Tíminn - 13.09.1977, Síða 20
20
PÉTUR PÉTURSSON... sést hér me& PUMA-GULUSKÓINN,
sem hann fékk frá SPORT-blaðinu.
Pétur fékk
GuUskóinn
Ingi Björn var kosinn leikmaður
bikarúrslitaleiksins 1977 og
Valsmenn fengu MITRE-knetti
að gjöf
Pétur Pétursson marka-
kóngurinn ungi frá Akranesi
sem skoraOi 16 mörk í 1.
deildarkeppninil knattspyrnu,
fékk afhentan PUMA-GULL-
SKÓINN sem SPORT-blaöiö
gefur á Laugardalsveliinum á
sunnudaginn. Pétur fékk einn-
ig PUMA tösku, knattspyrnu-
skó.ogbúning afPUMAgerö.
Þá var Ingi Björn Alberts-
son kjörinn maöur bikarúr-
slitaleiksins og fékk hann
fagra styttu sem Sportvöru-
verslun Ingólfs óskarssonar
og Hoffell s.f. (Magnús V. Pét-
ursson dómari) gáfu. baö var
Albert Guðmundsson, fyrrum
formaður KSl sem afhenti
syni sinum styttuna aö leik
ioknum.
SPORT-blaöiö afhenti einn-
ig Pétri Sveinbjarnarsyni, for-
manni knattspyrnudeildar
Vals, tvo MITRE-knetti aö
gjöf, en Sportvöruverzlun Ing-
ólfs Öskarssonar og Hoffell sf.
gáfu knettina.
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapporstíg 44 - Sími 1-17-83
Þriöjudagur 13. september 1977.
Valsmenn feng
Þeir skoruðu mark
gegn Fram strax í
byrjun, og bikarinn
varð þeirra
Valsmenn fengu óskabyrjun þegar þeir tryggðu sér
bikarinn á Laugardalsvellinum á sunnudaginn, með þvi
að leggja Fram að velli (2:1) í slökum leik. Atli Eðvalds-
son opnaði leikinn eftir aðeins 2 mín. með góðu marki.
Ingi Björn Albertssom átti siðan góða sendingu fyrir
mark Framara — knötturinn barst út til Atla, sem fékk
góðan tíma til að leggja knöttinn fyrir sig og skot hans
hafnaði út við stöng, óverjandi fyrir Árna Stefánsson
markvörð Fram.
Þaö er óhætt aö segja, aö þetta
mark I upphafi hafi ráöiö úrslit-
um leiksins. Ingi Björn Alberts-
son bætti viö ööru marki fyrir
Valsmenn I byrjun slöari hálf-
leiksins. Hann skoraöi örugglega
af stuttu færi, eftir aö Árni Stef-
ánsson haföi hálfvarið skot frá
Guömundu Þorbjörnssyni. Ingi
Björn geröi þarna endanlega út
um leikinn — skoraði sitt sjötta
bikarmark. Ingi Björn skoraöi
mark eöa mörk I öllum umferöum
bikarkeppninnar.
Framarar sóttu nokkuö eftir
markiö, og björguöu Valsmenn
skalla frá Þórarni Jóhannessyni á
linu, en réöu hinsvegar ekki viö
skot frá Sigurbergi Sigsteinssyni,
af stuttu færi sem hafnaöi I neti
þeirra.
Undir lok leiksins náöu Vals-
menn nokkrum hættulegum sókn-
arlotum, en frábær markvarzla
Árna Stefánssonar kom I veg fyr-
ir aö þeim tækist aö skora fleiri
mörk. Arni varöi nokkrum sinn-
um snilldarlega.
Eins og fyrr segir, var bikarút-
slitaleikurinn fremur léleg
skemmtun fyrir þá sex þús. á-
horfendur sem sáu leikinn.
Framarar voru mun meira meö
knöttinn, en sóknarlotur Vals-
manna voru hættulegri — þaö réöi
úrslitum. Magnús Bergs átti góö-
an leik I vörn Valsliösins, en Ingi
Björn Albertsson var hinn hættu-
legi sóknarleikmaöur Vals — þaö
skapaöist ávallt hætta upp viö
mark Fram, þegar hann var meö
knöttinn. Ingi Björn átti heið-
urinn aö fyrsta marki Vals, og
siðan skoraöi hann sjálfur annað
markiö, sem geröi endanlega út
um leikinn. Árni Stefánsson var
mjög góöur I marki Framliösins,
og Ásgeir Eliasson átti ágætan
leik á miöjunni. Þá vakti athygli
ungur nýliöi, Þórarinn Jóhannes-
son, sem lék sem miövörður.
Hann komst mjög vel frá sínum
fyrsta stórleik.
Tímamyndir:
GUNNAR
SIGURGLAÐUR... Valsmennirnir Ingi Björn, Siguröur Dagsson og
Höröur Hilmarsson bera dr. Youri Ilitchev, þjálfara sinn, á gullstól.
Eyjamenn
keppa í
UEFA-bikar-
keppninni
Með sigrinum yfir F r.am f úr-
slitaleik bikarkeppninnar,
tryggöu Valsmenn sér rétt til
að leika i Evrópukeppni bikar-
hafa. Skagamenn leika I
Evrópukeppni meistaraliöa
næsta sumar, og Eyjamenn,
sem urðu þriöju i 1. deildar-
keppninni — á eftir Akranesi
og Val — leika I UEFA-bikar-
keppninni.
Asgeir og
félagar
— unnu stór
sigur í Belgíu
Asgeir Sigurvinsson og félag-
ar hans hjá Standard Liege
unnu stórsigur (4:0) gegn
Charleroi um helgina i 1.
deildarkeppninni f Belgiu. As-
geir átti mjög góöan leik, þótt
ekki skoraði hann mörk.
Standard Liege er nú i þriöja
sæti i Belgiu, meö 7 stig, en
efstu liöin, Anderlecht og
Winterslag, eru meö 8 stig.
Standard Liege-Iiöinu er spáö
miklum frama I belgisku 1.
deildarkeppninni I vetur — I
mörg ár hefur þaö ekki veriö
jafn sterkt og um þessar
mundir.
b
Þriöjudagur 13. september 1977
21
. óskabyr j un
..Féllum
áokkar
BIKARINN A FULLRI FERÐ ... Valsmenn hlaupa sigurhring á Laugardalsvellinum, eftir sigurinn
gegn Fram. Bergsveinn Alfonsson og Siguröur Dagsson, aldursforsetar Valsliösins, halda bikarnum á
millisin. Fyrir aftan þá eru þeir Atli, Höröur og Ingi Björn.
mistökum”
— sagði Asgeir Elíasson,
fyrirliði Fram-lidsins
— Ég varð fyrir mikl-
um vonbrigðum með
leik okkar. Við lékum
langt undir getu, sagði
Ásgeir Eliasson, fyrir-
liði Framliðsins eftir
bikarúrslitaleikinn. —
Mér fannst leikurinn lé-
legur og illa leikinn af
beggja hálfu.
— Aðalástæðan fyrir léleg-
um leik okkar var sú að sam-
spilið rofnaði. Sóknarleik-
mennirnir komu ekki nóg til
baka til að hjálpa til á miðj-
unni — þeir héngu frammi i
staðinn fyrir aö koma aftur og
taka þátt i uppbyggingu sókn-
arleiksins. Við það náðum við
ekki að vinna saman og rjúfa
varnarvegg Vals, sagöi Asgeir.
Akranes
og Fram í
Noregi
ISLANDSMEISTARAR Akra-
ness og Framarar héldu til
Noregs i gærmorgun, þar sem
þeir keppa í Evrópukeppninni
i knattspyrnu annað kvöld.
Skagamenn leika gegn Brann I
Bergen, en Framarar leika
gegn Start i Kristiansand.
Asgeir Eliasson.
. Asgeir sagöi, að vegna
deyfðarinnar hjá sóknarleik-
mönnunum, hefðu miðvallar-
spilararnir fengið litla mögu-
leika til að athafna sig og
Rúnar Gislason hefði ekki
fengið tækifæri til að brjótast i
gegn um varnarvegg Vals og
gera usla i vörninni eins og i
3:3 leiknum i tslandsmótinu.
— Við féllum á okkar eigin
mistökum sagði Asgeir.
— SOS
Óskabyrj unin hafði
mikið að segja”
Valsliðsins
— Óskabyrjunin haföi mik-
ið að segja. Eftir að Atli
hafði skorað, vorum við á-
kveðnir í að halda þessu ó-
vænta forskoti. Við dróg-
um okkur aðeins aftur, en
lögðumst þó ekki i vörn,
sagði Ingi Sjörn Albertsson,
fyrirliði Valsliðsins, eftir
bikarúrslitaleikinn.
Ingi Björn sagöi, að þeir hefðu
dregið liöið aftur þegar staðan
var orðin 2:0, þannig að Atli Eö-
valdsson heföi farið aftar. —
Þessi sigur var mikil uppreisn
æru fyrir okkur. Það hefði verið
súrt að standa uppi allslausir,
sagði IngiBjörn.
— Leikurinn var ekki vel leik-
inn, og ég tel aö mikil tauga-
spenna leikmanna hafi haft sitt að
segja, sagði Ingi Björn. —
Evrópuleikurinn gegn Glentorian
er nú næsta verkefni Valsmanna.
Vonandi höldum við áfram á sig-
urbrautinni og leggjum N-lrana
aö velli. Við vitum að róðurinn
gegn Glentorian verður erfiður —■
en viö erum ákveðnir að gera
stóra hluti i Evrópukeppninni,
sagöi Ingi Björn.
,,Mörk og aftur mörk"
— Mörk og aftur mörk, verður
dagskipunin hjá okkur gegn
Glentorian. Við munum leika
sóknarleik og reyna að skora sem
flest mörk, þar sem við þurfum
að leika siðari leikinn á útivelli,
sagði Ingi Björn. — SOS.
ldlllll!KÚ
æfingaskór
10 gerðir
PÓSTSENDUM
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 • Sími 1-17-83
— sagði Ingi Björn Albertsson, fyrirliði
INGI BJÖRN ALBERTSSON... fyrirliði Valsliðsins, sést hér meö bik-
arinn og verðlaunastyttuna, sem hann fékk frá SPORT-blaðinu.