Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 16
16 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR KOSNINGAR N-listinn hlaut meiri- hluta atkvæða í Garði en aðeins tveir flokkar buðu fram að þessu sinni. Á N-listanum eru níu konur og fimm karlmenn, þar af eru konur í þremur efstu sætunum. Oddný G. Harðardóttir, oddviti N-listans, segir að ekki hafi verið erfitt að virkja konurnar. „Það er búið að telja okkur konum trú um að ástæðan fyrir því að við erum ekki á listum sé sú að við viljum ekki vera með. En það var ekki vanda- mál hér, heldur var þvert á móti mikil ásókn kvenna í sæti.“ Að sögn Oddnýjar var kveikjan að þessu sú að tuttugu konur úr öllum flokkum ákváðu að setjast niður og velta fyrir sér hvernig hægt væri að gera hlutina betur. Oddný segir að þeim hafi þótt þörf á að bæta vinnulag og lýðræðislega aðkomu bæjarbúa að málum. I- listamenn höfðu samband við hóp- inn um samstarf og úr varð nýtt framboð, N-listinn. H-listanum var einnig boðið að vera með en í ljós kom að þeir ætluðu ekki að taka þátt í kosningunum. Einstakl- ingar af H-listanum höfðu þó aðkomu að N-listanum. „Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð og gegnsæja stjórn- sýslu. Sömuleiðis að í öllum mála- flokkum verði sett fram aðgerðaá- ætlun og kostnaðaráætlun fyrir kjörtímabilið,“ segir Oddný. - sdg Nýtt framboð N-listans með meirihluta í Garði: Konur í þremur efstu sætum ODDNÝ G. HARÐARDÓTTIR Oddný mun taka við embætti bæjarstjóra í Garði. ������������������������������������������������������������ ������������������������������������������������������������� ��� ����������������������������������������������������������� ����������������������������� ���������������������� ������� ������������������� ����������������� �������� ��� ���������������������� ���������������� ����������������������� ������������������������� ���� ���������������������������������� ÍRAK Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, sagðist í gær munu tilkynna þinginu innan þriggja daga hverja hann skipar sem nýja varnar- og innanríkis- ráðherra. Mjög er þrýst á forsæt- isráðherrann að skipa í þessar mikilvægu stöður í kjölfar vax- andi átaka stríðandi fylkinga í landinu. Ráðherrann segist einnig hafa sagt stjórnskipaðri nefnd að ræða við bandaríska herinn um meintar árásir hermanna á óbreytta borg- ara í Haditha í fyrra. Nú í ár hafa yfir 4.000 Írakar, margir þeirra óbreyttir borgarar, látið lífið í stríðstengdu ofbeldi. - sgj Forsætisráðherra Íraks: Skipun ráð- herra í nánd EFNAHAGSMÁL Samsetning vöru- skiptajöfnuðs hefur tekið stakka- skiptum. Það sýna nýútgefnar tölur Hagstofunnar fyrir aprílmánuð. Undanfarna mánuði hefur hallinn verið rekinn áfram af neyslu en nú stjórnar hann að miklu leyti af auk- inni fjárfestingu. „Það er í raun betra því fjárfesting skilar sér í auknum útflutningstekjum í fram- tíðinni,“ segir Ásgeir Jónsson, aðal- hagfræðingur KB banka. Skýr merki eru um áhrif stór- iðjuframkvæmda í vöruskiptajöfn- uðinum þar sem mikil aukning hefur verið í innflutningi á fjár- festingarvörum. Hins vegar hefur orðið snarpur viðsnúningur í inn- flutningi á fólksbílum og varanleg- um neysluvörum en undir þann flokk falla meðal annars húsgögn og ýmis rafmagns- og heimilis- tæki. „Almenningur virðist vera að endurmeta ástandið. Minnkandi einkaneysla helst í hendur við væntingarvísitölu Gallup sem birt var á dögunum og sýnir að neyt- endur hafa ekki verið svartsýnni síðan í desember 2002,“ segir Ásgeir. Í mars voru fluttir inn bílar fyrir 3,5 milljarða en í apríl fyrir rúma tvo milljarða. Það er mikill samdráttur og telst líklegt að mett- un sé orðin á markaði með fólks- bíla. Ásgeir segir ekki ólíklegt að það taki tvö til þrjú ár þangað til innflutningur tekur að aukast aftur miðað við það sem sagan sýnir. Þegar gengi krónunnar féll árin 2000 til 2001 hafi innflutningur á bílum og varanlegum neysluvör- um hrunið. Það sama hafi gerst á árunum 1987 og 1998. Greiningardeild KB banka þykir líklegt að innflutningur neysluvara muni halda áfram að dragast saman þegar líður á árið þó töluverð aukning verði áfram í fjárfestingavöru. Hér skipta þrír þættir mestu máli – mettunaráhrif einkaneyslu, veiking krónunnar og háir vextir. Aukin verðbólga og minni væntingar neytenda spila einnig inn í. holmfridur@frettabladid.is MARKAÐUR MEÐ FÓLKSBÍLA AÐ METTAST Í mars voru fluttir inn bílar fyrir 3,5 milljarða króna en í apríl fyrir rúma 2 milljarða. Neysla fólks dregst saman Gengisfall krónunnar og neikvæð umræða um ís- lensk efnahagsmál hafa valdið samdrætti í innflutn- ingi á bílum og almennum neysluvörum. MÓNAKÓ, AP Albert II, fursti af Mónakó, hefur gengist við að vera faðir 14 ára stúlku sem býr með móður sinni í Kaliforníu. Lögmaður furstans greindi frá þessu í viðtali við franska blaðið Le Figaro í gær. Stúlkan heitir Jazmin Grace Rotolo, en hún er annað óskilgetna barnið sem Albert gengst opinber- lega við faðerninu á. Hitt er hinn þriggja ára gamli Alexandre, sem hann átti í lausaleik með flugfreyju frá Tógó. - aa Albert II Mónakófursti viðurkennir að vera faðir: Gengst við stúlku EKKI VIÐ EINA FJÖL FELLDUR Albert fursti í búðum kappakstursmanna í Mónakó um liðna helgi. NORDICPHOTOS/AFP HÁSKÓLAR Jón Baldvin Hannibals- son, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, hefur verið ráðinn stundakennari við Viðskiptahá- skólann á Bifröst. Hann mun ásamt Eiríki Bergmann Einarssyni kenna námskeiðið Ísland í evrópsku samstarfi, sem kennt verður í nýju meistara- námi í Evrópu- fræðum, sem skólinn býður upp á í fyrsta sinn á Íslandi. Í námskeiðinu er skoðað hvernig Ísland tengist ESB gegn- um EES-samninginn og Schengen- samstarfið. Einnig verður farið í námsferð til Brussel og alþjóðleg- ar stofnanir heimsóttar. -sgj Viðskiptaháskólinn á Bifröst: Jón Baldvin ráðinn kennari JÓN BALDVIN HANNIBALSSON VARÐ FYRIR KONUNGLEGRI BIFREIÐ Þessi tyrkneska stúlka, sem heitir Aysegul Goksen, varð fyrir bifreið sænsku konungs- hjónanna, Karls Gústafs og Silvíu, á götu í Istanbúl í gær. Stúlkan féll til jarðar, en reyndist ekki alvarlega meidd. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP FÍKNIEFNI Á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum er leitað að eit- urlyfjum innvortis hjá 30 til 40 manns á ári hverju og í 7 til 10 til- vikum finnast efni. Þetta kom fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannes- dóttur alþingismanns um ein- staklinga með eiturlyf innvortis. Jafnframt kom fram í svari ráðherra, að annars staðar á land- inu, einkum á Seyðisfirði, er leit- að hjá innan við 10 manns á ári að eiturlyfjum innvortis. Engin efni hafa fundist við leit þar enn sem komið er. Ekki er kunnugt um að nein sjúkrastofnun hafi synjað óskum um að koma einstaklingi til aðstoðar við að losna við eiturlyf sem hann hefur haft innvortis, að sögn heilbrigðisráðherra og þykir afar ólíklegt að svo sé. Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki í heilbrigðisþjónust- unni koma einstaklingar nánast aldrei sjálfviljugir vegna þessara aðstæðna til heilbrigðisstofnana. Nær allir eða allir leita til heil- brigðisþjónustunnar fyrir tilstilli lögreglu við þessar aðstæður. Ráðuneyti heilbrigðis- og trygg- ingamála og dómsmála skoða nú lagaákvæði sem fjalla um þagn- arskyldu, tilkynningaskyldu og vitnaskyldu varðandi eiturlyfja- burð innvortis. -jss Heilbrigðisráðherra um vöktun á smygltilraunum: Leitað innvortis hjá fjörtíu manns á ári
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.