Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 46
■ ÞJÁLFARI: Jose Pekerman (f. 3 sept. 1949) „Ef það væri undir mér komið myndi Pekerman verða þjálfari Argentínu til dauðadags.“ Þessi orð lét Julio Grond- ona, forseti argentínska knattspyrnusambandsins, falla fyrir ekki svo löngu og bera þau vott um það traust sem Pekerman hefur í heima- landi sínu. Pekerman hefur yngt töluvert upp í liðinu og mætir til leiks í Þýskalandi með stórkostlega knattspyrnumenn í sínum röðum. ■ KOMST Á HM – með því að hafna í 2. sæti Suður- Ameríkuriðilsins, á eftir Brasilíu. 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR6 C - RIÐILL Leikmannahópurinn 1. Roberto Abbondanzieri, 34 ára, Boca Juniors 2. Roberto Ayala, 33 ára, Valencia 3. Juan Sorin, 30 ára, Villarreal 4. Fabricio Coloccini, 24 ára, D. La Coruna 5. Esteban Cambiasso, 26 ára, Inter Milan 6. Gabriel Heinze, 28 ára, Manchester United 7. Javier Saviola, 25 ára, Sevilla 8. Javier Mascherano, 22 ára, Corinthians 9. Hernan Crespo, 31 árs, Chelsea 10. Juan Roman Riquelme, 28 ára, Villarreal 11. Carlos Tevez, 22 ára, Corinthians 12. Leonardo Franco, 29 ára, Atletico Madrid 13. Lionel Scaloni, 28 ára, Deportivo La Coruna 14. Rodrigo Palacio, 24 ára, Boca Juniors 15. Gabriel Milito, 26 ára, Real Zaragoza 16. Pablo Aimar, 27 ára, Valencia 17. Leandro Cufre, 28 ára, Roma 18. Maxi Rodriguez, 25 ára, Atletico Madrid 19. Lionel Messi, 19 ára, Barcelona 20. Julio Cruz, 32 ára, Inter 21. Nicolas Burdisso, 25 ára, Inter 22. Luis Gonzalez, 25 ára, Porto 23. Oscar Ustari, 20 ára, Independiente © GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS © GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS Roberto Abbondanzieri Gabriel Heinze Juan Roman Riquelme Maxi Rodriguez Carlos Tevez Javier Mascherano Julio Cruz Juan Pablo Sorín Esteban Cambiasso Roberto AyalaNicolas Burdisso LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ 4-3-3 C-riðilinn verður mjög jafn og ómögulegt er að segja til um hvaða lið komast áfram. Ekkert lið er öruggt um að lenda í neðsta sæti og ekkert lið mun sigla auðveld- lega í gegnum leikina sína þrjá. Ef velja ætti sigurstrangleg- asta liðið, hallast flestir að Arg- entínu. Þeir hafa mestu söguna með sér og kyngimagnaða leik- menn í hverri stöðu. Margir halda svo upp á Hollendinga, með goð- sögnina Marco van Basten við stjórnvölinn. „Okkur líður nánast eins og á heimavelli. Öll liðin í riðl- inum verða erfið viðureignar, meira að segja Fílabeinsströndin sem eru að keppa í fyrsta skipti á HM, þeir hafa menn sem eru að spila með Arsenal og Chelsea,“ segir van Basten. Serbar og Svartfellingar hafa sterkt lið með markaskorarann mikla Mateja Kezman fremstan í flokki. Þeir spila agaðan en árang- ursríkan fótbolta og geta vel gert góða hluti í sumar. Fílabeins- ströndin vann Afríkuriðilinn og mun setja skemmtilegan svip á keppnina með litríkri knattspyrnu og stórskemmtilegum stuðnings- mönnum. Mun dauðariðillinn standa undir nafni? ARGENTÍNA HEIMSÁLFA: Suður-Ameríka ÍBÚAFJÖLDI: 38,7 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 9. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1930, 1934, 1958, 1962, 1966, 1974, 1978, 1982, 1986, 1990, 1994, 1998, 2002 ■ LYKILMAÐUR: Juan Roman Riquelme Miðjumaðurinn sem Jose Peker- man hefur byggt argentínska liðið í kringum. Hann er höfuðið í skap- andi og stórskemmtilegum sókn- arleik liðsins; stórkostlegur leik- maður sem býr yfir ótrúlegri tækni og sendingagetu. Hann skortir tilfinnanlega hraða en samherjar hans treysta á að hann stjórni leik liðsins. ■ FYLGSTU MEÐ: Lionel Messi Hefur á síðustu mánuðum hlotið viðurnefnið „hinn nýi Maradona,“ bæði hjá fjölmiðlum um allan heim og hjá Maradona sjálfum. Afar smávaxinn vinstri fótar vængmaður sem þykir búa yfir þeim hæfileika að geta nánast límt boltann við tærnar á sér. Gæti vel orðið einn af spútnikleikmönnum HM. ■ VISSIR ÞÚ ... Að Argentína komst í úrslit fyrstu heimsmeist- arakeppninnar í Úrúgvæ árið 1930 en tapaði fyrir heimamönn- um. Næstu þrjátíu ár var Arg- entína með frábært lið og vann Ameríkukeppnina m.a. 12 sinn- um en náði aldrei að sýna sitt rétta andlit á HM. Liðið vann loksins árið 1978 og síðan aftur 1986, í síðara skiptið þökk sé snilli Diego Maradona. ■ STÓRA SPURNINGIN Býr Riquelme yfir nægilegum hraða og reynslu til að leiða þjóð sína til heimsmeistaratitils eða voru það mistök hjá Jose Pekerman að velja ekki Juan Sebastian Veron í hópinn, sem er margreyndur með landsliði og félagsliðum og fæddur leikstjórnandi? HOLLAND HEIMSÁLFA: Evrópa ÍBÚAFJÖLDI: 16,2 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 3. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1934, 1938, 1974, 1978, 1990, 1994, 1998 ÞJÁLFARI: Marco van Basten KOMST Á HM – með því að hafna í fyrsta sæti í undanriðli 1 í Evrópu. ■ LYKILMAÐUR: RAFAEL VAN DER VAART Fyrrum ungl- ingastjarna hjá Ajax og núverandi leikmaður Hamburger í Þýskalandi, svo segja má að hann sé að nokkru leyti á heimavelli á HM. Frábær leikstjórnandi sem getur á góðum degi staðist öllum öðrum leikmönnum snúning en á það að sama skapi til að detta niður í algjöra meðal- mennsku á köflum. ■ VISSIR ÞÚ ... Að margir telja Hollendinga hafa átt skilið að verða heimsmeistarar á HM í Þýskalandi árið 1974? Þá tapaði liðið fyrir heimamönnum í úrslitaleik 2-1. Undir forystu Johan Cruyff spiluðu Hollendingar einhverja skemmtilegustu og flottustu knattspyrnu sem um getur og mörkuðu upphaf þess sem síðar var nefnt „hinn fullkomni fótbolti.“ Í næstu heimsmeistarakeppni, árið 1978, töpuðu Hollendingar aftur í úrslitum fyrir gestgjöfunum, en sá leikur fór 3-1 fyrir Argentínu eftir framlengdan leik. ■ STÓRA SPURNINGIN: Mun Van Basten sjá eftir því að hafa treyst á ungu leikmennina og sleppt því að velja reynslubolta á borð við Edgar Davids og Clarence Seedorf í sinn hóp? SERBÍA & SVARTFJALLALAND HEIMSÁLFA: Evrópa ÍBÚAFJÖLDI: 10,7 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 44. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1930, 1950, 1958, 1962, 1974, 1990, 1998 ÞJÁLFARI: Ilija Petkovic (f. 22. sept. 1945) KOMST Á HM – með því að hafna í efsta sæti í undan- riðli 7 í Evrópu, á undan Spáni. ■ LYKILMAÐUR: MATEJA KEZMAN Þrátt fyrir að honum hafi gengið illa með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni efast enginn um hæfileika Kezman við að skora mörk. Finnur sig ævinlega afar vel í leikjum landsliðsins og samherjar hans þar treysta á að hann skori mörkin. ■ VISSIR ÞÚ ... Að Mateja Kezman er einn af líklega örfáum Serbum sem voru mjög ánægðir með að liðið skyldi dragast í „Dauðariðilinn“ svokallaða með Arg- entínu og Hollandi. Kezman segir að það að vera með þessum sterku fótboltaþjóðum taki alla pressu af liði Serba og að enginn muni búast við því að liðið komist upp úr riðlinum. Það geri leik þeirra afslappaðri. ■ STÓRA SPURNINGIN: Varnarleikur Serbíu & Svart- fjallalands í undankeppninni var með ólíkindum og liðið fékk aðeins á sig eitt mark í tíu leikjum. Mun liðið ná sama árangri í lokakeppninni, gegn mun sterkari andstæðingum? FÍLABEINSSTRÖNDIN HEIMSÁLFA: Afríka ÍBÚAFJÖLDI: 17 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 32. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: Aldrei ÞJÁLFARI: Henri Michel (f. 28 okt. 1947) KOMST Á HM – Með því að hafna í fyrsta sæti í undanriðli 3 í Afríku, á undan Kamerún. ■ LYKILMAÐUR: DIDIER DROGBA Fíla- beinsströndin hefur sterkan leiðtoga í vörninni í Kolo Toure og frábæran varnarsinnaðan miðjumann í Didier Zokora. En það er hlutverk Drogba, fyrirliðans og þekktasta leikmanns liðsins, að draga vagninn og hvetja samherja sína til dáða. ■ VISSIR ÞÚ ... Að í áttundu tilraun hefur Fílabeins- ströndin loksins unnið sér þáttökurétt í lokakeppni HM. Með árunum og áratugunum hefur landsliðið verið í hægri en stöðugri framför og fyrir fjórum árum mátti engu muna að liðinu tækist að komast á HM. Túnis stakk sér hins vegar fram fyrir á lokasprettinum og fór á HM 2002 á kostnað Fílabeinsstrandarinnar. ■ STÓRA SPURNINGIN: Hliðstæður Fílabeinsstrand- arinnar við spútniklið Senegal frá því í síðustu Heims- meistarakeppni eru margar. Liðið er til að mynda að storu leyti byggt upp á frönskum ríkisborgurum sem eiga foreldra ættaða frá Afríku. Mun Fílabeinsströndin ná að gera sömu hluti í Þýskalandi og Senegal gerði fyrir fjórum árum í Suður-Kóreu og Japan? Leikmannahópurinn 1. Jean-jacques Tizie, 34 ára, Esperance 2. Kanga Akale, 23 ára, Strasbourg 3. Arthur Boka, 25 ára, Auxerre 4. Kolo Toure, 25 ára, Arsenal 5. Didier Zokora, 26 ára, Saint-Etienne 6. Blaise Kouassi, 31 árs, Troyes 7. Emerse Fae, 22 ára, Nantes 8. B. Kalou, 28 ára, Pais St. Germain 9. Arouna Kone, 23 ára, PSV Eindhoven 10. Yapo Gilles Yapi, 24 ára, Young Boys 11. Didier Drogba, 28 ára, Chelsea 12. Abdoulaye Meite, 26 ára, Marseille 13. Marc Zoro, 23 ára, Messina 14. Bakary Kone, 25 ára, Nice 15. Aruna Dindane, 26 ára, Lens 16. G. Gnanhouan, 27 ára, Montpellier 17. Cyrille Domoraud, 35 ára, Creteil 18. Kader Keita, 25 ára, Lille 19. Yaya Toure, 23 ára, Olympiakos 20. Guy Demel, 25 ára, Hamburger SV 21. Emmanuel Eboue, 23 ára, Arsenal 22. Romaric, 23 ára, Le Mans 23. Boubacar Barry, 27 ára, Beveren Leikmannahópurinn 1. Dragoslav Jevric, 32 ára, Ankarspor 2. Ivan Ergic, 25 ára, Basel 3. Ivica Dragutinovic, 31 árs, Sevilla 4. Igor Duljaj, 27 ára, Shaktar Donetsk 5. Nemanja Vidic, 25 ára, Man. United 6. G. Gavrancic, 28 ára, Dynamo Kiev 7. Ognjen Koroman, 28 ára, Portsmouth 8. M. Kezman, 27 ára, Atletico Madrid 9. Savo Milosevic, 33 ára, Osasuna 10. Dejan Stankovic, 28 ára, Inter 11. P. Djordjevic, 34 ára, Olympiakos 12. Oliver Kovacevic, 32 ára, CSKA Sofia 13. Dusan Basta, 22 ára, Crvena Zvezda 14. Nenad Djordjevic, 27 ára, Partizan 15. Milan Dudic, 27 ára, Crvena Zvezda 16. Mirko Vucinic, 23 ára, Lecce 17. Albert Nadj, 32 ára, Partizan 18. Zvonimir Vukic, 27 ára, Partizan 19. Nikola Zigic, 26 ára, Crvena Zvezda, 20. Mladen Krstajic, 32 ára, Schalke 04 21. Danijel Ljuboja, 28 ára, Stuttgart 22. Sasa Ilic, 29 ára, Galatasaray 23. V. Stojkovic, 23 ára, Crvena Zvezda Leikmannahópurinn 1. E. Van der Sar, 36 ára, Man. United 2. Kew Jaliens, 28 ára, AZ Alkmaar 3. K. Boulahrouz, 25 ára, Hamburger 4. Joris Mathijsen, 26 ára, AZ Alkmaar 5. G. van Bronckhorst, 31 árs, Barcelona 6. D. Landzaat, 30 ára, AZ Alkmaar 7. Dirk Kuyt, 26 ára, Feyenoord 8. Phillip Cocu, 36 ára, PSV Eindhoven 9. R. van Nistelrooy, 28 ára, Man. Utd 10. R. v.d. Vaart, 23 ára, Hamburger SV 11. Arjen Robben, 22 ára, Chelsea 12. Jan Kromkamp, 26 ára, Liverpool 13. A. Ooijer, 36 ára, PSV Eindhoven 14. John Heitinga, 23 ára, Ajax 15. Tim de Cler, 28 ára, AZ Alkmaar 16. Hedwiges Maduro, 21 árs, Ajax 17. Robin van Persie, 23 ára, Arsenal 18. M. van Bommel, 29 ára, Barcelona 19. J. Hesselink, 28 ára, PSV Eindhoven 20. Wesley Sneijder, 22 ára, Ajax 21. Ryan Babel, 20 ára, Ajax 22. Henk Timmer, 35 ára, AZ Alkmaar 23. Maarten Stekelenburg, 24 ára, Ajax
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.