Fréttablaðið - 26.05.2006, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 26.05.2006, Blaðsíða 94
 26. maí 2006 FÖSTUDAGUR62 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Nýr humar, grillpinnar sólþurrkaður saltfiskur ÚRVAL FISKRÉTTA Á GRILLIÐ. opið alla laugardaga 11-14 Nú styttist óðfluga í afmælistón- leika rokkkóngsins Bubba Mort- hens sem verða haldnir í Laugardalshöll þann 6. júní næstkomandi. Bubbi var nýkominn heim úr fríi í útlöndum þegar Fréttablaðið hafði samband við hann út af tón- leikunum. Æfingar eru að fara í gang og ekki seinna vænna enda mun Bubbi koma fram með flest- um þeim hljómsveitum sem hann hefur spilað með á farsælum ferli sínum, þar á meðal Egó, Utan- garðsmönnum og GCD. „Þetta á ekki að vera flókið ef allir eru heilir heilsu. Ég held að þetta bara steinliggi,“ segir Bubbi. „Þetta er eins og hvert annað gigg nema að það er ekki oft sem maður selur upp Höllina á þremur dögum.“ Bubbi segist engan veginn hafa búist við því að uppselt yrði á svona skömmum tíma. „Ég bjóst við að við gætum selt upp en hélt að það tæki svona mánuð. Nefndu mér annan innlendan listamann sem myndi gera þetta. Maður getur ekki annað en verið þakk- látur,“ segir hann. Að sögn Bubba verða þrjú svið notuð á sama tíma í Höllinni þannig að hann mun að öllum lík- indum flakka á milli sviða. - fb Æfingar að hefjast hjá Bubba BUBBI MORTHENS Bubbi heldur afmælis- tónleika í Laugardalshöll þann 6. júní fyrir fullu húsi áhorfenda. FRÉTTIR AF FÓLKI Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem túlkar sjónvarpsdívuna Silvíu Nótt, kom ekki með Eurovision-hópnum heim til Íslands heldur dvelst hún um þessar mundir á grískri eyju í smá fríi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er Ágústa væntanleg heim til landsins eftir helgi en Silvía Nótt verður hins vegar víðs fjarri. Keppnin tók mikla orku frá leikkonunni og nýtur hún nú þess að vera laus undan hlutverkinu enda er langt síðan einn keppandi naut jafn mikillar athygli og Silvía. Getgátur hafa verið uppi um að Eurovision-keppnin hafi verið svanasöngur dívunnar og að Silvía verði jafnvel skilin algjörlega eftir í Grikklandi en heimildir blaðs- ins herma að enn sé mikill kraftur í persónunni og hún ætli sér að koma tvíefld til baka. LÁRÉTT 2 frumefni 6 persónufornafn 8 kvikmynda- hús 9 bar að garði 11 tölvuverslun 12 húða með krómi 14 sveigur 16 þreyta 17 stormur 18 spíra 20 lík 21 rétt. LÓÐRÉTT 1 eignaðist 3 í röð 4 land 5 form 7 svepp- ur 10 eldsneyti 13 sjór 15 tafl 16 loka 19 bardagi. LAUSN LÁRÉTT: 2 málm, 6 ég, 8 bíó, 9 kom, 11 bt, 12 króma, 14 krans, 16 lú, 17 rok, 18 ála, 20 ná, 21 satt. LÓÐRÉTT: 1 fékk, 3 áb, 4 líbanon, 5 mót, 7 gorkúla, 10 mór, 13 mar, 15 skák, 16 lás, 19 ár. Frambjóðendur í borgarstjórnarkosn-ingunum í Reykjavík taka upp á ýmsu til að vekja athygli á sér og baráttumál- um sínum. Oddný Sturludóttir, sem skipar 5. sætið á lista Samfylkingarinnar, ákvað þannig að rifja upp gamla takta á tónlistarsviðinu í gær. Auglýst var að hún myndi leika með gömlu félögum sínum í hljómsveitinni Ensími á tónleikum á Ingólfstorgi. Oddný lék sem kunnugt er á hljómborð með sveitinni fyrstu starfsár hennar og samkvæmt auglýsingu átti Ensími að leika þessi gömlu lög á tónleikun- um. Aðdáendur sveitarinnar hafa eflaust kunnað vel að meta þetta framtak Odd- nýjar en víst má telja að hún hefði ekki látið slag standa nema kosningar stæðu fyrir dyrum. Minnkandi eftirspurn á fasteigna-markaði virðist ekki draga kjarkinn úr fasteignasölum landsins og þeim hefur fjölgað ef eitthvað er undanfarið. Nýlega ákváðu tveir valinkunnir menn að reyna fyrir sér í stéttinni. Marel Baldvinsson fót- boltamaður sneri heim úr atvinnumennsku og gerð- ist fasteignasali sam- hliða því að spila fyrir Breiðablik. Í vikunni hóf svo Gunnar Óla- son, gítarleikari og söngvari Skítamórals, störf á fasteignasölu og bætast þeir tveir í hóp fjölmargra fast- eignasala sem áður hafa getið sér gott orð á öðrum vettvangi. - hdm/- fgg HRÓSIÐ ...fær Ian Anderson sem hélt frábæra tónleika í Laugardals- höll og sýndi þar og sannaði að aldur er afstæður. „Þetta kom bara á lokasprettinum. Síðasta spurningin sem ég svaraði var um hvað páfagaukurinn í Töfraflautunni í Mozart héti,“ segir Jónas Örn Helgason, 21 árs sigurvegari í spurningaþættinum Meistaranum á Stöð 2. Jónas atti kappi við Ingu Þóru Ingvarsdóttur í úrslitaþættinum í gærkvöldi. Lokastaðan var 13-12. Aðspurður segist Jónas hafa vitað svarið við lokaspurningunni vegna þess að hann hafi einhvern tímann hlustað á Töfraflautuna í skóla. Þeir sem fylgst hafa með Meist- aranum hafa orðið þess varir að Jónas Örn er afskaplega róleg týpa og lítið virðist hagga honum. Hann ítrekar líka að það eigi ekki margt eftir að breytast hjá honum þó hann sé nú fimm milljónum ríkari. „Ég þarf að vísu að efna nokkur loforð sem ég gaf fólki í upphafi. Líkurnar voru náttúrlega bara einn á móti 22 og maður þorði alveg að lofa fólki einhverju skyldi ég vinna. Ætli maður bjóði ekki bara öllum upp á bjór,“ segir Jónas. Jónas sagði í Fréttablaðinu á miðvikudag að hann ætlaði sér að nota peningana sem innborgun þegar hann keypti sér íbúð. „Já, ætli maður leggi ekki peningana inn eftir skattinn sem tekur nú sitt. Og svo eftir örfá ár, ekki það að maður sé að flýta sér að heim- an, nota ég peningana sem inn- borgun á íbúð.“ Þegar Jónas er spurður um hvort samskiptin við kvenþjóðina eigi ekki eftir að breytast eftir sigurinn verður hann hálf vand- ræðalegur. „Ég veit það nú ekki, það er alla vega engin í spilun- um,“ segir hann. Jónas hefur lokið einu ári í verkfræði við Háskóla Íslands, með misjöfnum árangri að eigin sögn. „Það var ýmislegt annað annríki sem tafði mig frá náminu, maður þurfti að horfa á sjónvarpið, lesa bækur og fara út á lífið,“ segir hann léttur í bragði. Jónas hefur ekki enn fengið sumarvinnu þó hann hafi sótt um á nokkrum stöðum. Búast má við að einhverjir atvinnu- rekendur hafi samband við hann í kjölfar sigursins í Meistaranum, en Jónas lætur sig það litlu varða. „Ætli maður endi ekki bara í ein- hverri sveittri verkamannavinnu, það verður fínt að vinna úti í sumar.“ hdm@frettabladid.is JÓNAS ÖRN HELGASON: SIGURVEGARI Í MEISTARANUM Ætlar að bjóða vinum sínum upp á bjór JÓNAS ÖRN HELGASON Ætlar að leggja fimm milljónirnar sem hann fékk fyrir sigur í Meist- aranum inn á bók. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA SIGURSTUNDIN Jónas Örn tekur við sigurlaununum úr hendi Loga Bergmanns Eiðssonar, umsjónarmanns þáttarins. LJÓSMYND/ÁRNI TORFASON Við vorum að velta því fyrir okkur vinkonurnar um daginn hvernig stæði á því að ein okkar væri á lausu. Málið er nefnilega að hún er einfald- lega stórglæsileg, svakalega klár og hrikalega skemmtileg. Hún hefur allan pakkann og miklu meira til. Þá litum við yfir farinn veg hennar og þar lá svarið. Við gerðum okkur grein fyrir því að mennirnir sem hún hafði verið með voru allir hálfgerðir aular. Það er einhvern veginn þannig að sumar konur falla alltaf fyrir sömu týpunum og iðulega enda sögurnar á sama veg. Það fer allt fjandans til! Það er samt svo skrítið að maður skuli ekki læra af mistökunum og reyna að finna sér nýjan rétt á matseðlinum þegar hinn hefur ekki reynst vel. Þrátt fyrir að vera brenndur er leitað á sömu miðin, aftur og aftur. Ég á einmitt fleiri svona vinkonur sem falla alltaf fyrir sama gæjanum. Einni þeirra tekst að soga til sín alkóhólista í hvert sinn sem henni sýnist svo að fá sér eitt stykki kærasta. Hins vegar endar hún yfirleitt sem einhverskonar félagsráðgjafi og sálfræðingur. Ég held hún hefði frekar átt að skella sér í sálfræði heldur en viðskiptafræði því hún hefur greinilega svo gaman að viðfangsefnum sínum að hún eyðir ómældum tíma í þau og það algerlega kaup- laust. Og ég held líka að það væri mun frekar þess virði að skella henni í meðferð við vand- anum til tilbreytingar frekar en þeim, þar sem hún gæti þá mögulega átt sér viðreisnar von. Önnur segist bara draga til sín menn sem líti vel út á yfirborðinu en eigi það flestir sameiginlegt að eiga við einhvers konar geðræn vandamál að stríða. Allir haldi að hún eigi svo fína kærasta en svo sé það víst þannig að þegar enginn sér til þá smelli eitthvað í hausnum á þeim og þeir breytist í vænisjúklinga og klikkhausa. Það getur verið erfitt að halda andlitinu þegar vinkona mætir með bros út að eyrum og útúr hamingjusöm, með nýja kærastann sem hún ætlar klárlega að giftast, og maður áttar sig á því að þetta er ný útgáfa af gamla kærastanum. Hræðslan um að sagan og leiðindin endurtaki sig fellir skugga á hamingju vinkonunnar. Maður verður þó að sýna smá viðleitni og vera bjart- sýnn og trúa því sem hún trúir sjálf. Einhvern tímann hlýtur þessari bölvun að létta. Spurningin er bara hvenær og hversu mikið vatn þarf að renna til sjávar til þess að áin tæmist og leiti á önnur mið fyrir vökvun? Góður og gegn maður ætti að sjá það snemma á ferlinu að vænlegra væri að breyta til og prófa eitthvað nýtt. Eitthvað segir mér að þá væri meiri sjéns á að fá loksins bingó! REYKJAVÍKURNÆTUR HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST NAUÐSYNLEGT AÐ BREYTA TIL Sökkerasegull! 1 Ataturk-flugstöðin 2 Fjölnir 3 Dirk Kuyt VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.