Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 44
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR4
Fótboltaáhugamenn vita lítið sem ekkert
um hann. Langflestir leikmenn á HM vita
lítið sem ekkert um hann. Sven-Göran
Eriksson hafði aldrei séð hann spila áður
en hann valdi hinn sautján ára gamla eld-
fljóta framherja í lokahópinn. Það er ein-
mitt þess vegna sem Walcott gæti orðið
leynivopn Englendinga á HM.
Michael OwenPeter Crouch
Steven Gerrard Frank Lampard Joe Cole
Ashley Cole
David Beckham
Rio FerdinandJohn Terry
Paul Robinson
HEIMSÁLFA: Suður-Ameríka
ÍBÚAFJÖLDI: 6 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 33
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1930, 1950, 1958, 1986,
1998, 2002
ÞJÁLFARI: Anibal Ruiz (f. 30 des. 1942)
KOMST Á HM – með því að hafna í fjórða sæti
í Suður-Ameríku riðlinum.
■ LYKILMAÐUR: ROQUE SANTA CRUZ Hinn 24 ára gamli
sóknarmaður Bayern München hefur átt við þrálát meiðsli
að stríða nú í bráðum tvö ár en hefur lýst því yfir að hann
verði klár í slaginn þegar HM hefst. Það er kannski eins gott,
þar sem hann er svo til eini náttúrulegi markaskorari þjóðar
sinnar, nánast jafnvígur á báða fætur, mjög teknískur og
jafnan eitraður inni í vítateig andstæðinganna.
■ VISSIR ÞÚ ... Að í keppninni árið 1998 vakti Paragvæ mikla
athygli, bæði fyrir góðan árangur og ekki síður vegna þess að
í marki liðsins stóð skrautlegur aukaspyrnusérfræðingur, Jose
Luis Chilavert að nafni. Paragvæ tapaði ekki leik í riðlakeppn-
inni og mætti Frökkum í sextán liða úrslitum þar sem fyrsta
gullmarkið í sögu HM varð liðinu að falli. Tæpum tveimur
vikum síðar voru Frakkar orðnir heimsmeistarar.
■ STÓRA SPURNINGIN: Líkt og hjá Wayne Rooney og Englandi
er talið að árangur Paragvæ í Þýskalandi muni velta að stóru
leyti á frammistöðu Santa Cruz í framlínunni. Hann sleit kross-
bönd í hné í október í fyrra og frestaði skömmu síðar aðgerð til
að geta verið viðstaddur fæðingu dóttur sinnar. Samfara þeirri
ákvörðun seinkar bata hans umtalsvert. Verður hann búinn að
ná sér fullkomlega í hnénu áður en HM hefst?
B - RIÐILL
Leikmannahópurinn
1. Paul Robinson, 27 ára, Tottenham
2. Gary Neville, 31 árs, Manchester United
3. Ashley Cole, 26 ára, Arsenal
4. Steven Gerrard, 26 ára, Liverpool
5. Rio Ferdinand, 28 ára, Manchester United
6. John Terry, 26 ára, Chelsea
7. David Beckham, 31 árs, Real Madrid
8. Frank Lampard, 26 ára, Chelsea
9. Wayne Rooney, 21 árs, Manchester United
10. Michael Owen, 27 ára, Newcastle
11. Joe Cole, 25 ára, Chelsea
12. Sol Campbell, 32 ára, Arsenal
13 David James, 36 ára, Manchester City
14. Wayne Bridge, 26 ára, Chelsea
15. Jamie Carragher, 28 ára, Liverpool
16. Owen Hargreaves, 25 ára, Bayern München
17. Jermaine Jenas, 23 ára, Tottenham
18. Michael Carrick, 25 ára, Tottenham
19. Aaron Lennon, 19 ára, Tottenham
20. Stewart Downing, 22 ára, Middlesbrough
21. Peter Crouch, 25 ára, Liverpool
22. Scott Carson 21 árs, Liverpool
23. Theo Walcott, 17 ára, Arsenal
■ ÞJÁLFARI Sven-Göran Eriksson (f. 5. feb.
1948). Leikirnir á HM verða þeir síðustu hjá
Englendingum undir stjórn
Svíans Erikssons, sem eins og
frægt er orðið var rekinn í vor
eftir að hafa stjórnað liðinu
í hálft sjötta ár. Segist hafa
yfir að ráða sterkasta
landsliðshópi Englands
í áraraðir og stefnir
Með hann innanborðs eru Eng-
lendingar nefndir til sögunnar
sem eitt af sigurstranglegustu
liðum keppninnar. Án hans spá
margir því að Englendingar muni
eiga í erfiðleikum með að komast
upp úr B-riðlinum. Einn besti leik-
maður heims og hreinlega
ómetanlegur fyrir enska liðið.
LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ 4-4-2
SVÍÞJÓÐ
HEIMSÁLFA: Evrópa
ÍBÚAFJÖLDI: 8,9 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 16.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1934, 1938, 1950, 1958,
1970, 1974, 1978, 1990, 1994, 2002
ÞJÁLFARI: Lars Lagerbäck (f. 16. júlí 1948)
KOMST Á HM – með því að vera annað af tveimur liðum
sem náðu bestum árangri þjóða sem höfnuðu í 2. sæti síns
riðils. Svíþjóð fór því ekki í umspil.
LYKILMAÐUR: ZLATAN IBRAHIMOVIC Sannkallaður
töframaður með boltann og hefur sannað sig sem einn
sá allra besti í heimi á undanförnum árum. Ef Ibra-
himovic nær að einbeita sér að fótboltanum eru Svíar í
mjög góðum málum, ef ekki þá er líklegt að það bitni á
öllu liðinu.
VISSIR ÞÚ.... Að Svíar hafa komist tíu sinnum í loka-
keppni HM. Besti árangur þjóðarinnar er frá árinu
1958 þegar liðið komst alla leið í úrslitaleikinn á heima-
velli sínum í Svíþjóð. Þar varð liðið að lúta í lægra
haldi fyrir gríðarlega sterku liði Brasilíu, 5-2.
STÓRA SPURNINGIN: Sóknartríó Svía telja flestir jafn-
vel öflugra en það sem liðið hafði árið 1994; þá Martin
Dahlin, Kennet Andersson og Thomas Brolin. Það
ár komust Svíar alla leið í undanúrslit. Geta Freddie
Ljungberg, Henrik Larsson og Zlatan Ibrahimovic náð
slíkum árangri í Þýskalandi í sumar?
TRÍNIDAD
OG TÓBAGÓ
HEIMSÁLFA: Mið-Ameríka
ÍBÚAFJÖLDI: 1,1 milljón
SÆTI Á HEIMSLISTA: 47.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: Aldrei
ÞJÁLFARI: Leo Beenhakker (f. 2. ágúst 1942)
KOMST Á HM – með því að hafna í 4. sæti Ameríkuriðilsins.
■ LYKILMAÐUR: DWIGHT YORKE Fyrrum stjarna hjá
Manchester Utd sem allir ættu að kannast við. Mikilvæg-
ari en nokkur annar leikmaður í sínu landsliði þar sem
hann er ekki aðeins fyrirliði heldur nokkurs konar and-
legur leiðtogi liðsins. Hann tekur allar spyrnur og allar
ákvarðanir og stjórnar leik Trínidad og Tóbagó frá A til Ö.
■ VISSIR ÞÚ.... Að eftir að ljóst var að Trínidad og Tóbagó
væri á leið á HM var auglýst á heimasíðu knattspyrnu-
sambandsins þar í landi eftir knattspyrnumönnum sem
gætu átt ættir að rekja til landsins og hefðu áhuga á að
fara með liðinu til HM. Chris Birchall, leikmaður Port
Vale í Englandi, svaraði kallinu en amma hans fæddist í
landinu. Hann er nú einn af lykilmönnum liðsins.
■ STÓRA SPURNINGIN: Engar væntingar eru gerðar til
Trínidad og Tóbagó í HM í Þýskalandi, liðið hefur engu að
tapa og hefur auk þess einhverja mögnuðustu stuðnings-
menn allra þjóða í keppninni á bak við sig. Hversu langt
mun leikgleðin, ásamt Dwight Yorke, sem er í raun allt
annar leikmaður þegar hann spilar með landsliðinu, fleyta
Trínidad og Tóbagó í Þýskalandi?
Leikmannahópurinn
1. Shaka Hislop, 37 ára, West Ham
2. Ian Cox, 35 ára, Gillingham
3. A. John, 31 árs, New England Revolution
4. Marvin Andrews, 31 árs, Rangers
5. Brent Sancho, 29 ára, Gillingham
6. Dennis Lawrence, 32 ára, Wrexham
7. Christopher Birchall, 22 ára, Port Vale
8. Cyd Gray, 30 ára, San Juan Jabloteh
9. Aurtis Whitley, 29 ára, San Juan Jabloteh
10. Russell Latapy, 38 ára, Falkirk
11. Carlos Edwards, 28 ára, Luton Town
12. Collin Samuel, 25 ára, Dundee United
13. G. Cornell, 26 ára, Los Angeles Galaxy
14. Stern John, 30 ára, Coventry
15. Kenwyne Jones, 22 ára, Southampton
16. Silvio Spann, 25 ára,W Connection
17. Atiba Charles, 29 ára, W Connection
18. Densill Theobald, 24 ára, Falkirk
19. Dwight Yorke, 35 ára, Sydney FC
20. Jason Scotland, 27 ára, St. Johnstone
21. Kelvin Jack, 30 ára, Dundee FC
22. Clayton Ince, 34 ára, Coventry
23. A. Wolfe, 23 ára, San Juan Jabloteh
PARAGVÆ
Leikmannahópurinn
1. Justo Villar, 29 ára, Newells Old Boys
2. Jorge Nunez, 28 ára, Estudiantes
3. Delio Toledo, 32 ára, Zaragoza
4. Carlos Gamarra, 35 ára, Palmeiras
5. Julio C. Caceres, 27 ára, River Plate
6. Carlos Bonet, 29 ára, Libertad
7. S. Cabanas, 26 ára, Jaguares Chiapas
8. E. Barreto, 22 ára, NMEC Nijmegen
9. R. St. Cruz, 25 ára, Bayern München
10. R. Acuna, 34 ára, D. La Coruna
11. D. Gavilan, 26 ára, Newells O. Boys
12. D. Gomez, 34 ára, S. Luqueno
13. Carlos Paredes, 30 ára, Reggina
14. Paulo Da Silva, 36 ára, Toluca
15. Julio Manzur, 25 ára, Santos
16. Cristian Riveros, 34 ára, Libertad
17. J. Montiel, 18 ára, O. Ascuncion
18. N. Valdez, 23 ára, Werder Bremen
19. J. Dos Santos, 23 ára, B. München
20. Jose Cardozo, 35 ára, Toluca
21. Denis Caniza, 32 ára, Cruz Azul
22. Aldo Bobadilla, 30 ára, Libertad
23. Nelson Cuevas, 26 ára, Pachuca
■ STÓRA SPURNINGIN Nær Wayne
Rooney sér af meiðslunum í tæka tíð? Ef svo er, hversu mikið munu
meiðslin há honum? Ef svo verður ekki, hver leysir hann af í hlutverki
skapandi sóknarmanns sem einnig þarf að skora nokkur mörk?
■ LYKILMAÐUR
Wayne Rooney
Leikmannahópurinn
1. Andreas Isaksson, 25 ára, Rennes
2. Mikael Nilsson, 28 ára, Panathinaikos
3. Olof Mellberg, 29 ára, Aston Villa
4. Teddy Lucic, 33 ára, Häcken
5. Erik Edman, 28 ára, Rennes
6. T. Linderoth, 27 ára, FC Kaupmannahöfn
7. Niclas Alexandersson, 35 ára, Gautaborg
8. Anders Svensson, 30 ára, Elfsborg
9. Freddie Ljungberg, 29 ára, Arsenal
10. Zlatan Ibrahimovic, 25 ára, Juventus
11. Henrik Larsson, 35 ára, Barcelona
12. John Alvbage, 24 ára, Viborg
13. Petter Hansson, 30 ára, Heerenveen
14. F. Stenman, 23 ára, Bayer Leverkusen
15. Karl Svensson, 22 ára, Gautaborg
16. Kim Källstrom, 24 ára, Rennes
17. Johan Elmander, 25 ára, Bröndby
18. Mattias Jonson, 32 ára, Djurgården
19. Daniel Andersson, 29 ára, Malmö
20. M. Allbäck, 33 ára, FC Kaupmannahöfn
21. C. Wilhelmsson, 27 ára, Anderlecht
22. Markus Rosenberg, 24 ára, Ajax
23. Rami Shaaban, 31 ára, Frederikstad
■ VISSIR ÞÚ ...
Að síðan England, sem oft er nefnt
mekka alþjóðlegrar knattspyrnu,
varð heimsmeistari árið 1966 á
heimavelli hefur liðið ekki komist
lengra en í undanúrslit. Bestum
árangri frá 1966 náðu Englending-
ar árið 1990 þegar þeir töpuðu
fyrir V-Þjóðverjum í vítaspyrnu-
keppni í undanúrslitum. V-
Þýskaland stóð seinna uppi
sem sigurvegari keppn-
innar.
ENGLAND
HEIMSÁLFA: Evrópa
ÍBÚAFJÖLDI: 50 milljónir
SÆTI Á HEIMSLISTA: 10.
ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1950,
1954, 1958, 1962, 1966,
1970, 1982, 1986, 1990,
1998, 2002
■ KOMST Á HM – með því að hafna í efsta
sæti í undanriðli 6 í Evrópu.
© GRAPHIC NEWS
© GRAPHIC NEWS
© GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS
Flest bendir til þess að England og
Svíþjóð komist upp úr B-riðlinum.
Sven Göran-Eriksson mun stýra
Englendingum gegn löndum sínum
í Svíþjóð, en sá leikur kemur lík-
lega til að skera úr um hvort liðið
hreppir efsta sætið í riðlinum.
„Gengi okkar Svía gegn Eng-
landi hefur verið frábært og þeir
hafa ekki borið sigurorð af okkur í
langan tíma. Það er alltaf áhuga-
vert að mæta þeim og þeir hafa
frábært jafnvægi í liði sínu, og
magnaða leikmenn í hverri stöðu.
Við erum sannfærðir um að við
munum halda okkar striki og fyrr
eða síðar hefðum við hvort sem er
þurft að mæta þeim í keppninni,
það eru örlög okkar,“ segir Lars
Lagerbäck, þjálfari Svía.
Dwight Yorke fer fyrir liði
Trinidad og Tobago, sem vann
Ísland meðal annars 2-0 í æfinga-
leik í febrúar. Yorke er ennþá frá-
bær leikmaður, en hann verður að
fá næga hjálp frá löndum sínum ef
liðið á að skáka stórveldunum
tveimur. Paragvæ rétt slapp inn á
HM og er ekki talið líklegt til
afreka á mótinu.
Fella Englendingar
loks Svíagrýluna?
■ FYLGSTU MEÐ Theo Walcott
Gary Neville