Fréttablaðið - 26.05.2006, Blaðsíða 22
26. maí 2006 FÖSTUDAGUR22
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Alþingismenn hafa stofnað
með sér skákfélagið Ref-
skák. Halldór Blöndal er
forseti félagsins og ákveður
það sem máli skiptir. Vara-
foreti ákveður annað.
„Þetta hefur lengi staðið til og nú
létum við loksins verða af þessu,“
segir Halldór Blöndal um hið
nýstofnaða skákfélag alþingis-
manna. Stofnendur eru á þriðja
tuginn og geta bæði sitjandi og
fyrrverandi alþingismenn gengið
í félagið. Eitt skilyrði er fyrir
aðild, að kunna mannganginn.
Halldór Blöndal var kjörinn
fyrsti forseti Refskákar, Einar
Már Sigurðarson varaforseti og
Guðlaugur Þór Þórðarson með-
stjórnandi. Var kosning þeirra,
sem og lög félagsins, samþykkt
með lófaklappi á sovéska vísu á
stofnfundinum.
Alþingi hefur ávallt státað af
sterkum skákmönnum og hefur
tafláhugi alþingismanna verið á
margra vitorði og hafa margsinnis
birst myndir af þingmönnum í
þungum þönkum yfir stöðunni á
reitunum 64. Halldór segir að
raunar virðist skákáhuginn í þing-
inu með minna móti núna og verði
taflmennskunni því komið í fast
form með haustinu. Um leið og
það gefi mönnum tilefni til að tefla
fái fyrrverandi þingmenn tæki-
færi til að hittast.
Eins og gengur eru þingmenn-
irnir misgóðir við skákborðið en
Halldór forseti hyggur að Gunnar
I. Birgisson sé þeirra sterkastur.
Af öðrum góðum og/eða áhuga-
sömum nefnir hann Geir Haarde,
Guðna Ágústsson, Össur Skarp-
héðinsson, Lúðvík Bergvinsson og
svo vitaskuld meðstjórnendur
sína, Einar Má og Guðlaug Þór. Af
liðtækum fyrrverandi þingmönn-
um nefnir hann Guðmund G. Þór-
arinsson, Guðjón Guðmundsson
og Pálma Jónsson.
Halldór forseti segir oft tekist
á af hörku við skákborðin í þing-
inu en þar eru jafnan tefldar hrað-
skákir og hamagangurinn eftir
því. bjorn@frettabladid.is
2 sæti
EIN BRÖNDÓTT Forseti og meðstjórnandi Refskákar taka eina stutta í húsakynnum Alþingis.
Refskák á þingi að und-
irlagi Halldórs Blöndal
FORSETI REFSKÁKAR Halldór Blöndal var kjörinn forseti skákfélags þingmanna með sovéskum hætti á nýafstöðnum stofnfundi. Lög félags-
ins kveða skýrt á um það að forseti geti ráðið því sem hann vill ráða. Þingmenn eru almennt sammála um að Halldór sé vel að embættinu
kominn og treysta honum fyllilega til að fara vel með vald sitt.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÚR LÖGUM REFSKÁKAR
* Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi sem
haldinn skal árlega eða sjaldnar ef forseti er
vant við látinn.
* Í stjórn félagsins skulu sitja þrír menn, for-
seti, varaforseti og meðstjórnandi sem sinnir
því sem hinir gera ekki.
* Forseti, eða sá sem hann tilnefnir hverju
sinni, stýrir öllum samkomum félagsins og
ákveður þar allt sem máli skiptir.
* Varaforseti ákveður allt sem ekki skiptir
máli.
* Lög þessi hafa fyrir löngu öðlast gildi.
Í ljósi veðráttunnar sem ríkt hefur á landinu síðustu daga hvetur Fugla-
vernd fólk til að gefa fuglum að éta. Hretið hefur komið illa niður á far-
fuglunum sem voru í varphugleiðingum og sumir fuglar hafa í raun hafið
varp.
Spörfuglarnir líða skort þar sem erfitt er að finna fæðu í snjónum og skor-
dýr og ánamaðkar eru torfundin í kuldatíð með snjóalögum.
Þúfutittlingar, steindeplar, maríuerlur, skógarþrestir, hrossagaukar og spóar
svelta vegna fæðuskorts, segir í tilkynningu frá Fuglavernd.
Fuglunum má hjálpa með fóðurgjöfum, gott er að gefa fuglunum brauð-
mola og haframjöl vætt með matarolíu. Einnig er stungið upp á smátt
skorinni fitu og tólg og jafnvel má gefa þeim hakkað kjöt. Við sveitabæi
finna fuglarnir mikla fæðu í moði sem tekið hefur úr útihúsum.
Með því að gefa fuglunum björgum við mörgum þeirra frá hungurdauða
þar til tíð batnar, segir í tilkynningunni.
Munum eftir fuglunum
SKJALDBÖKURNAR SKRÍÐA AF STAÐ Þær komast sinn veg þó hægt fari blessaðar skjald-
bökurnar. Á dögunum var haldin hátíð í Bandaríkjunum til að vekja athygli á skjaldbökum í
útrýmingarhættu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Gaman er greinilega
afstætt hugtak
„Það er gaman að vera ung-
ur framsóknarmaður í dag.“
JAKOB HRAFNSSON, FORMAÐUR
SAMBANDS UNGRA FRAMSÓKNAR-
MANNA, Í GREIN Í FRÉTTABLAÐINU.
Hverjum kemur þetta
við?
„Ég treysti Degi B. Eggerts-
syni best til að gegna emb-
ætti borgarstjóra í Reykjavík
nú að loknum kosningum.“
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON, FORSTJÓRI
SKÝRR, Í YFIRLÝSINGU Í MORGUN-
BLAÐINU.
„Það er allt hið besta að frétta,“ segir Hjörtur Magni
Jóhannsson, prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík, sem er
nýkominn frá því að ferma þegar blaðamaður slær á
þráðinn.
„Á laugardaginn er ég að fara að halda útskriftar-
veislu fyrir son minn sem var að útskrifast sem stúdent
úr Verslunarskóla Íslands.“ Hjörtur Magni segist hafa
þurft að ýta frá nokkuð mörgum brúðkaupum til að
geta haldið útskriftarveisluna enda annasamur tími að
hefjast í hjónavígslum.
„Ég er bókaður meira og minna allar helgar fram
að haustinu 2007 og sumar helgarnar eru allt að sjö
athafnir. Þannig að maður er stundum á hlaupum.“
Hjörtur Magni hefur tekið eina helgi frá í sumar til
að fara til Frakklands þar sem hann mun gefa saman
par sem tengist söfnuðinum. „Ég var beðinn um að
gifta fólk í einu fallegasta vínræktarhéraði Frakklands.
Mér og konu minni var boðið þangað yfir þessa helgi
og þetta verður mjög ánægjulegt.“
Hjörtur Magni segir allan gang á því hvar fólk vill
láta gifta sig. „Það er bæði í Fríkirkjunni í Reykjavík
og öðrum kirkjum. Einnig kemur það fyrir að fólk vill
láta gifta sig heima hjá sér eða jafnvel úti í náttúrunni
í góðu veðri sem mér finnst mjög við hæfi enda
er náttúran helg. En mestmegnis er þetta inni í
kirkjum og þá helst Fríkirkjunni enda er hún sú
fallegasta.“ Hjörtur segir einnig misjafnt hve mik-
inn fyrirvara fólk hefur á giftingum. „Til dæmis
gaf ég fólk saman um seinustu helgi og það
var tveggja daga fyrirvari á vígslunni. En þetta
var samt mjög dýrmæt og helg stund.“
Í kirkjustarfinu gengur allt með miklum
blóma að sögn Hjartar Magna. „Það hefur
fjölgað um á þriðja hundrað manns í söfnuði
Fríkirkjunnar í Reykjavík það sem af er þessu ári.
Og í fyrra var fjölgunin um fjögur hundruð manns.“
Í dag eru yfir sjö þúsund manns í söfnuði Fríkirkj-
unnar í Reykjavík.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HJÖRTUR MAGNI JÓHANNSSON PRESTUR FRÍKIRKJUNNAR Í REYKJAVÍK
Á hlaupum í hjónavígslum