Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 82
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR50
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
Tónlistarmaðurinn Will
Oldham sendir frá sér nýja
plötu með haustinu undir
nafninu Bonnie „Prince“
Billy. Valgeir Sigurðsson
í Gróðurhúsinu stjórnaði
upptökum á plötunni.
„Ég held að þetta sé að einhverju
leyti nýtt sánd hjá honum. Það er
kannski ástæðan fyrir því að hann
vildi breyta til og gera þetta
svona,“ segir Valgeir Sigurðsson
sem stjórnaði upptökum á nýj-
ustu plötu tónlistarmannsins
Bonnie „Prince“ Billy. Upptökur
fóru fram í Gróðurhúsinu, hljóð-
veri Valgeirs í Breiðholti, og
mætti Bonnie til leiks með fimm
manna hljómsveit. Will Oldham,
eins og tónlistarmaðurinn heitir
réttu nafni, er þekktur fyrir tón-
list sína sem oft er flokkuð sem
alt-kántrí. Maðurinn er sannkall-
að goð í óháða tónlistargeiranum.
Unnu báðir með Björk
Valgeir segir að röð atvika hafi
leitt til þess að hann og Will Old-
ham ákváðu að vinna saman. „Við
hittumst baksviðs á tónleikum í
Bandaríkjunum. Hann var forvit-
inn um það sem ég hafði verið að
gera, enda spáir hann mikið í fólki
og því sem það gerir. Eftir það
vorum við í tölvupóstssambandi
og ræddum möguleika á því að
vinna eitthvað saman. Svo hitt-
umst við aftur þegar ég og Björk
vorum að vinna tónlistina fyrir
kvikmyndina Drawing Restraint
en hann söng eitt lag þar,“ segir
Valgeir. Eftir að þeir höfðu unnið
í fyrsta skipti saman í hljóðveri
héldu þeir sambandi og á síðasta
ári kom að því að Oldham ákvað
að taka næstu plötu sína upp hér á
landi.
„Platan var tekin upp á tveim-
ur vikum í desember og svo kom
hann aftur í janúar og við hljóð-
blönduðum plötuna.“ Þær sögur
fara af Will Oldham að hann sé
ekki allra. Valgeir er því vitan-
lega spurður hvernig samvinna
þeirra hafi gengið.
„Nei, hann er vissulega ekki
allra, það er kannski það sem
gerir hann að því sem hann er.
Það var samt mjög gott að vinna
með honum. Við lentum í smá
byrjunarörðugleikum, við
þurftum að læra hvor á annan.
Þetta var brothætt í fyrstu og um
tíma var alveg spurning um hvort
þetta myndi hafast. Svo small
þetta mjög vel saman,“ segir Val-
geir. Hann segir að það hafi vissu-
lega verið ákveðin áhætta fyrir
Oldham að koma hingað til lands
til að taka upp plötu og þar að
auki með heila hljómsveit með
sér. Sú áhætta virðist þó hafa
borgað sig vel.
Miklar væntingar til plötunnar
Nýja platan mun heita Then the
Letting Go og kemur út í
september. Hún er fyrsta hefð-
bundna plata Wills Oldham í nokk-
ur ár, en hann hefur undanfarið
einbeitt sér að endurgerðum og
samstarfsverkefnum. Síðast
gerði hann kóverplötu með hljóm-
sveitinni Tortoise, þar á undan
gerði hann plötu með Matt Sween-
ey og enn fyrr endurgerði hann
eigin lög sem hann hafði áður
gefið út undir nafninu Palace
Music. Oldham er þekktur fyrir
að velja sér nýja samstarfsmenn í
hvert sinn sem hann gerir plötu.
Að þessu sinni fékk hann þó bróð-
ur sinn Paul til að spila á bassa en
þeir hafa oft unnið saman áður.
Þótt Valgeir hafi stjórnað upp-
tökum á plötu Oldhams og mixað
hana er alls óvíst hvernig hans
verður getið á kápu plötunnar.
„Ég hef heyrt að á smáskífunni
sem kemur í júlí sé ég skráður
sem hluti af hljómsveitinni. Það
verður því bara að koma í ljós
hvað hann titlar mig á plötunni,“
segir Valgeir sem kláraði endan-
lega útgáfu plötunnar fyrir
skemmstu og sendi út til Oldham.
Þetta er því orðinn ansi langur
tími sem hann hefur unnið að
plötunni. „Það er komið rúmt ár
síðan við byrjuðum að tala saman
um þetta verkefni. Maður er því
orðinn ansi samdauna plötunni.“
Valgeir segir erfitt að meta
það hvort samstarfið með Old-
ham sé stærsta verkefnið hans til
þessa. Samstarf hans og Bjarkar
Guðmundsdóttur komi þar sömu-
leiðis til álita. „Það samstarf þró-
aðist í mörg ár og þetta verkefni
var öðruvísi að því leyti. Maður
veit náttúrlega ekki hvert þessi
plata á eftir að fara. Ég veit það
eitt að það eru margir mjög
spenntir fyrir henni, menn eiga
von á miklu.“
Heldurðu að þið eigið eftir að
vinna meira saman?
„Það er ekkert útilokað en
hefur ekki verið rætt. Ég myndi
alla vega ekki segja nei.“
hdm@frettabladid.is
Tók upp nýja plötu Will Oldham
VALGEIR SIGURÐSSON Þrátt fyrir byrjunarörðugleika gekk honum vel að stjórna upptökum
á næstu plötu Will Oldham. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
WILL OLDHAM Eða Bonnie „Prince“ Billy
eins og hann kallar sig á næstu plötu sinni,
sem tekin var upp á Íslandi.
MEÐ HNÍF OG GAFFLI heitir viku-
legur þáttur í Fréttablaðinu þar sem
Þráinn Bertelsson lýsir upplifun
sinni af því að sitja til borðs á ein-
hverju veitingahúsi sem venjuleg-
ur matargestur, en ekki sem sér-
hæfður sælkeri. Í byrjun var
ætlunin að gefa veitingahúsum ein-
kunnir fyrir umhverfi og stemn-
ingu, þjónustu og matseld, en
reynslan hefur sýnt að sú einkunna-
gjöf er full flókin fyrir stutta
umfjöllun.
Því verður horfið að því ráði að
Þráinn gefur þeim stöðum sem
hann telur verðskulda viðurkenn-
ingu eina til fimm kórónur.
„Ég vel að gefa kórónur fremur
en kokkahúfur,“ segir Þráinn,
„vegna þess að þegar fólk nýtur
lífsins er talað um að skemmta sér
konunglega. Og þar að auki eru
það ekki kokkarnir einir sem ráða
því hvort heimsókn á veitingahús
er konungleg upplifun eða ekki.
Þar kemur fleira til, svo sem
umhverfið, innrétting, stemning
og öll umgjörð máltíðarinnar. Gest-
inum á að líða vel. Henni eða
honum á að líða eins og kóngi eða
drottningu í ríki sínu,“ útskýrir
Þráinn. „Í öðru lagi er það þjónust-
an. Gestinum á að finnast að hann
sé velkominn, að húsráðendur
fagni því að fá hann í heimsókn, að
hann sé í góðum og öruggum hönd-
um og allir fúsir til að gera honum
til hæfis.“ Í þriðja lagi sé það síðan
maturinn sem á að vera úr góðu
hráefni, matreiddur af kunnáttu
og áður en hann gælir við bragð-
laukana á hann að gleðja augað.
„Ég fer út að borða í þeirri von
að hver staður verðskuldi fimm
kórónur,“ segir Þráinn. „Ég er búinn
að fjalla um fjóra staði. Ósushi í
Lækjargötu fær eina kórónu, Salt
við Pósthússtræti fær þrjár, Við
fjöruborðið á Stokkseyri fær líka
þrjár og Ítalía á Laugavegi 11 fær
eina. Ef mér líður eins og hrepp-
stjóra eftir máltíðina fær staðurinn
eina stjörnu, og þótt ég persónulega
vildi heldur vera hreppstjóri en
kóngur ætla ég að halda áfram að
leita að stöðum sem verðskulda
fimm kórónur.“ ■
Kórónur og konungleg skemmtun
ÞRÁINN BERTELSSON Ætlar að leita uppi
staði sem láta honum líða eins og kóngi og
verðskulda þar af leiðandi fimm kórónur.
„Þátturinn heitir Pressan og í
honum verður farið yfir fréttir
liðinnar viku,“ segir Róbert
Marshall sem mun leysa Egil
Helgason af hólmi á NFS í sumar.
Fyrsti þátturinn verður á dagskrá
á sunnudaginn. Egill Helgason
ætlar að dveljast á Grikklandi í
sumar og segir Róbert að það hafi
verið ódýr og þægileg redding að
hann leysti hann af. Róbert er sem
kunnugt er forstöðumaður NFS.
„Ég hef gert þetta áður en það
er orðið nokkuð langt síðan,“ segir
Róbert en rúmt ár er komið síðan
hann lét af störfum sem frétta-
maður á Stöð 2. Aðspurður segir
hann að nýi þátturinn verði blanda
af yfirferð yfir fréttir vikunnar
með gestum í sjónvarpssal, en
einnig verði kafað dýpra ofan í
stórviðburði á borð við atburðina
á Vatnajökli í vikunni. ■
Marshall
á skjáinn
RÓBERT MARSHALL Stjórnar nýjum þætti á
NFS í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI