Tíminn - 13.09.1977, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 13. september 1977.
9
Myndir og texti: Magnús Olafsson
HvammstangabUa og ýmsum
öörum atvinnumálum.
Talið berst i upphafi að út-
gerðinni og bendir Brynjólfur á
þá miklu möguleika, sem þar
liggja til þess að auka atvinnu
og efla Hvammstanga. Fisk-
gegnd er nú vaxandi f Húnaflóa
ogísumarhafa aflaztmilli60 og
70 lestir á handfæri. Tveir bátar
hafa verið gerðir út og fiskurinn
er verkaöur I salt auk þess, sem
nokkur hluti aflans er heilfryst-
ur.
— Það er um 20 manns, sem
hefur haft atvinnu slna af út-
gerðinni og verkun aflans I sum-
ar, sagði Brynjólfur og allt útlit
erfyrirað við þetta starfi fleiri 1
framtiðinni. Strákar héðan eru
nú farnir að fara i stýrimanna-
skólann og áhugi manna á út-
gerð er sifellt að aukast. Rækj-
an hefur verið undirstaöa
útgeröarinnar undanfarin ár og
rækjustofninn i Húnaflóa viröist
mjög sterkur. Hafrannsókna-
stofnunin hefur leyft að veiða
2000 lestir i flóanum i' vetur, sem
er 500 lestum meira, en leyft
hefur verið á haustdögum und-
anfarin ár.
Þá verður aukin áherzla lögð
á smábátaútgerð eftir þvi sem
fiskgegnd i flóanum vex og hér
eru menn farnir að ræöa um
togaraútgerö. Ekkert er þó
ákveðiö i þeim efnum enn, en
vel væri hugsanlegt að sú útgerö
yrði i einhverri samvinnu viö
önnur þorp hér við Húnaflóa.
Aukin umsvif
vegagerðarinnar
— Starfsemi Vegagerðar
rikisins er nú orðin þaö mikil
hér á Hvammstanga að veru-
lega munar um það i atvinnulif-
inu, sagði Brynjólfur. Vega-
gerðin fékk lóð fyrir nokkrum
árum syðst i þorpinu og hefur
byggt þar yfir starfsemi sina.
Þar eru menn viö vinnu árið um
kring og brúavinnuflokkur, sem
gerður er út héðan til brúar-
bygginga á sumrin, vinnur á
vetrum við að byggja vinnu-
skúra, og eru þvi æði margir
menn á Hvammstanga i fastri
vinnu hjá vegagerðinni. Þá búa
hér bilstjórar og ymsir fleiri,
sem aðalatvinnu sina hafa við
vega fram k væmdir.
Nú eru miklar framkvæmdir I
vegagerö i V.-Hún. en þar er
stærst vegagerð yfir Hrúta-
fjarðarháls og brúarbygging á
Gljúfurá á sýslumörkum
Austur- og Vestur-Húnavatns-
sýslu.
Vaxandi ullariðnaður.
— Enn má nefna fjölmörg
fyrirtæki, sem aukið hafa starf-
semislna á undanförnum árum,
sagði Brynjólfur. T.d. hafa um-
svif saumastofunnar Drifu vax-
iö mjög og er nú um 20 manns
þar i vinnu. Þar eru saumaðar
ýmiss konar ullarflikur sem að
mestu eru seldar á Bandarikja-
markað. Verðmæti 1977 50 millj.
kr. Nú er rætt um að byggja yfir
þessa starfsemi, en ekki er þó
neitt ákveðiö i þeim efnum.
Bygging heilsugæzlu-
stöðvar
knýjandi nauðsyn.
— Það er orðin knýjandi
nauðsyn að byggja heilsugæzlu-
stöð hér á Hvammstanga, þvi
sjúkrahúsið er þegar orðið allt
of lítið, sagði Brynjólfur. Viö
fengum fjármagn til byrjunar-
framkvæmdaá fjárlögum þessa
ársogvonumstnú tilað fá veru-
legtframkvæmdafé á næsta ári.
Akveöið hefur verið að byggja
heilsugæzlustöðina eftir sömu
teikningum og heilsugæzlu-
stöðin I Höfn i Hornafirði var
byggö eftir. Þetta sparar bæði
fé og tima og ætti aö gera mun
meira að slikri endurnotkun
teikninga, þegar aðstæður bjóða
upp á slikt.
Auk þess sem aðstaða á aö
vera fyrir heilsugæzlu I þessari
nýju byggingu verður þar jááss
fyrir 10—16 sjúkrarúm.
Ódýrar leiguibúðir.
— Nú er verið að taka I notk-
un sambýlishús, sem í eru fjtír-
Hvammstangabátar við bryggju. Glaður liggur fremst við bryggjuna, en nú eru skipverjar á honum farnir aö reyna neta-
veiöar á ný i Húnaflóa.
Netaveiðar hafnar
á ný í Húnaf lóa
— Rætt við Daníel Pétursson
skipstjóra á Glað
Nýi viðlegukanturinn I Hvammstangahöfn er úr tré. Meö til-
komu hans og annarra framkvæmda við höfnina á liðnum árum
hefur aðstaða þar batnað til muna. Nýja húsið fyrir ofan bryggj-
una er hús rækjuvinnslunnar. Timamyndir MÓ.
Þeir voru glaðir i bragði,
skipverjar á Glað, þegar blaða-
maður leit þar um borð á dögun-
um. Þá voru þeir i óða önn að út-
búa bátinn á netaveiðar og
hugðust nú reyna að leggja net i
Húnaflóa. Þar hefur verið
ördeyða af bolfiski i um 20 ár, en
i fyrra fór aðeins að verða vart
við færafisk i flóanum. Þessar
veiðar hafa enn glæðzt i sumar,
og hafa vonir manna i sambandi
við útgerð þvi aukizt.
Daniel Pétursson skipstjóri á
Glað sagði að það hefði verið
1958, sem menn hefðu siðast
fengið i soðið úr Húnaflóa. Þá
kom svolitil hrota, en siðan hef-
ur ekki orðið vart þar til i fyrra.
Hér áður fyrr kom feikn af
fiski úr flóanum árið um kring.
Sú mikla veiði bjargaði mörgu
heimilinu á mæðiveikiárunum,
sagði Daniel. Þá var aflinn salt-
aður, og t.d. var byggt söltunar-
hús á minu heimili, Bergsstöð-
um á Vatnsnesi. Einnig var
fiskur saltaður á Hvammstanga
og viðar.
Daniel kvaðst ekki geta
fullyrt um ástæður þess að nú
væri að vaxa fiskgengd i flóan-
um á ný. Ýmsir þökkuðu þaö
friðunaraðgerðum, en stað-
reynd væri að það væri alveg
feikna togveiði stunduð enn úti
fyrir Húnaflóa. Og þegar gang-
an var þar á dögunum hefðu
togararnir raðað sér á svæðið og
drepið allt, sem til náðist.
Flottrollið er stórhættulegt,
sagði Daniel. Það er geysistór-
virkt og það er engin leið að
gera sér grein fyrir hvort það er
stór eða smár fiskur, sem i það
kemur. og allt, sem i þvi lendir,
drepst, og engu er hægt að
sleppa.Botntrollið er miklu
hættuminna og þvi væri mun
skárra ef það væri eingöngu
notað.
Glaður er 43 lesta bátur og
áhöfnin er sex menn. Reynt
verður með netin nú á næstunni,
en i haust og vetur verður bít-
urinn á rækjuveiðum. Siðan er
ráðgert að fara á vorvertið, en
stefnt er að þvi að stunda hand-
færaveiðar og netaveiðar, ef vel
gengur á Húnaflóa næsta sum-
ar.
MÓ
ar leiguíbúðir, byggðar á vegum
hreppsins. Þetta eru 80
fermetra ibúðir, og meö fullfrá-
genginni lóð mun hver ibúð
kosta u.þ.b. 7 milljónir kr.
A kveðið hefur verið að halda
áfram að byggja leiguibúðir á
vegum hreppsins, og verður
byrjaö á fimm ibúðum næsta
vor.
Góður hagur
sveitarsjóðs
— Staða sveitarsjóðs er sterk,
þrátt fyrir miklar framkvæmd-
ir, sagði Brynjólfur. Við höfum
lagt áherzlu á að verja miklu fé
til framkvæmda, en reyna aö
halda rekstrinum niöri eins og
kostur er. En viö höfum veriö
heppnir meö allar okkar
framkvæmdir, kostnaöur viö
þær hefur verið viðráðanlegur
og mistök hafa ekki átt sér stað.
T.d. gengu framkvæmdir viö
höfnina mjög vel og kostnaður
var fremur undir áætlunum en
hitt.
Hér eru menn sammála um
að halda áfram uppbygging-
unni, og margt er það, sem
nauðsynlegt er aö gera á næstu
árum. En með samstilltu átaki
heimamanna er miklu hægt að
koma i verk. Að þvi verður unn-
ið og her mun byggð eflast og
blómgast hröðum skrefum á
næstu árum, eigi siðar en hin
síðustu ár.
MÓ
Oliufélögin þrjú, Esso, Shell
og Olis, hafa sameinazt um eina
oliuafgreðslu á Hvammstanga
Þessi afgreiðsla var opnuð I jan-
úar á þessu ári og stendur hún
við Hvammstangabraut, þar
sem ekið er inn i þorpið. Umsjón
með stöðinni hefur Magnús Ein-
arson, og auk oliu og benzins
hefur hann á boöstólum fjöl-
margar bifreiðavörur, öl og sæl-
gæti, að ógleymdum pylsunum,
sem ómissandi eru i öllum slilc-
um söluskálum.
Magnús sagði, að það væri að
verða nokkuð algengt að oliufé-
lögin sameinuðust um sölu á
benzini og oliuá ýmsum stöðum
úti um land, enda væri mikil
hagræðing að þvi. Alls enginn
grundvöllur væri fyrir þvi að
hvert oliufélag setti upp sina
dælu og sinn söluskála, og auk-
inn kostnað hlyti aö leiða af þvi
ef margir oliubilar ^yrftu aö
koma á hvern staö.
Samningar oliufélaganna eru
á þá leið að á Hvammstanga er
það Shell, sem sér um áfyllingu
á benzi'ni og disiloliu og hefur
umsjón með rekstrinum. En
umsjönarmaður er skuldbund-
inn til þess að hafa smurnings-
oliu og aðrar bifreiðavorur frá
öllum oliufélögunum á boöstóln-
um.
Magnús sagðist reyna aö hafa
sem fjölbreyttast úrval til á
hverjum tima og ævinlega
panta alla þá hluti,sem um væri
spurt, ef svo vildi til að þeir
væru ekki til i augnablikinu.
MÓ
Magnús Einarsson annast bensinsölu á Ilvammstanga. Þar hafa
oliufélögin öll sameinazt um eina bensinafgreiðslu.
Energol:
*OS5
•gotiS
I hillum söluskálans á Hvammstanga má sjá saman merki ollu-
félaganna þriggja. Ekki ber á öðru en samvinnan sé i bezta lagi.
Timamyndir Mó.
Samvinna olífélaganna á
Hvammstanga