Fréttablaðið - 26.05.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 26.05.2006, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 26. maí 2006 31 SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 3 28 64 05 /2 00 6 Jamis Dakar Stell: 7005 álstell, m/ 2 ára ábyrgð. Bremsur: TekTro diskabremsur m/vír. Gírskiptir: Shimano Deore, 24 gíra. Framdempari: Manitou Splice Comp, 100 mm slaglengd. Stillanlegt bakslag og stífleiki. Afturdempari: Fox Vanilla gormadempari m/ 90 mm slaglengd. Helstu kostir: Það er unun að hjóla á þessu hjóli í hvaða landslagi sem er. Dempararnir eru stillanlegir eftir aðstæðum og lætur hjólið einstaklega vel að stjórn, enda hlaut það verðlaun í flokki fjallhjóla í Ameríku nýverið sem fjallahjól ársins undir 1000 dollurum hjá Bicycling Magazine. Verð: 89.990 kr. Jamis Cross Country 1.0 Stell: 6061 álstell, m/ eilífðarábyrgð. Bremsur: TekTro V-bremsur. Gírskiptir: Shimano Acera, 24 gíra. Dempari: SR Suntour gorma dempari 50 mm slaglengd og stillanlegur stífleiki. Helstu kostir: Frábært alhliða fjallahjól. Hvort sem farið er í lengri ferðir um bratta stíga eða mjóar gönguleiðir þá býr Cross Country fjallahjólið yfir styrk og hönnun til að koma þér á leiðarenda. Svo er auðvitað lítið mál að skjótast á því út í sjoppu. Verð: 32.990 kr. Jamis Explorer 2.0 Stell: 6061 álstell, m/ eilífðarábyrgð. Bremsur: TekTro V-bremsur. Gírskiptir: Shimano Acera, 21 gíra. Dempari: SR Suntour M3070. Einnig dempari í sætispósti fyrir aukin þægindi. Helstu kostir: Fínmynstruð dekk henta vel innanbæjar en halda nægri breidd til að þau nýtist á malarvegunum uppí sumarbústað. Breiður hnakkur, dempari í sætispósti og hátt stillanlegt stýri fyrir upprétta setstöðu. Tilheyrir Street/Comfort línunni hjá Jamis. Sumartilboð: 29.990 kr. verð áður 32.990 kr. HJÓLAÐU INN Í SUMARIÐ HJÓL ÁRSIN S 2006 Sjálfstæðisflokknum hlýtur að vera ansi heitt í sauðagærunni sem hann dró yfir sig fyrir nokkrum vikum síðan. Nú storma hægri mennirnir fram sem rós- rauðir stórkratar sem allt vilja fyrir lítilmagnann gera. Bara að nefna það. Allt nema kannski lofa betra veðri, enda erfitt að lofa því í vor fræsingnum sem geysar nú um land allt. Hvar þessi rósrauða hjörð íhaldsmanna var þar til korteri fyrir kosningar er erfitt að segja. Hvernig stendur þá á blindri hægri stefnunni sem rekin er í ríkisstjórn á vegum íhaldsins? Þar eru lækkaðir skattar á hátekjufólkið og einkavætt af meira kappi en forsjá. Nei, þeir einfaldlega selja betur í krata- gærunni þessa dagana. Íhaldið verður hinsvegar fljótt farið úr gærunni að loknum kosn- ingum. Þá fara þeir að selja Orku- og bæjarveitur um land allt. Einkavæða grunnskólana og bjóða út bæjarþjónustu af hvaða sort sem er. Ekki efast um það eitt augnablik. Eðli íhaldsins er það sama. Þrátt fyrir fögur og kratísk yfirboðin í háflóði kosn- ingabaráttunnar. Mín spá er sú að kantflokkarn- ir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Vg, fái talsvert lakari útkomu en þeim er gjarnan spáð í könnun- um. Samfylking og Framsókn talsvert betri. Þangað fara óákveðnir frekar sem oft er fólk sem á eftir velja annan mið- vinstri flokkinn. Eiga eftir að velja frjálslynda félagshyggju en myndu tæplega kjósa til hægri eða yst til vinstri, öfgakennda heimsendaspámennskuna sem ómar í sífellu frá Vinstri græn- um. Íhaldið stillti miðið hátt í mörgum sveitarfélögum. Reykja- vík, Árborg og Kópavogi svo dæmi séu tekin. Sjálfur hef ég unnið við kosningastjórn Sam- fylkingarinnar í Árborg og fylgst með íhaldinu í návígi beita öllum brögðum sem í bókinni eru. Von- andi falla þeir á eigin bragði. Kjósendur kaupa ekki blekkingar sem betur fer. Í Árborg fékk Samfylkingin rúm 40% fyrir fjórum árum. Það var mikill sigur í krafti voldugs framboðslista og vandaðrar mála- fylgju. Það er erfitt að fylgja slíku eftir en við ætlum að halda okkar hlut og að sjálfsögðu að vera yfir meðaltalsfylgi Samfylk- ingarinnar á landsvísu. Og auð- vitað áfram í meirihluta í Árborg þar sem við höfum unnið frábært starf á síðustu fjórum árum. Nú sláum við skjaldborg um Árborg. Gegn einkavæðingar- brölti íhaldsins og óábyrgu böl- sýnisrausi um bæinn góða Árborg. Það mun okkur takast trúi ég, enda framboðið gott og málefnastaðan einsog best verð- ur á kosið. Í Reykjavík fær íhaldið kannski sjö menn, ef vel gengur. Sex er líklegra. Samfylkingin fær sex og vel yfir 35% fylgi. Vonbrigðin verða Vinstri grænna enda fjarar hratt undan þeim eftir að flokkurinn gaf út að það væri í kortunum að leiða íhaldið til valda í Reykjavík. Makalaus afleikur hjá Svandísi Svavars- dóttur. Það verður vinstri græn- um dýrkeypt daður. Framsókn mun koma betur út en spáð er. Víðast hvar nema í lík- lega í Hafnarfirði og Kópavogi. Hrun blasir við flokknum þar sem sár mun hökta frá kosning- unum. Þetta verður spennandi kosn- inganótt. Þar mun sauðagæran renna af Sjálfstæðisflokknum og úlfurinn undir gærunni koma fram. Enda korterið liðið og kosn- ingarnar frá. Kosningar von- brigða fyrir Sjálfstæðisflokkinn víðast um landið og mikið áfall fyrir nýja forystu flokksins. For- ystu sem hefur verið í felum alla baráttuna. Sauðagæra Sjálfstæðisflokksins UMRÆÐAN KOSNINGAR BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON ALÞINGISMAÐUR Íhaldið verður hinsvegar fljótt farið úr gærunni að loknum kosningum. Þá fara þeir að selja Orku- og bæjarveitur um land allt. Þessa dagana birtast auglýsing- ar í fjölmiðlum þar sem stjórnmála- flokkar eru að kynna „borgarstjóra- efni“ flokkanna í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég man þá daga þegar Sjálfstæðisflokkur- inn bauð Davíð Oddsson fram sem borgarstjóraefni flokksins og Reyk- víkingar fengu 3 borgarstjóra frá flokknum á 4 árum. Fyrir 4 árum var formaður Samfylkingarinnar borgarstjóraefni R-listans og gaf um það stórar yfirlýsingar að hún myndi sitja út kjörtímabilið og allir vita hvernig það fór, enn og aftur 3 borgarstjórar á 4 árum. Yfirlýs- ingar Ingibjargar Sórúnar í aðdrag- anda kosninganna voru ekki papp- írsins virði þegar upp var staðið. Þegar núverandi borgarstjóri var valinn í samstarfi þeirra flokka sem mynda R-listann höfnuðu Framsóknarmenn og Vinstri græn Degi Eggertssyni sem borgar- stjóra og völdu frekar Steinunni Valdísi. Það sem gerst hefur síðan þá er að Samfylkingin hefur hafn- að eigin borgarstjóra í prófkjöri og býður fram borgarstjóraefni sem líklegustu samstarfsflokkarn- ir í meirihluta í borgarstjórn hafa þegar hafnað. Er Dagur Eggerts- son borgarstjóraefni Steinunnar Valdísar og Stefáns Jóns? Er Dagur Eggertsson borgarstjóraefni Vinstri grænna eða Frjálslyndra, já eða Sjálfstæðisflokksins? Hann er kannski bara borgarstjóraefni Ingibjargar Sólrúnar? Hvar er samstaða kvenna nú? Þeir verða að svara því, en hann er örugglega ekki borgarstjóra- efni Framsóknarmanna. Hvers- vegna ættu Framsóknarmenn og Vinstri græn að vilja skipta um borgarstjóra ef flokkarnir fara með Samfylkingunni í meirihluta? Hvað hefur Steinunn Valdís gert sem borgarstjóri sem réttlætir það að henni sé hafnað fyrir Dag Egg- ertsson? Það er langlíklegast að sátt geti orðið um að Steinunn verði áfram borgarstjóri komi til samstarfs þessarra flokka í borg- arstjórn á komandi kjörtímabili Framsóknarmenn kjósa allavega frekar að styðja núverandi borgar- stjóra til áframhaldandi góðra verka komi til samstarfs þessara flokka. Höfundur er formaður málefna- nefndar miðstjórnar Framsóknar- flokksins. Borgarstjóri hvað? UMRÆÐAN KOSNINGAR G. VALDEMAR VALDEMARSSON Þegar núverandi borgarstjóri var valinn í samstarfi þeirra flokka sem mynda R-listann höfnuðu Framsóknarmenn og Vinstri græn Degi Eggertssyni sem borgarstjóra og völdu frekar Steinunni Valdísi. SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoð- anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.