Tíminn - 13.11.1977, Blaðsíða 25
Sunnudagur 13. nóvember 1977
25
Nóg að gera hjá
Skagaleikflokknum
Kjartan Ragnar Guðmundsson
læknir, dr. med.
d. 5. okt. 1977.
HaustiB 1925 gengu fimm sunn-
lenzkir piltar inn i 3. bekk Gagn-
fræöaskólans á Akureyri (er siBar
varð menntaskóli) og tóku gagn-
fræðapróf á næsta vori eftir eins
vetrar dvöl i skólanum. 1 þessum
hópi var Kjartan R. Guðmunds-
son frá Ytri-Skógum undir Eyja-
fjöllum. Þetta haust lágu leiðir
okkar Kjartans saman i skólan-
um i fyrsta sinn. Fljótlega urðum
viö nánir félagar er leiddi til ein-
lægrar vináttu sem hélzt óslitið
alla tiö. Mér er þungt um hjarta
þegar hann er horfinn minn ljiifi
vinur sem reyndist mér æ sem
bezti bróðir og svo mun um fleiri
sem þekktu hann og reyndu hann,
hinn sviphreina bjarta son Eyja-
fjalla.
— Margt leitar á hugann frá
liðnum árum. Jeg staldra við
minningarnar frá vetrinum okkar
á Akureyri. Allar eru þær manni
kærar enda jafnan á langri leiö
borið yl i br jóstið er horft var til
baka. Margar áttum viö gleði-
stundimar — bekkjarsystkinin i
3. bekk og bjart var yfir þeim
friöa hópi, er átti ljúfa drauma
æskuáranna og vonglöö augu er
horft var fram á veginn. —
Kjartan var fæddur 14. aprfl 1906 i
Ytri-Skógum og ólst þar upp i
föðurgarði, annar að aldri í röð 5
systkina. Vaxinn var hann af
sterkum stofni merkra og mikilla
ætta gáfu- og atgervisfólks
beggja vegna. Foreldrar hans
voru hjónin Margrét Báröardóttir
og Guðmundur Kjartansson,
bóndi og smiður er bjuggu i Ytri-
Skógum langa tið. Bæði voru þau
Eyfellingar húnfrá Ytri Skógum,
hann frá Drangshliðardal.
Margrét og Guðmundur voru
mikil mannkostahjón er nutu að
verðleikum virðingar og trausts
sveitunga sinna og annarra er af
þeim höfðu kynni. — Og — „eplið
fellurekki langtfrá eikinni”. Þeir
góðu kostir, er pryddu foreldra
Kjartans voru honum gefnir og
um þann arf stóð hann trúan vörö
og ávaxtaði allt sitt lif.
—Eftir gagnfræðaskólaprófið á
Akureyri lá leiðin i Menntaskól-
ann I Reykjavik. Þar tók hann
stúdentspróf vorið 1930 meö 1.
eink. Það er vist að hvaða leiö
sem Kjartan hefði valiö sér aö
loknu stúdentsprófi hefði oröið
honum greiöfær, svo mjög sem
hann var gæddur skörpum gáfum
og fjölþættum hæfileikum. Hann
valdi læknisfræðina og aldrei
mun hann hafa iðrazt þess. Hann
stundaði nám i læknadeild Há-
skóla Islands og lauk kandidats-
prófiifebr. 1936 með hárri 1. eink.
A næstu árum var hann settur
héraðslæknir á nokkrum stöðum
úti á landsbyggðinni, m.a. i
Hornafjarðarhéraði og Hólma-
vikurhéraði jafnhliða Reykja-
fjaröarhéraði auk þess gegndi
hann læknisstörfum tima og tima
i forföllum lækna. Kjartan valdi
sér geö- og taugasjúkdóma að
sérgrein og aflaöi sér þekkingar á
þvi sviöi við erlendar stofnanir
viðs vegar. Fullyrða má aö hann
hafi verið með lærðustu læknum
hérlendis i sérgrein sinni. Sem
sérfræðingur i taugasjúkdómum
vann hann bæði sjálfstætt og á
sjúkrahúsum, m.a. á Land-
spltalanum um árabil Jafnframt
stundaði hann kennslu i lækna-
deild Háskóla Islands og lektor
við háskólann var hann frá 1959
siðar prófessor.
Kjartan R. Guömundsson var
þeirrar gerðar að hann gaf sig
allan og óskiptan þvi er hann tók
sérfyrir hendur, hvort heldur var
inárhi eöa störfum. Það lætur þvi
að iikum, að hann hafi gefiö mikið
i lifestarfi sinu af sinni fjölþættu
þekkingu og það þvi fremur sem
tilfinningar hans sjálfs voru
opnar og næmar og löngunin mik-
il til að hjálpa og likna. — Óefað
fylgja honum þakklátir hugir
hinna fjölmörgu sjúklinga hans
sem mættu skilningsrikum og
hlýjum vini þar sem Kjartan var.
Kjartan var gæddur mikilli lifs-
orku og viljastyrk átti hann i
miklum mæli. Sá styrkur var
honum sjálfum ómæld náðargjöf I
hinu mótdræga og þungbæra i lif-
inu sem Kjartan fór ekki varhluta
af, frekaren flestir aðrir. Kjartan
var kvæntur Rut, nuddkonu,
danskrar ættar, en missti hana
snögglega eftir aðeins 13 ára
sambúö. Sá missir var Kjartani
þungbær og skildi eftir ógróið sár
til hinzta dags. — Ég votta
systkinum hans vinum minum
innilega samúð mina. —
„Vinar burt sem vikinn er, *
veitist jafnan ljúft að
minnast, —
yndislegt að óska sér
aftur mega sjást og finnast
J.M.Guðj.
Bókmenntir
Þaö er varla hægt að tala um
trúleysi og ótta siðustu áratuga
án þess að minnast á þau von-
brigði sem fjöldi manns hefur
oröiö fyrir i sambandi viö
kommúnismann. Menn trúðu
þvi aö skipulagið leysti allan
vanda, gerðimennfullkomna og
farsæla. Sumir héldu að réttlát
skiptagjörö og góður efnahagur
leysti menn frá öllum slæmum
tilhneigingum. „Þar sem fólki
liður vel eru ekki framdir glæp-
ir”. En reynslan sýnir aö þaö er
mikið satt i hinu fornkveðna að
„fátækan vantar margt en
ágjarnan allt”. Kannski er
eftirómur þessara vonbrigöa I
þvi sem Gústaf Óskarsson segir
um frelsun Tibets og rödd hróp-
andans i Kambódiu.
Það er nauðsynlegt aö gera
sér grein fyrir hættum og hald-
leysi þess sem ekki má treysta.
En ungt fólk á aö treysta á sjálft
sig. Og einhvern veginn finnst
mér að þessi kver sem hér voru
nefnd séu forboði þess að innan
skamms sameinist hin unga
kynslóð I þeirri trú og tilfinn-
ingu og vissu aö framtið og vel-
ferð mannkynsins er undir þvi
komin að það læri að lifa
bræðralagið. Það er draumur-
inn forni og fagri og það er tak-
markiö mikla. Þaö er leiðin til
fyrirheitna landsins, — guðs-
rikisins. Og á þeirri leið eru for-
réttindin þröskuldur.
H.Kr.
o Ég hef aldrei
hlotnazt siöan þetta kom fyrir
hafi komiö frá sveitungum min-
um, félögum og vinum viðs vegar
aö. Þaö er eins og allt sveitar-
félagið hafi orðið ein f jölskylda i
kring um mig, siöan ég slasaðist.
Og efst er mér i huga þakklæti til
þeirra sem hafa annazt bú mitt i
fjarveru minni.
„Ég er bjartsýnn”
— Þú heldur búskapnum áfram
með fulltingi aðstoðarfólks þins
að minnsta kosti til vorsins?
— Já, ég ætla aö minnsta kosti
að sjá hverju fram vindur I vetur.
Ég hef hug á þvi að nota þennan
tima til þess að mennta mig eitt-
hvað. Sú skólaganga sem ég hef
notiö er sambærileg viö það sem
nú á dögum er krafizt af tólf ára
börnum. En auövitað segir sjálf
skólagangan ekki allt um kunn-
áttu manna. Menntun er llka
hægt að auka á annan hátt en með
beinni setu á skólabekkjum og
það er það sem ég hef hug á að
gera en framaö þessu hafa æfing-
arnar tekiö allan tima minn og
þrek. Þegar þeim er ldcið á dag-
inn, hef- ég verið oröinn svo
þreyttur að ég hef oröiö að leggj-
ast til hvildar. Lengi eftir aö ég
slasaðist þoldi ég ekkert að lesa,
sjálfsagt vegna höfuðhöggsins
sem ég hafði hlotiö en nú er sá
þröskuldur yfirstiginn og ég get
lesið þrautalaust. Hægri hönd
min er orðinn nægilega styrk til
þess aö skrifa með henni en sú
vinstri er miklu lélegri og yfirleitt
er ég allur miklu verr á mig kom-
inn vinstra megin.
Mér er ljóst aö læknisfræðileg-
ar likur til þess að ég nái fullum
bata eru einhvers staðar innan
við tiu af hundraöi. Ég veit lika að
mikill munur er á þvl hvort menn
geta gengið, unnið I sæti sinu og
bjargað sér aö mestu sjálfir —
eða hvort þeir eru færir um aö
vinna erfiðisvinnu til dæmis
sveitaverk. Þar er langur vegur á
milli. A hitter að Ilta að batiminn
siðan ég slasaðist hefur verið svo
undraveröur aö ekki er gott að
segja hversu langt ég kann að ná
áöur en lýkur. Sá árangur sem
þegar hefur náðst gefur ástæöu til
bjartsýni, enda er ég bjartsýnn,
þegar ég horfi fram á veginn.
—VS
Ný plata
Hauka
Frá hljómplötuútgáfunni Hauk-
um h.f. er komin út hljómplatan
,,..svo á réttunni” með hljóm-
sveitinni Haukum. 1 hljómsveit-
inni eru Ingólfur Sigurðsson,
Gunnlaugur Melsteð, Svein Arve
Hovland og Valgeir Skagfjörð.
Hér er um að ræða aðra hljóm-
plötu Hauka en hin fyrri hét
„Fyrst á röngunni” og kom út á
s.l. ári. Lögin á þessari plötu eru
öll frumsamin og textarnir is-
lenzkir. Hljóðritun hennar fór
fram iHljóðrita hf. i Hafnarfirði i
mai og júni i sumar. Upptöku
annaðist Tony Cook. Aðstoðar-
menn á plötunni eru nokkrir, m.a.
Engilbert Jensen og Kristinn
Svavarsson.
Mikil gróska er nú i starfsemi
Skagaleikflokksins á Akranesi.
Undanfarið hefur Skagaleikflokk-
urinn sýnt leikritið Höfuðbólið og
Hjáleiguna eftir Sigurð Róberts-
son og hefur það verið sýnt sex
sinnum á Akranesi, tvisvar i
Kópavogi og tvisvar á Suðurnesj-
um við góða aðsókn og ur.dirtekt-
ir.
1 dag, 12. nóvember, verða tvær
sýningar á Sauðárkróki, og á
sunnudag sýnir leikflokkurinn á
Blönduósi. Siðar i vetur hefur
Skagaleikflokknum verið boðið i
leikför til Finnlands og hefur
hann tekið þvi boði.
plexig/as
'& Höfum ávallt fyrir-
liggjandi frá
röhm
í Vestur-Þýzkalandi
úrval af plexiglas
plastgleri í mörgum
þykktum og litum.
Plexiglas og Makrolon
1-10 mm þykkt og 3ja mm
mótað — hentar vel til
margvíslegustu nota —
svo sem:
Undir stóla á vinnu-
stöðum, í handrið,
glugga á skipsbrýr,
hringstiga — og ótal
margt fleira.
Sníöum eftir ykkar
óskum og teikningum.
Bílasmiðjan hf.
Laugavegi 176
Símar 3-37-04 & 8-21-95
Reykjavík
Framleiðum eftirtaldár
gerðir
' "l^*S rj te \ HRINGSTIGA:
V rrf lim Teppastiga, tréþrep,
r-! mn r Æ rifflað járn og úr áli.
B PALLSTIGA
mm 'JW iMargar gerðir af inni- og
pX útihandriðum.
.121 Vélsmiðjan Járnverk
|p:' * Ármúla 32 — Sími 8-46-06
Kaupmenn — Kaupfélög
Jólin nálgasf
Tökum upp daglega
Gjafavörur
Leikföng o.fl. o.fl.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg, simar 84510 og 84510