völlinn undir slitlag. Ekki er þó ljóst hvort það verðurlagt á fyrren á næsta ári. I Kirkjuhvammi er ákjósan- legt útivistarsvæði. Þar héldu Húnvetningar þjóðhátið sina ár- ið 1974 og var þar mikill fólks- fjöldi. Hugmynd Hvamms- tangabúa er að þar verði úti- vistarsvæði i framtiðinni og nú þegar er svæðið allmikið notað fyrir tjaldstæði. Miklir möguleikar i útgerðinni Eftir að hafa ekið um staðinn með sveitarstjóra og tekið myndir var haldið heim til Brynjólfs Sveinbergssonar odd- vita. Brynjólfur stjórnar Mjólkursamlagi Kaupfélags Vestur-HUnvetninga og Kaup- félags Hrútfirðinga, en auk þess er hann mjög virkur i útgerð sveitarstjórinn, og við munum halda áfram á næstu árum, enda má segja að göturnar séu hér oft á tiðum ófærar bílum vegna þess hve holóttar þær eru. Þórður bauðst til að aka með okkur i bæinn og sýna okkur það '■: ':■ ' rabba við blaðamenn. Þó fór ekki svo að einn og einn gæfi sér ekki tima til að spjalla stutta stund, en fyrstan manna rák- umst við á sveitarstjórann,hann Þórö Skúlason, sem stóð úti á plani við félagsheimilið og virti fyrir sér „fjall” eitt mikið, sem verið var að gera á plani félags- heimilisins. Nánar tiltekiö var þetta „fjall” 1300 lestir af olíu- möl, sem kom með skipi til Hvammstanga og var ekiö i haug á hlaði félagsheimilisins. Þessa dagana er verið aö leggja siðustu hönd á undirbyggingu gatnanna og leggja á oliumölina á tvær götur nú i sept. Það er Hvammstangabrautin og Höföabrautin, sem verða lagðar slitlagi i þessum fyrsta áfanga. — Já, svarta byltingin hefur hafiö innreið sina, sagöi Umsvif Vegagerðar rikisins á Hvammstanga hafa aukizt mjög siðustu árin. Þar hefur vegagerðin byggt yfir starfsemi sina og þar eru margir menn I fastri vinnu árið um kring. t sumar vinnur brúavinnuflokkur frá Hvammstanga að þvi að bveeia brú vfir Gljúfurá, sem er á sýslumörkum milli Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu. Yfirsmiður er Guðmundur Gislason. A vetrum vinna menn undir hans stjórn að þvi að byggja vinnuskúra heima á Hvammstanga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.