Tíminn - 13.09.1977, Síða 19
Þriöjudagur 13. september 1977.
19
Þrir leikmenn Q.P.R. sjást hér horfa á Pat Holland skora fyrir West Ham á laugardaginn. „Pop” Robson (8) sést fagna markinu.
Leikmenn Citv i miklum vígamóði!_________________________________
— og Sout-
hampton vann
öruggan sigur
gegn Burniey
■fbróttii
I Boyer
' opnaði
I marka-
. reikning
sinn
en Celtie varð að sætta sig við tap (2:3)
gegn Glasgow Rangers
Jóhannes Eðvaldsson var i
sviðsljósinu á Ibrox Park i
Glasgow, þegar Celtic lék gegn
erkifjendunum Glasgow Rang-
ers. Jóhannes skoraöi 2 mörk og
kom Celtic-liðinu yfir (2:0). En
Adam var ekki lengi i Paradis,
þvi aö ieikmenn Rangers svöruöu
meö þremur mörkum og tryggðu
sér sigur — 3:2.
48.500 áhorfendur sáu Jóhannes
veita Celtic frábæra óskabyrjun,
meö mörkum á 18. og 31. minútu.
Hann skoraði fyrra markið með
góðu skoti, eftir sendingu frá
Tommy Burns, og það siðara með
föstum skalla fram hjá Peter
McCloy, markverði Rangers, eft-
ir að Burns haföi gefið góða
krosssendingu fyrir mark Rang-
ers.
Rangers-tiðið gafst ekki upp —
þaö mætti ákveðið til leiks i siðari
hálfleik, og skoruðu Gordon
Smith (2) og David Johnston
mörk liðsins. Smith skoraöi sig-
urmarkið 7 min. fyrir leikslok, við
geysilegan fögnuð áhorfenda.
Celtic-liðið sat eftir með sárt enn-
ið — það er nú i neðsta sæti, með
aðeins 1 stig eftir fjóra leiki.
—SOS
JÓHANNES.... skoraöi 2 góö mörk, en þau dugöu Celtic ekki til sig-
urs.
Brian Kidd kóngur-
inn á Maine Road
Þaö sést greinilega á leik
Manchester City um þessar
mundir, aö liöiö veröur ekki auö-
velt viöureignar i Englandi i vet-
ur. A Iaugardaginn mættust
Manchesterliöin City og United £
Maine Road, og lauk leiknummeö
öruggum 3-1 sigri City. Brian
Kidd skoraði tvivegis hjá sinum
gömlu félögum, og þriöja mark
City geröi Mike Channon um
miöjan seinni hálfleik. Channon
sýnir þaö nú i hverjum leik, aö
Manchester City geröi góö kaup,
þegar þeir keyptu Channon frá
Southampton fyrir 300.000 pund.
Rétt fyrir Ieikslok skoraöi Jimmy
Nicholi mark meö þrumuskoti af
35-40 metra færi, og minnkaöi
muninn þannig i 1-3 City I vil.
Liverpool átti nú sinn versta
leik um langan tima, en það dugði
á móti Coventry i þetta sinn.
Liverpool slapp með skrekkinn,
þvi Coventry fór illa með tvö opin
færi i fyrri hálfleik. Það var svo á
þriggja minútna kafla um miðjan
seinni hálfleik, að Liverpool gerði
út um leikinn. Fyrst skoraði
David Fairclough eftir mikil mis-
tök i vörn Coventry og siöan skor-
aði Kenny Dalglish eftir gott
einstaklingsframtak. Eftir þetta
fékk Coventry enn góð tækifæri,
en leikmenn liðsins nýttu þau
ekki.
Nottingham-liðið sýndi enn
hvað i þvi býr, er þaö vann
Wolves á Molineux-leikvanginum
Fátt getur stöðvað Manchester
City i baráttunni um
Englandsmeistaratitilinn
Brian Kidd .... skoraöi 2 mörk
fyrir City.
i Wolverhampton. I hélfleik var
staðan 1-0 fyrir Nottingham, eftir
mark frá Peter Withe, og ekki var
liðið langt á seinni hálfleik, er for-
ysta Nottingham var orðin 3-0 —
mörk frá Bowyer og Woodcock.
LitlumunaðiaðNottingham henti
þessu forskoti frá sér, þvi að
Wolves minnkuðu muninn i 2-3 á
fimm minútna kafla. Fyrst skor-
aði Norman Bell, og siðan Steve
Daley úr vitaspyrnu. Þrátt fyrir
mikinn þrýsting Wolves á loka-
minútunum, tókst þeim ekki aö
finna leiðina i mark Nottingham i
þriðja skiptið, þannig að stigin
tvö fóru til Nottingham.
Aston Villa á erfitt uppdráttar
þessa dagana. Liðið komst ekkert
áleiðis i leiknum á móti Arsenal.
Þvert á móti voru það leikmenn
Arsenal, sem hvað eftir annað
fóru illa með góð tækifæri. En
þegar dómarinn ætlaði að fara að
blása til leiksloka, skoraði Aston
Villa úr einni af fáum sóknarlot-
um sinum i seinni hálfleik. Var
þar að verki Alex Cropley, sem
skoraöi eftir að hafa leikið á
nokkra varnarmenn Arsenal.
Aston villa vann þannig sinn
fyrsta sigur á heimavelli á þessu
keppnistimabili.
Alf Ramseyer nú við . stjórnvöl-
inn hjá Birmingham, eftir að
Willie Bell var rekinn frá liðinu i
vikunni. Birmingham lék sinn
bezta leik á keppnistimabilinu og
Trevor Francis var i góðu formi.
Hann skoraði mark Birmingham
i fyrri hálfleik, en snemma I
seinni hálfleik jafnaði Billy
Ashcroft metin fyrir „Boro”.
Middlesborough keypti Ashcroft
þennan frá Wrexham fyrir
skömmu fyrir 120.000 pund. En
Trevor Francis hafði ekki sagt
sitt siðasta orð, og tryggði hann
Birmingham sigur með góðu
marki seint i hálfleiknum.
Það kemur á óvart, hve lið
Newcastle byrjar illa i ár. Eftir
sigur gegn Leeds i fyrsta leikn-
um, hefur Newcastle nú tapað
fimm leikjum i röð, nú siðast á
heimavelli gegn WBA. Það var
nýja stjarnan hjá WBA, Regis,
Framhald á bls. 23
I annarri deildinni heldur
Bolton enn forystunni eftir
knappan 1-0 sigur gegn Oldham.
Whatmore skoraöi eina mark
leiksins um miöjan fyrri hálf-
leik. Southampton vann örugg-
an sigur gegn Burnlev, og skor-
aöi Phil Boyer tvö af mörkum
Southampton, fyrstu mörkin
sem hann skorar fyrir liöiö eftir
aö hann var keyptur frá Nor-
wich.
Tottenham vann nauman sig-
ur á Fulham, 1-0 , og var það
Chris Jones sem skoraöi sigur-
markið, er nokkrar minútur
voru til leiksloka. Crystal Pal-
ace hafði nokkra yfirburði i
viðureigninni við Sunderland,
en varð samt að gera sér jafn-
tefli að góðu. Rowell náöi for-
ystunni fyrir Sunderland, en
mörk frá Bourne og Swindle-
hurst komu Palace i 2-1. Rétt
fyrir leik hlé fékk Palace
dæmda vitaspyrnu, en Harkouk
lét verja frá sér. Þetta notfærði
Sunderland sér, og fyrrum Ar-
senal-leikmaðurinn Rostron
jafnaði metin um miðjan seinni
hálfleik. Stoke átti góðan leik á
móti Sheffield United, og mörk-
in komu frá Howard Kendall,
Gregory (2) og Alec Lindsay.
Ó.O.
Jóhannes á skot-
skónum á Ibrox